Morgunblaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Malbika þarf nýtt undirlag fyrir hlaupabraut við nýjan frjálsíþrótta- völl ÍR í Mjódd. Rangt efni var not- að við fyrstu malbikun og því þarf að hefja framkvæmdir að nýju. Að sögn Ingigerðar H. Guð- mundsdóttur, formanns ÍR, er nú unnið að því að fræsa gamla undir- lagið. „Það er verið að fræsa þetta upp til að hægt sé að malbika aftur. Næsta sumar á síðan að leggja tart- an á brautina,“ segir Ingigerður og bætir við að leggja verði sérstakt malbik undir tartan. Að öðrum kosti er hætta á því að hlaupabrautin skemmist á skömmum tíma. „Það var búið að malbika en það var ekki í lagi. Ég kann ekki alveg á verk- fræðina en malbikið verður að hafa ákveðna eiginleika þegar það er undir svona efni,“ segir Ingigerður. Heimildir Morgunblaðsins herma að kostnaður vegna mistakanna hlaupi á ríflega hundrað milljónum króna. Aðspurð segist Ingigerður ekki geta staðfest það, en bendir á að allur kostnaður falli á Reykjavík- urborg. „Borgin á þessi mannvirki og ég þekki ekki kostnaðarhlutann á þessu. Ég þori því ekki að nefna neinar tölur. Eina sem ég hef verið að reyna að gera er að koma að- stöðunni í stand. Þetta er rosalega flottur völlur og við bíðum spennt eftir því að fá brautina,“ segir Ingi- gerður. Mistök í verklýsingu Að því er heimildir Morgunblaðs- ins herma má rekja framangreind mistök til verklýsingar fram- kvæmdarinnar. Segja heimildar- menn blaðsins að óskað hafi verið eftir röngu efni í lýsingunni. Verk- takinn Jarðval sf., sem hefur séð um framkvæmdina, kvaðst ekki vilja tjá sig um málið. Vísaði hann jafnframt á borgina og sagði málið vera í farvegi. Morgunblaðið sendi fyrirspurn til Reykjavíkurborgar við vinnslu fréttarinnar. Engin svör bárust. Mjög dýrkeypt mistök  Mistök í verk- lýsingu kosta ríf- lega 100 milljónir Morgunblaðið/Arnþór Framkvæmdir Gera má ráð fyrir að kostnaður vegna mistakanna hlaupi á ríflega hundrað milljónum króna. Fellur kostnaðurinn á Reykjavíkurborg. Skúli Halldórsson sh@mbl.is Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarnadeildar ríkislögreglu- stjóra, segir ný fyrirmæli ríkissak- sóknara um sektarviðurlög brota á sóttvarnareglum ekki hafa í för með sér stefnubreytingu af hálfu lög- reglu hvað varðar aðgerðir til að takmarka útbreiðslu faraldurs kór- ónuveirunnar. Fyrirmælin voru birt á vef emb- ættisins á þriðjudag. Er þar meðal annars mælt fyrir um að brot á skyldu til að fara eða vera í sóttkví geti varðað 50 til 250 þúsund króna sekt. Brot á reglum um einangrun varða á sama tíma 150 til 500 þús- und króna sekt. 10 til 100 þúsund krónur fyrir grímuskyldubrot einstaklings Sekt einstaklings, sem notar ekki andlitsgrímu, ákvarðist þá eftir al- varleika brots – frá 10 og upp í 100 þúsund krónur. Leysa fyrirmælin af hólmi fyrri fyrirmæli ríkissaksókn- ara sem tóku gildi 27. mars, sam- kvæmt þágildandi sóttvarnareglum. Spurður hvort lögreglan muni fylgja þessum fyrirmælum eftir með öðrum hætti en gert hefur verið hingað til, til að mynda með stífara eftirliti, segir Víðir að hún hafi frá upp- hafi nálgast þau sóttvarnaverkefni sem faraldrinum fylgja, „með leiðbeiningar- og þjón- ustuhlutverkið í forgrunni“. „Lögreglan hefur ekki beitt harð- ari úrræðum á borð við sektir nema í tiltölulega alvarlegum tilfellum, og ég held að það verði leiðarljósið í þessu, að minnsta kosti til að byrja með, að aðstoða fólk við að nota grímurnar þar sem það á við,“ segir Víðir í samtali við Morgunblaðið. „Það er mjög afmarkað hvar er grímuskylda, það er fyrst og fremst í almenningssamgöngum, og ég hef svo sem ekki mikla trú á því að þetta verði umfangsmikið verk- efni.“ Hvað lögregluna varði feli nýju fyrirmælin því ekki fyrir sér neins konar stefnubreytingu hvað að- gerðir varðar. „Þetta er náttúrulega bara þann- ig að þegar reglur eru settar þá þurfa að fylgja þeim einhver úrræði ef þær eru brotnar. En allt er þetta þannig að lögregla beitir vægustu úrræðum sem eru í boði hverju sinni. Og í þessum tilfellum hafa leiðbeiningar og tilmæli einfaldlega virkað mjög vel. Fólk hefur viljað vera með í þessu verkefni. Þannig að ég á ekki von á að það verði nein stefnubreyting á því.“ Fyrirmælum fylgi ekki stefnubreyting  Lögregla beiti vægustu úrræðum hverju sinni  50 til 250 þúsund króna sekt fyrir brot á sóttkví  150 til 500 þúsund króna sekt fyrir brot á einangrun  Leysa af hólmi fyrri fyrirmæli ríkissaksóknara Víðir Reynisson Alexander Kristjánsson alexander@mbl.is Hjónunum Þórunnborgu Jónsdóttur og Ragnari Eiðssyni á Bragðavöllum á Djúpavogi brá heldur betur í brún þegar tengdadóttir þeirra kom fær- andi hendi með risasvepp sem hún hafði fundið utan við bæinn. Hvítur sveppurinn vóg rúm fjögur kíló og var um 102 cm að ummáli. „Sonur minn hélt náttúrulega að þetta væri bolti,“ segir Ragnar og hlær. Svepp- urinn er af tegundinni jötungíma og er vel ætur. Því má ætla að fjöl- skyldan muni eiga fullt í fangi næstu vikur við að matreiða ferlíkið. Fimmtándi sveppurinn Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir sveppafræðingur hefur þegar fengið veður af risasveppnum þegar blaða- maður slær á þráðinn. Hún stað- festir að þetta sé jötungíma, tegund risasveppa sem eigi það til að rata í fjölmiðla og sé algengasta tegund svokallaðra gorkúlna. „Þetta fannst fyrst þegar einhver krakkageml- ingur var úti að leika í Smárahlíð í Hrunamannahreppi. Þetta er sirka fimmtánda stykkið sem finnst frá 1980 en vekur auðvitað alltaf at- hygli,“ segir Guðríður. Sveppurinn sjálfur er eins og köngulóarvefur eða rörakerfi, sem vex neðanjarðar en hvítu boltarnir í raun aldin sveppanna. Það sé ætt meðan það er enn ungt og hvítt. Risasveppur á Austfjörðum  Jötungíman vegur fjögur kíló  Finnst af og til hérlendis Stór Eins og sést er sveppurinn 102 cm í ummál eða á við strandbolta. Jöt- ungíma er stærsti sveppur í heimi og getur náð allt að 3 metrum í ummál. Bolti Þórunnborg Jónsdóttir með sveppinn stóra, sem vegur rúm fjögur kíló og er 102 cm að ummáli. Sveppasúpa í öll mál út árið, segir húsbóndinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.