Morgunblaðið - 15.08.2020, Síða 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 2020
Tónlistarmaðurinn Jónsi, eða Jón
Þór Birgisson, gaf í gær út lagið
„Cannibal“ en í því syngur með
honum tónlistarkonan Elizabeth
Fraser úr hljómsveitinni Cocteau
Twins. „Cannibal“ er þriðja smá-
skífan sem kemur út af nýrri plötu
Jónsa, Shiver, sem kemur út 2.
október á vegum Krunk útgáf-
unnar. Shiver er upptökustýrt af
Jónsa og A.G. Cook, stofnanda PC
Music, að því er fram kemur í til-
kynningu. Myndband við lagið er
svo samstarfsverkefni Jónsa og
Giovanni Ribisi og eins og í mynd-
bandi við áður útgefið lag af plöt-
unni, „Exhale“, er einn dansari í
forgrunni allan tímann en Ribisi
leikstýrði því einnig.
„Þegar Sigur Rós var að byrja þá
var alltaf verið að bera okkur okk-
ur saman við Cocteau Twins og það
fór í taugarnar á mér. Ég vildi ekki
að það væri verið að bera okkur
saman við neinn,“ er haft eftir
Jónsa. Fyrir nokkrum árum hafi
hann byrjað hlusta á sveitina og átt-
að sig þá á samanburðinum. Honum
hafi þótt Cocteau Twins frábær.
„Í Shiver er kafað djúpt ofan í
mannlega vitund okkar og teng-
ingu við náttúruna þar sem lífrænn
og draumkenndur hljóðheimur
Jónsa mætir vélrænni og fram-
úrstefnulegri upptökustjórn A.G.
Cook. Með þessu óvenjulega sam-
starfi heldur Jónsi áfram að þenja
út mörk listformsins og skynjunar
okkar,“ segir um plötuna í tilkynn-
ingu.
Jónsi syngur með Elizabeth Fraser
Skapandi Jónsi kemur víða við í listinni.
Haldreipi fegurðarinnar
Verk Ingibjargar leitast við að
snerta á grunnviðleitninni til list-
sköpunar og undirstöðu myndlistar,
línu og myndbyggingu en eru um leið
hluti af frásögn sem raðast saman úr
brotum sem glittir í. Því til marks er
til sýnis verk sem inniheldur ljós-
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
„Í myndlist er hægt að tjá eitthvað
sem er ekki hægt að útskýra
nákvæmlega með orðum, og það er
eitthvað mjög heillandi við það,“
segir Ingibjörg Sigurjónsdóttir
myndlistarmaður um sumarsýningu
Skaftfells sem er í hennar höndum
og ber titilinn Mon ciel, mi cielo.
Hvað ertu raumverulega að meina?
„Fyrri partur titilsins kemur frá
leikfangi sem var það fyrsta sem ég
keypti fyrir mína eigin peninga, pes-
eta á Mæjorka. Þetta er plasteftirlík-
ing af Hello Kitty, en á umbúðunum
stóð Mon ciel, mi cielo. Það tengist
við eitt lykilverk á sýningunni,“ segir
Ingibjörg þegar blaðamaður spyr
hana hvað hún sé eiginlega að meina
með titlinum. „Seinni hlutinn [hvað
ertu raunverulega að meina?] kemur
út frá þessari stanslausu spurningu
sem er alltaf tengd myndlistinni,
listaverkum og því að kljást við
tilveruna,“ segir Ingibjörg.
Ingibjörg sýnir eigin verk í formi
teikninga, stafrænna prenta og
skúlptúra, ásamt völdum verkum
eftir listmálarann og leirlistamann-
inn Benedikt Guðmundsson (1907-
1960), en Ingibjörg ólst upp innan
um verk hans þar sem afkomendur
hans voru nánir fjölskylduvinir.
„Ég ólst upp í kringum þessi verk
því dóttir hans og fjölskylda bjuggu
á efri hæðinni – þessi fjölskylda er öll
mjög skapandi og það er nálgun
þaðan sem hefur mótað mig mjög
mikið,“ segir Ingibjörg. Benedikt
var leirlistamaður, listmálari og
menntaður kjötiðnaðarmaður sem
vann ötullega að list sinni, gerði
áræðin málverk og fíngerðar pastel-
teikningar.„Hann var mjög virkur í
listinni og var í kreðsu með öðrum
áhugamálurum, bílamálurum og svo
atvinnumálurum eins og Gunnlaugi
Scheving og Þorvaldi Skúlasyni.
