Morgunblaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 2020
Þetta sagði Styrmir Gunnarssonum veiruhorfur landsmanna í
gær:
Við lestur fjölmiðla í morgun,bæði innlendra og erlendra,
má sjá, að alvara lífsins vegna kór-
ónuveirunnar er að byrja fyrir al-
vöru.
Á forsíðu Morg-unblaðsins má
sjá, að erlendir
ferðamenn sem ætl-
uðu að koma hing-
að til lands hafa af-
bókað í verulegum
mæli. Það hefur svo
aftur þau áhrif, að
verzlanir sem
byggja á viðskiptum þeirra stefna
að lokun og uppsögnum starfs-
fólks.
Innlendar ferðaskrifstofur íhugaað fella niður ferðir til annarra
landa, sem stefnt hafði verið að. Á
fréttavef RÚV má sjá, að dönsk
stjórnvöld ráða fólki þar í landi frá
ferðum til Íslands vegna sóttkvíar
við komuna hingað og Daily Tele-
graph í London segir í morgun, að
sérfræðingar búist við nýrri bylgju
veirunnar í vetur.
Fæst af þessu kemur á óvart –en nú er komið að því.
Það er augljóst að þetta verður
erfitt haust og vetur.
Morgunblaðið segir líka frá þvíað mikil ásókn sé í
greiðsluhlé.
Bezt fer á því að talað verði
hreint út um þessi vandamál og að
ekki verði reynt að gera lítið úr
þeim.
Það er ekki við hæfi á tímumsem þessum að byggja upp
óraunhæfar væntingar.“
Styrmir
Gunnarsson
Blæs ekki byrlega
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Umsóknir um alþjóðlega vernd í
júlímánuði voru alls 106 talsins og
hafa ekki verið fleiri í einum mán-
uði síðan í ágúst 2017, þegar 154
umsóknir bár-
ust.
Rétt um 90
manns sóttu um
vernd í janúar
og febrúar, áður
en ferðatak-
markanir vegna
kórónuveiru-
faraldursins
tóku gildi, en í
mars voru þær
58, fimm í apríl, fjórar í maí og 19 í
júní síðastliðnum.
„Ágúst hefur ekki farið jafn-
hratt af stað og júlí, svo það verð-
ur erfitt að sjá hvernig þróunin
verður,“ segir Þórhildur Hagalín,
upplýsingafulltrúi Útlendinga-
stofnunar.
Þó sé ljóst að sóttvarnareglur
sem settar voru 27. mars hafi haft
þau áhrif að framboð á flugi til
landsins hrundi með þeim afleið-
ingum að færri hælisleitendur
sóttu um vernd.
Í júlímánuði bárust flestar
verndarumsóknir frá Írökum (37),
næstflestar frá Sýrlendingum (26)
og þar á eftir frá Nígeríumönnum
(9).
„Mun fleiri Írakar og Sýrlend-
ingar komu í júlí en á undan-
förnum mánuðum. Þessir ein-
staklingar eru líklega að koma
hingað eftir dvöl í Evrópu,“ segir
Þórhildur.
Engar umsóknir bárust frá
Venesúela í júlí en á þremur
fyrstu mánuðum ársins voru flest-
ir umsækjendur þaðan. Þórhildur
segir að ferðatakmarkanir séu lík-
leg skýring vegna þessa.
Metár í hælisveitingum?
323 einstaklingar hafa fengið
vernd á Íslandi það sem af er ári
en samtals fengu 376 ein-
staklingar hæli árið 2019. Þórhild-
ur segir að fjöldi Venesúelabúa
sem sótt hafa um vernd hér á landi
eigi sinn þátt í fjölgun hæl-
isumsókna.
„Síðasta ár var metár í veit-
ingum en nú erum við stödd í júlí
og 323 einstaklingar hafa þegar
fengið vernd. Stærsti hópurinn er
Venesúelabúar en þar á eftir koma
Írakar og Afganir,“ segir Þórhild-
ur. Útlendingastofnun hafi aftur-
kallað töluverðan fjölda ákvarðana
í ljósi aðstæðna. veronika@mbl.is
Ekki fleiri umsókn-
ir um vernd í 3 ár
106 sóttu um vernd á Íslandi í júlí
Þórhildur
Hagalín
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Mati á umhverfisáhrifum fyrirhug-
aðs fimm þúsund tonna fiskeldis
Landeldis ehf. vestan Þorlákshafnar
er lokið og eftir yfirferð Skipulags-
stofnunar er ekkert því til fyrirstöðu
að framkvæmdaraðili sæki um fram-
kvæmdarleyfi að uppfylltum skil-
yrðum og athugasemdum.
Skipulagsstofnun segir í áliti sínu
að áhrif framkvæmdarinnar verði
ekki verulega neikvæð. Ljóst sé að
um sé að ræða umfangsmikil mann-
virki þannig að neikvæðu áhrifin
tengist helst ásýndarbreytingum
vegna þeirra auk útrásar affalls-
vatns til sjávar. Með vönduðu fyr-
irkomulagi mannvirkja verði hægt
að draga úr neikvæðum áhrifum
framkvæmda á ásýnd.
Landeldi ehf. hyggst reisa
fiskeldisstöð til þauleldis laxfiska,
lax, bleikju og urriða/sjóbirtings upp
í sláturstærð á sjávarlóð við Laxa-
braut í Þorlákshöfn sem tilheyrir
sveitarfélaginu Ölfusi.
Frummatsskýrsla Landeldis ehf.
um umhverfisáhrifin var kynnt
snemma á þessu ári og leitað um-
sagna um hana. Endanleg mats-
skýrsla var lögð fram í lok maí og
hefur síðan verið til skoðunar hjá
Skipulagsstofnun sem nú hefur lokið
umfjöllun sinni.
Neikvæð áhrif helst ásýndarbreyting
Mati á umhverfisáhrifum fimm þúsund tonna fiskeldis við Þorlákshöfn lokið
Þorlákshöfn Tölvumynd af eldinu.
Baðinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
Sumaropnun:
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga LOKAÐ
2
0
0
0
—
2
0
2
0