Morgunblaðið - 15.08.2020, Side 26

Morgunblaðið - 15.08.2020, Side 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 2020 Boðið er upp á einkaskoðun og fólk vinsamlegast beðið um að hafa samband í síma 898-9396 eða á hakon@valfell.is og panta tíma til skoðunar. Kirkjubraut 2, 300 Akranesi | Sími: 570 4824 | hakon@valfell.is | valfell.is Þingvangur ehf byggir 10 hæða lyftuhúsnæði á góðum stað miðsvæðis á Akranesi. Staðsett við verslunarkjarnann Dalbraut 1, Akranesi. STILLHOLT 21 - AKRANESI Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar og seljast fullbúnar án gólfefna nema forstofa, þvottahús og baðherbergi flísalagt. Öllum íbúðum fylgir kæliskápur og uppþvottavél í eldhúsinnréttingu. Sýningaríbúð á 1. hæð. Innréttingar og fataskápar frá danska framleiðandnum HTH Innhurðir og flísar frá Parka Heimilistæki frá Ormsson Nýlega barst í póst- kassann fjölpóstur með límmiða sem á stóð „af- þakkaðu fjölpóst og stuðlaðu að minni papp- írsnotkun“. Fyrst hélt ég sendinguna vera frá Íslandspósti og liður í sparnaðarátaki þeirra við að minnka útburð og lækka kostnað. En svo sá ég að þetta var merkt Reykjavíkur- borg. Við nánari eftirgrennslan sá ég frétt um fjölpóstinn á vef Reykja- víkurborgar þann 10. júlí sl. Þar kom fram að Reykjavíkurborg dreifir miðum heim til íbúa sem ger- ir þeim kleift að afþakka ómerktan fjölpóst með því að setja merkimiða utan á póstkassann. „Þannig getur fólk stuðlað að minni notkun auð- linda, vegna pappírs, prentunar og dreifingar og vegna söfnunar og endurvinnslu á pappírnum“, eins og segir frá Reykjavíkurborg. Hægt er að velja þrenns konar límmiða eftir því hvað er afþakkað og fjölda frí- blaða sem óskað er eftir. Svör við sleggjudómum Ýmsar spurningar vakna. Hvers vegna er Reykjavíkurborg að berj- ast gegn dreifingu á upplýsingum á pappír til almennings, upplýsingum sem oft eru gagnlegar og jafnvel mikilvægar? Þetta vinnur gegn prentiðnaðinum og því starfsfólki sem þar vinnur. Er ekki verið að draga úr möguleikum fyrirtækja og einstaklinga til að auglýsa sína þjónustu þegar Reykjavíkurborg hvetur einstaklinga til þess að loka fyrir mikilvæga dreifileið upplýs- inga? Þegar fjallað er um sjálfbærni pappírs og prentiðnaðar er mikil- vægt að horfa til margvíslegra sleggjudóma sem eru viðhafðir í garð pappírs. Pappírsiðnaðurinn er leiðandi á heimsvísu í sjálfbærum aðföngum, endurnýjanlegri orku og háu hlutfalli endurvinnslu. Í vor var gefið út 16 síðna upplýsingarit af Samtökum iðnaðarins, IÐUNNI fræðslu- setri, prentsmiðjum í Samtökum iðnaðarins, stéttarfélaginu Grafíu og pappírsinnflytjendum. Ritið ber nafnið „Sleggjudómar og stað- reyndir um pappír og prent“. Í ritinu er farið yfir eftirfarandi sleggjudóma og staðreyndir um prentiðnað og pappír: - Sleggjudómur. Pappírsnotkun felur í sér mikla sóun. - Staðreynd. Pappír er ein mest endurunna vara heims. - Sleggjudómur. Pappír er slæm- ur fyrir umhverfið. - Staðreynd. Pappír er ein fárra raunverulega sjálfbærra vara. - Sleggjudómur. Pappírsfram- leiðsla er orsök losunar gróðurhúsa- lofttegunda um allan heim. - Staðreynd. Orkan sem er notuð til framleiðslunnar hér á landi er að mestu endurnýjanleg. - Sleggjudómur. Rafræn sam- skipti eru betri fyrir umhverfið en pappírsbundin samskipti. - Staðreynd. Rafræn samskipti hafa einnig veruleg áhrif á