Verkin okkar eru eins ólík og verið
getur en við eigum sameiginlegan
flöt í trú á erindi listarinnar, þótt
nálgun okkar sé alveg úr sitt hvorri
áttinni,“ segir Ingibjörg.
mynd eftir afa Ingibjargar, sem á sér
fallega sögu. „Ég á ljósmynd sem afi
minn tók þegar við vorum að byrja
að átta okkur á því að hann væri
langt leiddur af Alzheim-
er-sjúkdómnum. Hann var að missa
tengninguna við raunveruleikann og
staðreyndir en hann hafði einhverja
beintengingu við fegurðina, þessi
haldreipi sem við höfum,“ segir Ingi-
björg og heldur áfram: „Þetta er
ljósmynd sem hann tók þegar hann
stóð alveg heillaður við gluggann í
einhverri ítalskri leiguíbúð sem við
vorum í. Hann tók aftur og aftur
myndir af sólsetrinu og af skýjunum.
Mér þóttu þessar myndir vera svo
merkilegur vottur um þetta hald-
reipi fegurðarinnar. Þessi mynd hef-
ur lengi verið mér hugleikin og lenti í
einu verkinu sem var á sýningunni
og á sinn þátt í að gefa sýningunni
þennan titil, himinninn minn - mon
ciel, mi cielo,“ segir hún.
Skúlptúrinn skýr í sinni tilvist
Á sýningunni er að finna skúlptúr,
gylltan stöpul, sem er ætlað að kalla
fram ákveðna tilfinningu. Hann
samanstendur af skrifstofupappír í
stærðinni A3, sem er síðan gylltur
eftir á líkt og gert er með biblíur.
„Síðan raða ég á hann vandlega völd-
um hlutum, sem eru ágætis dæmi um
þessa ómerkilegu hluti sem ég vinn
gjarnan með, sem búa yfir einhverri
óuppgötvaðri merkingu,“ segir Ingi-
björg. Ekkert skýrt svar sé við því
hver merkingin sé, en á sama tíma sé
það alveg ljóst. Eitthvað sem er
óskýrt en skýrt um leið.
„Þetta er auðvitað ekki eitthvað
sem maður á að vera að gera. Það er
fáranlegt að eyða pening í að gylla
skrifstofupappír en um leið þá verð-
ur þetta að vera svona. Það er líka
það sem er spennandi; listin er oft
ekki lógísk við fyrstu sýn en hún
fylgir sínum eigin rökum. Eitthvað
sem virðist fyrst ekki meika sens,
meikar síðan sens,“ segir hún.
Raunveruleg merking hlutanna
Verk Ingibjargar Sigurjónsdóttur og Benedikts Guðmundssonar til sýnis á Sumarsýningu Skaftfells
Kafað inn í raunverulega merkingu hlutanna Teikningar, stafræn prent og skúlptúrar
Ljósmynd/Margrét Bjarnadóttir
Gylltur Þessi gyllti stöpull hefur einhverja merkingu, sem undir hverjum og einum er komið að túlka.
Ljósmynd/Vigfús Bjarnason
Sólsetrið Afi Ingibjargar hafði
ekki gleymt fegurðinni þrátt fyrir
greiningu sína og tók fallega mynd.
C vítamín
Bragðgóðar tuggutöflur
með appelsínubragði.
Frábær kostur fyrir þá
sem eiga erfitt með að
kyngja stórum töflum.
Hentar öllum aldri.
Fæst í apótekum og flestum stórmörkuðum
Málverkasýningin Draumar verður
opnuð í dag kl. 14 í Listmunahúsi
Ófeigs við Skólavörðustíg. Á henni
sýna Hulda Vilhjálmsdóttir og Val-
garður Bragason ásamt börnum
sínum Braga Þór Valgarðssyni og
Nínu Maríu E. Valgarðsdóttur mál-
verk. Hulda og Valgarður eru
starfandi listamenn og hafa börn
þeirra í gegnum tíðina oft málað
verk með þeim .
Draumar hjá Ófeigi
Listadýrð Eitt af verkum sýningarinnar.