Morgunblaðið - 15.08.2020, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 15.08.2020, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 2020 B Æ J A R L I N D 1 4 - 1 6 2 0 1 K Ó P AV O G U R S Í M I 5 5 3 7 1 0 0 L I N A N . I S O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6 Nýjar sendingar sierra borðstofustóll kr. 23.900 lipp skenkur kr. 75.500 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Skipulagsstofnun hefur ákveðið að lagning Örlygshafnarvegar um Látravík í Vesturbyggð skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Þetta vekur nokkra athygli þar sem fyrir- hugaður vegur liggur um vernd- arsvæði samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins og um svæði á nátt- úruminjaská (Breiðavík, Hvalátra og Keflavík). Þá eru fornleifar, sem njóta verndar, í innan við 100 metra fjarlægð frá framkvæmdasvæðinu. Hægt er að kæra ákvörðunina til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 14. september. Við mat á fram- kvæmdinni leitaði Skipulagsstofnun álits Náttúrufræðistofnunar, Um- hverfisstofnunar, Minjastofnunar og Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða auk sveitarfélagsins Vesturbyggð- ar. Liggur út að Látrabjargi Um er að ræða vegarspotta, 1,75 km að lengd, fyrir ofan Hvallátra og er hann hluti vegar sem liggur út að Látrabjargi. Raskið verður bundið við 13 til 30 m breitt svæði á leið- inni. Það er Vegagerðin sem annast mun framkvæmdina. Fram kemur í ákvörðun Skipulagsstofnunar að nú- verandi vegur sé að hluta til niður- grafinn, mjór og beri ekki þá um- ferð sem um hann fari. Oft skapast vandamál í rigningu þar sem fljótt myndast djúpir pollar í veginum sem ógerlegt er að ræsa burt. Um- ferð hefur farið stigvaxandi um frí- stundasvæðið á Hvallátrum og við núverandi aðstæður á háannatíma hafa landeigendur talið allt að 500 bíla á dag sem þýðir um 1.000 bíla gegnumstreymisumferð. Áætluð efnisþörf við vegagerðina er tæpir 34 þúsund rúmmetrar og mun efnið fást með skeringum. Teknir verða 52 þúsund rúmmetrar og mun umframefnið notað til að laga bratta fláa á núverandi Örlygs- hafnarvegi, í grennd við fyrirhugað framkvæmdasvæði. Allur frágangur verður í samræmi við verklag við framkvæmdir af þessu tagi og unn- inn í samráði við eftirlitsaðila Vega- gerðarinnar, landeigendur og full- trúa Umhverfisstofnunar. Vegagerðin telur að nýi vegurinn muni hafa óveruleg áhrif á landslag, með tilliti til sérstöðu eða fágætis þess, en talsverð neikvæð áhrif á ásýnd svæðisins vegna skeringa meðfram vegi. Með góðri hönnun, frágangi og eftirliti með fram- kvæmdum verði hægt að draga verulega úr þessum áhrifum. Stuðl- að verði að því að röskun á landi verði sem minnst og takmarkist fyrst og fremst við fyrirhugað fram- kvæmdasvæði. Nokkur áhrif á fuglalíf Náttúrufræðistofnun vann rann- sókn á gróðurfari og fuglalífi á svæðinu í fyrrasumar. Rask vegna framkvæmdanna verður á 5 hektara svæði og liggur veglínan um órask- að og allvel gróið svæði. Bein áhrif verða að mestu á vistgerðir með lágt verndargildi en á 300 til 400 metra kafla fer hún yfir gróið svæði og þverar língresis- og vingulsvist (hátt verndargildi), grashólavist (hátt verndargildi) og hrossanál- arvist, auk þess sem hún mun liggja nærri starungsmýrablettum (með mjög hátt verndargildi). Áhrifin verða staðbundin. Þá telur Nátt- úrufræðistofun að búsvæði mófugla muni óhjákvæmilega raskast og æskilegt sé að kortleggja betur varp innan svæðisins. Nýr vegur muni þó einnig hafa jákvæð áhrif þar sem hann dragi stórlega úr um- ferð í frístundabyggðinni og þar með hættunni á að ekið sé yfir kríuunga í varpi við veginn. Loks er nefnt að nýja veginum gæti fylgt slysahætta fyrir fugla og menn vegna ritubyggðar í Látrabjargi, en flughæð ritu er gjarnan einungis örfáa metra frá jörðu. Minjastofnun hefur skoðað forn- minjar á svæðinu og telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við framkvæmdina svo lengi sem forn- minjar verði merktar á áberandi hátt og starfsmönnum við vega- gerðina gert viðvart um staðsetn- ingu þeirra. Niðurstaða Skipulagsstofnunar er því sú sem fyrr segir, að fram- kvæmdin þurfi ekki að fara í