umhverf- ið. - Sleggjudómur. Stafræn tækni er ákjósanlegur samskiptamáti. - Staðreynd. Margir neytenda meta mikils samskipti á pappír. Pappírsiðnaður hugar að umhverfinu Prentiðnaðurinn hefur átt undir högg að sækja og er stór hluti bóka- prentunar farinn úr landi. Flestar prentsmiðjur eru með Svansvottun á Íslandi og allar prentsmiðjur í Samtökum iðnaðarins eru um- hverfisvottaðar. Enginn iðnaður á Íslandi er eins umhverfisvottaður og prentiðnaðurinn. Aðeins efsti hlutinn af trénu, um 13%, er nýttur í pappírsiðnaðinn og annað er nýtt í vistvæn hús, hús- gögn og orkunotkun. Á einu ári tekur eitt tré að jafnaði til sín 22 kg af koltvíoxíði og gefur frá sér súr- efni. Þegar eitt tré er fellt vegna pappírsiðnaðar eru gróðursett að lágmarki þrjú á móti. Nytjaskógar vaxa hraðar og þannig næst að hleypa meira súr- efni í andrúmsloftið ásamt því að draga úr koltvíoxíði. Líkt og tré þá tekur pappír koltvíoxíð úr andrúms- loftinu og gefur frá sér súrefni. Ef við drögum úr pappírsnotkun verð- ur síður forsenda hjá skógarbænd- um að gróðursetja og þá eykst kol- tvíoxíð í andrúmsloftinu og súrefni minnkar. Markpóstur er mikilvægur upplýsingamiðill Markpóstur er öflugur auglýs- ingamiðill. Það gildir t.d. um efnis- mikla vörulista eins og IKEA-vöru- listann sem dreift er sem fjölpósti. Einnig Bókatíðindi sem dreift er skömmu fyrir jól. IKEA hefur þurft að grípa til þess ráðs að bjóða sér- stakan merkimiða á póstkassann ef fólk vill fá IKEA-bæklinginn. Með því að vinna gegn fjölpósti er verið hindra að almenningur geti fengið áhugaverðar og jafnvel mikilvægar upplýsingar frá ýmsum félögum og félagasamtökum. Reykjavíkurborg mætti alveg nýta sér betur það tækifæri sem felst í dreifingu upplýsinga á pappír til íbúa einstakra hverfa. Það væri liður í auknu íbúalýðræði og betri upplýsingamiðlun til almennings, t.d. varðandi breytingar á deili- skipulagi eða öðrum skipulags- málum. Netnotkun eykst og hefur einnig áhrif á umhverfið Um 4,3 milljarðar eða 60% jarð- arbúa nota internetið. Netnotkun veldur tæplega 4% af heildarút- blæstri gróðurhúsalofttegunda sem er svipað og vegna flugsamgangna í normal ári. Margar gagnlegar upp- lýsingar um kolefnisspor netnotk- unar fást á vef BBC. Sjá: https://www.bbc.com/future/art- icle/20200305-why-your-internet- habits-are-not-as-clean-as-you- think. Það þarf frekari fræðslu til al- mennings um hvernig má minnka kolefnisspor netnotkunar. Það mætti til dæmis benda starfsfólki fyrirtækja á að senda „hlekki“ með tölvupósti innan fyrirtækja, en ekki senda alla skrána. Með venjulegum tölvupósti er kolefnissporið ein- göngu 4 g CO2, en ef mynd er send með getur það verið um 50 g CO2 og streymi á myndböndum veldur mun meira útstreymi gróðurhúsa- lofttegunda. Pappírsnotkun hefur áhrif á skógrækt Pappírsnotkun og þar með prent- un á pappír skiptir sköpum fyrir skógarbændur. Notkunin er hluti af þeirri hringrás sem þarf til að halda sjálfbærri þróun gangandi. Um pappír og notkun hans má segja eftirfarandi: - Endurvinnsluhlutfall pappírs og pappa er hærra á Íslandi árið 2018 en í flestum nágrannalöndum okkar eða um 93%. Til samanburðar er endurvinnsluhlutfall plasts á Íslandi um 56% (Umhverfisstofnun, 2020). - Skv. evrópskri rannsókn kjósa neytendur að lesa prentaða útgáfu bóka (72%), tímarita (72%) og dag- blöð/fréttir (55%) frekar en