Morgunblaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 2020 ALVÖRU VERKFÆRI 145 EITTRAFHLÖÐUKERFI YFIR VERKFÆRI VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is vfs.is Þorláks helga biskups og þar er þess getið að hann hafi hrunið ofan á naut en eitt þeirra hafi bjargast fyrir heit á Þorlák,“ segir hún. Í sumar var haldið áfram með rannsókn á þessum helli og torfhlað- inni tóft framan við hann. „Minj- arnar eru á talsvert miklu dýpi sem gerir aðgengi erfiðara en ella. Feng- in var vélgrafa til þess að grafa niður á minjarnar og aðstoða við að af- hjúpa þær. Í ljós kom stór torfhlaðin bygging sem er framan við hellinn. Ekki er búið að grafa í gólflög tóft- arinnar og því ekki hægt að segja til um það á þessu stigi hvaða hlutverki hún hefur gegnt. Rannsókn inni í hellinum sjálfum er heldur ekki haf- in, að öðru leyti en því að búið er að gera þrívíddarlíkan af honum sem hægt verður að nota til þess að skoða hann nánar, gerð hans og stærð,“ segir Kristborg. Hún segir að svo virðist sem hellirinn hafi verið graf- inn út um miðja 10. öld og hann kom- inn úr notkun nokkru fyrir 1206. Einstök varðveisla Tóftin framan við hellinn er mjög heilleg vegna þess að hún hefur fyllst af hruni úr þaki (og að hluta til veggj- um) og svo virðist hún hafa verið fyllt af sandi. Veggir hennar hafa því varðveist að miklu leyti og eru þeir allt að 1,5 m háir innanmáls þar sem þeir eru hæstir. Er það einstök varð- veisla á torfhlöðnu mannvirki sem er yfir 800 ára gamalt. Ekki komu margir gripir í ljós við uppgröft sum- arsins en þó fannst laglegur, skreytt- ur bronsgripur auk annarra hvers- dagslegri gripa á borð við brýni. Auk uppgraftarsvæðis framan við hellismunna var grafinn skurður við munna annars hrunins hellis, við hlið meints Nautahellis. Þar komu í ljós yngri minjar sem líklega eru frá 14.- 15. öld. Þær geta bent til þess að þessi tiltekni hellir hafi verið lengur í notkun en Nautahellir eða að hluti hans hafi verið endurnýttur eftir að hann hrundi en ekki liggur ljóst fyrir hvenær það var. Athuganir sem gerðar voru fyrr í sumar benda til þess að mikill fjöldi manngerðra hella hafi verið í túninu í Odda en þeir hafa ýmist hrunið eða lokast/verið lokað. M.a. eru sterkar vísbendingar um að hellar hafi verið á tveimur stöðum í Gammabrekku, en svo nefnist hæsti hóllinn í túninu. Fleiri óþekktir hellar? Kristborg segir að gerðar hafi ver- ið tilraunir til þess að sannreyna til- gátur um lokaða hella með einni gerð jarðsjár (GPR) og verði spennandi að sjá hvort mælingarnar sýni hol- rými þar sem útlit er fyrir að hell- arnir séu. Enn á eftir að vinna úr rannsókn- argögnum sumarsins og ákveða í kjölfarið hver næstu skref verða. Ljóst er að rannsókn á helli og tóft framan við hann heldur áfram og frekari rannsóknir verða gerðar á meintri seltóft. Kristborg segir einn- ig mikilvægt að halda áfram að kort- leggja útbreiðslu manngerðra hella í túninu og kanna aldur þeirra en það séu ákveðnar vísbendingar í þá átt að þeir tilheyri valdatíma Oddaverja, eða fram til um 1300. Manngerður hellir frá 10. öld  Rannsókn í Odda á Rangárvöllum miðar vel  Sjónum beint að ævafornum manngerðum hellum  Oddi var eitt helsta höfðingja- og menntasetur Íslands til forna  Oddaverjar voru mikil valdaætt Ljósmynd/Fornleifastofnun Íslands Oddi á Rangárvöllum Sögufrægur kirkjustaður, menntasetur og valdamiðstöð Oddaverja á þjóðveldisöld. Frægastir þeirra eru Sæmundur fróði og Jón Loftsson sem tók Snorra Sturluson í fóstur. Yfirlitsmyndin sýnir uppgraftarsvæði sumarsins. Efst er kirkjan í Odda sem reist var 1924. Minjar Uppgraftarsvæði sumarsins. Sjá má glitta í hellismunnann. Nautahellir? Séð inn í hellinn sem að líkindum er frá 10. öld SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Fyrstu niðurstöður rannsókna sum- arsins lofa mjög góðu um fram- haldið,“ segir Kristborg Þórsdóttir fornleifafræðingur sem stýrir forn- leifarannsókn í Odda á Rangár- völlum. Þar var eitt helsta mennta- og höfðingjasetur Íslendinga á þjóð- veldisöld. Oddarannsóknin er umfangsmikið rannsóknarverkefni sem hefur að markmiði að varpa ljósi á ritmenn- ingu á staðnum á miðöldum með áherslu á tímabilið 1100 til 1300. Verkefnið hlaut styrk í vor úr sjóðn- um Ritmenning íslenskra miðalda (RÍM). Það skiptist í þrjá verkþætti: 1) fornleifarannsókn, 2) umhverfi og mannvist og 3) miðstöðin Oddi (valda-, kirkju- og lærdómsmiðstöð). Rannsóknin er margþætt en mesta áherslan er á að varpa ljósi á það hverjar efnahagslegar undirstöður miðstöðvarinnar í Odda voru. „Verkefnið er lagt upp til þriggja ára og er það því rétt að byrja,“ segir Kristborg. Hún segir að fyrr í sumar hafi fundist mjög fornleg tóft þar sem heita Kampastaðir í landi Odda og sagnir eru um að hafi verið sel og/ eða býli fyrr á öldum. „Fyrstu athug- anir á þessari tóft voru gerðar með kjarnabor á dögunum og virðast þær benda til þess að þar hafi verið árs- tíðabundin búseta sem gefur ein- dregið til kynna að þar hafi verið sel. Ekki er búið að aldursgreina rústina námkvæmlega en afar líklegt er að hún sé frá því tímabili sem er til um- fjöllunar í Oddarannsókninni.“ Nokkrir manngerðir hellar Í túninu í Odda eru nokkrir þekkt- ir manngerðir hellar, þar af þrír sem hafa hrunið. Kristborg segir að við forrannsókn sem fram fór árið 2018 hafi verið komið niður á áður óþekkt- an uppistandandi manngerðan helli sem hafi að öllum líkindum tengst svonefndum Nautahelli. „Sá hellir er nefndur í jarteinabók
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.