um- hverfismat. Vegur lagður um við- kvæmt verndarsvæði  Liggur að Látrabjargi  Fer ekki í umhverfismat Örlygshafnarvegur um Hvallátra Ný veglína Látravík Látravatn Bjargtangar Látrabjarg Ný veglína skv. deiliskipulagi Núverandi vegur Kortagrunnur: OpenStreetMap Breiða vík LÁTRADALUR Hvallátrar ■ 612 „Núna þurfa bændur þurrk í eina viku og þá erum við komnir á beina braut,“ sagði Aðalsteinn Þorgeirs- son á Hrafnkelsstöðum í Hruna- mannahreppi í samtali við Morg- unblaðið. Fyrri slætti lauk hann fyrir nokkru, bar þá áburð á túnin sem nú eru vel sprottin eftir hlýindi og rigningu um nokkurt skeið. Ann- ar sláttur sumarsins er því nú fram undan og beðið er eftir góðri spá sem veit á heyskaparveður í nokkra daga. Á Hrafnkelsstöðum er Aðalsteinn með um 70 ha. tún sem í fyrri slætti skiluðu honum góðum og næringar- ríkum heyjum. „Menn eru ábyggi- lega allir búnir með fyrri sláttinn. Uppskeran er fín og heilt yfir er staðan á heyskap hér í uppsveit- unum góð.“ Þreytt á ósköpum „Hér hefur rignt mikið í tals- verðan tíma og við erum orðin þreytt á þessum ósköpum. Fyrri hluti sum- ars var þó mjög góður tími, eftir leið- inlegan vetur,“ segir Oddný Steina Valsdóttir bóndi á Butru í Fljótshlíð. Þar á bæ stendur seinni sláttur yfir og nú þarf að ná hánni í hús. Fyrri sláttur sem flestir bændur á svæðinu luku í júlí gekk vel og að því leyti er fólk komið fyrir vind. Flestir Fljóts- hlíðarbændur heyja í rúllur, en í vöxt færist í Rangárvallasýslum að heyj- að sé í stæður og flatgryfjur, þá einkum á stærri búum ella að nokkr- ir taki sig saman til slíkra vinnu- bragða svo sem með tækjakosti. „Við fengum svakalega flottan þurrk í júlí,“ segir Einar Freyr El- ínarson, bóndi í Sólheimahjáleigu í Mýrdal. Á þeim dögum segir hann flesta hafa náð fyrri slætti og nú sé seinni lotan tekin við. Í ferðaþjón- ustu, sem sé mikilvægur atvinnuveg- ur í Mýrdal, sé staðan hins vegar tví- sýn. Á vetrum hafi ferðamenn frá Bandaríkjunum og Eyjaálfu gjarnan dvalist á svæðinu, en verði sennilega sjaldséðir á næstunni. sbs@mbl.is Seinni slátturinn nú á Suðurlandi  Vel er sprottið eftir rigningarnar í sumar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Heyskapur Sumar í sveitunum. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Viðtökurnar hafa verið gríðarlega góðar. Þetta er enda mikið þarfa- þing,“ segir Örn Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Ísrörs. Fyrirtækið hóf í vor að selja svo- kölluð kælirör fyrir bjór. Um er að ræða rör sem grafið er ofan í jörðu og þegar þrýst er á einn takka skjótast upp fimmtán ískaldar flöskur af bjór. Tilvalið fyrir garð- inn eða pallinn, að sögn Arnar. „Við vorum að flytja inn vegg- þétta frá fyrirtæki í Þýskaland og það fyrirtæki bjó til þetta rör. Þetta mun vera þekkt aðferð þar í landi, rör er grafið í jörðu og svo er sett stöng ofan í það með pumpulyftu. Á þá stöng hengir þú 15 bjóra og kuldinn í jarðveginum kælir bjórinn. Hann er alltaf í kringum 6-7 gráður. Svo er lok yfir þessu til að hleypa rakanum út. Þetta er ekki flókið; þegar gest- irnir koma þá kippir þú lokinu af og tekur snúning. Bjórarnir koma svo upp eins og fyrir töfra.“ Örn segir að Þjóðverjar hafi byrjað að nota þessa aðferð til að kæla bjór í sandinum í fjörum. „Svo er sagt. En svo höfum við reyndar líka heyrt að þeir hafi stolið hugmyndinni frá Dönunum.“ Hægt er að horfa á myndband sem sýnir hvernig rörið virkar á heimasíðu Ísrörs. Segir Örn að rörið kosti rétt um 33 þúsund krónur og það fáist keyrt heim að dyrum. Kaupendur geta fengið jarðvegsbor lánaðan til að koma rörinu niður, og kennslustund frá sérfræðingunum sjálfum ef á þarf að halda. „Það hafa margir verið að hengja þetta neðan í pallana hjá sér eða við hliðina á pottinum. Það eru oft miklar pælingar um stað- setninguna. Svo hafa margar frúr gefið mönnum sínum rörið í afmælisgjöf.“ Morgunblaðið/Eggert Nýjung Örn Sigurðsson hjá Ísröri segir að mikill áhugi hafi verið á kælirörum fyrir bjór. 15 flöskur eru grafnar í jörðu og koma kaldar upp þegar hentar. Kæla bjórinn í röri sem grafið er í jörð  „Koma upp eins og fyrir töfra“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.