staf- ræna útgáfu (www.twosides.info/ concumer-choice/). - Sífellt vaxandi hlutfall pappírs er framleitt úr sjálfbærum skógum og enginn pappír er framleiddur úr trjám regnskóga. - Skógareyðing er ekki af völdum pappírsiðnaðar. Pappírs- og prent- iðnaður er ábyrgur og sjálfbær. Til umhugsunar fyrir lesendur áður en þið afþakkið fjölpóst! Þið gætuð misst af gagnlegum upplýs- ingum. Með því að nota pappír stuðlum við að ræktun nytjaskóga og leggjum þannig okkar lóð á vogarskálarnar í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Í skógum eru veruleg tækifæri í bindingu kolefnis með aukinni ræktun og bættri um- hirðu. Allt þetta skiptir máli fyrir velferð okkar í framtíðinni. Reykjavíkurborg afþakkar fjölpóst með fjölpósti Eftir Þorkel Sigurlaugsson »Er það eðlilegt hlut- verk Reykjavíkur- borgar að berjast gegn dreifingu upplýsinga á pappír til almennings þegar pappírsnotkun stuðlar að ræktun nytjaskóga? Þorkel Sigurlaugsson Höfundur er viðskiptafræðingur og formaður velferðarnefndar Sjálfstæðisflokksins. Heimurinn lifir nú fordæmalausa tíma, og þeir, sem byggja þessa jörð, eiga eftir að búa við helvítisveir- una og afleiðingar hennar um ókomin ár. Vísindamenn munu hins vegar leggja veir- una að velli, enda eru 26 bóluefni á lokastigi rannsókna og efnin prófuð á tugþúsundum einstaklinga. Verða virkni þeirra og eitr- unaráhrif könnuð áður en efnin verða lögð fyrir til samþykkis. Bretar, Banda- ríkjamenn og Kín- verjar vinna saman Við Oxford-háskóla í samstarfi við Astra- Zeneca í Cambridge og kínverska líftækni- fyrirtækið Sinovac Biotech er unnið að rannsóknum, sem komnar eru langt á veg, og verið að prófa á þúsundum heilbrigðisstarfsmanna í Brasilíu. Auk þess stefna þýska fyrirtækið BioNTech og bandaríski lyfjarisinn Pfizer að því að prófa bóluefni sín á allt að 30 þúsund ungum sjálfboða- liðum. Hið sama er uppi á teningn- um hjá bandaríska lyfjafyrirtækinu Moderna og kínverska fyrirtækinu Sinopharm sem hafa prófað bóluefni sitt á 15 þúsund manns í Sameinuðu arabísku furstadæmun- um. Þá fylgist Alþjóða- heilbrigðismálastofn- unin með þróun 139 bóluefna til viðbótar, sem enn eru á frum- stigi rannsókna. Ýmislegt hefur gleymst Í umræðunni um hel- vítisveiruna hafa aðrar hörmungar, sem lengi hafa fylgt mannkyni, fallið í skuggann – eða jafnvel gleymst: styrj- aldir, hryðjuverk, of- beldi, fátækt, misrétti, mismunun og líkamleg og andleg vanlíðan. Enginn vafi leikur á, að vísindamönum tekst að vinna bug á helvítis- veirunni. Ýmislegt hef- ur breyst í kjölfar veir- unnar og margt á enn eftir að breytast – flest til hins betra, því þeir sem byggja þessa jörð verða að breyta hegðan sinni. Ekkert bóluefni verður hins vegar fund- ið við þessum hörm- ungunum sem fallið hafa í skuggann eða jafnvel gleymst: styrjöldum, hryðjuverkum, ofbeldi, fátækt, mis- rétti, mismunun og líkamlegri og andlegri vanlíðan. Það er verkefni, sem við blasir – og þarfnast úr- lausnar. Veiran verður lögð að velli Eftir Tryggva Gíslason Tryggvi Gíslason » Í umræðunni um veiruna hafa aðrar hörmungar fall- ið í skuggann: styrjaldir, hryðjuverk, ofbeldi, fátækt, mismunun og líkamleg og andleg vanlíðan. Höfundur er fyrrverandi skólameist- ari Menntaskólans á Akureyri tryggvi.gislason@gmail.com Hvar er næsta verkstæði? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.