Morgunblaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 2020 raun bara enn í skoðun. Við eigum eftir að ákveða hvað við gerum í því,“ segir Jóhannes og bætir við að auk Roadhouse sé framtíð Saffran á Bíldshöfða í óvissu. Í upphafi árs voru Saffran-staðirnir fjórir talsins. „Við lokuðum staðnum í Bæjar- hrauni fyrir kórónuveiruna og af öðrum ástæðum. Hann verður ekki opnaður aftur. Í faraldrinum ákváðum við síðan að loka staðnum á Bíldshöfða og höfum frá þeim tíma einungis verið með tvo Saffran-staði. Það getur vel verið að það verði svo- leiðis áfram enda eiga þeir alveg að geta þjónustað þá sem vilja kaupa mat þaðan. Varðandi staðinn á Bíldshöfða þá erum við í ákveðnum pælingum. Það er til dæmis mögu- legt að nýr staður verði opnaður eða að við losum húsnæðið. Við erum að skoða ýmsa kosti í stöðunni,“ segir hann. Náðu að halda dampi Ljóst er að heimsfaraldur kórónu- veiru kemur einna verst niður á rekstraraðilum veitingastaða. Þá hafa fjarlægðarmörk og fjöldatak- markanir sett stórt strik í reikning- inn. „Þetta setur okkur takmörk um hversu mörgum er hægt að taka á móti, en þetta hefur skánað mikið frá því að þetta var sem verst fyrr á árinu,“ segir Jóhannes og bætir við að óvissan sé verst. Af þeim sökum eiga rekstraraðilar erfitt með að gera áætlanir fram í tímann. „Við getum svo sem lítið kvartað. Ég hugsa frekar til vina minn í ferða- þjónustu og þeirra sem reka skemmtistaði. Það er erfitt að vera í þeirra sporum. Við erum bjartsýn og vonum að það komist ákveðið jafn- vægi á þetta. Það eru hins vegar þessar sveiflur fram og til baka sem reynast okkur erfiðar.“ Að hans sögn gekk ágætlega að halda dampi í gegnum ástandið. Þá sótti fjöldi viðskiptavina veit- ingastaði keðjunnar í júní- og júlí- mánuði. „Þessir mánuðir voru mjög góðir og viðspyrnan var sterk eftir að losað var um höft og fólki fór að líða vel aftur. Nú eru aftur komnar takmarkanir en þó miklu minni en voru í byrjun árs. Við vonum að þetta taki fljótt af og við sjáum tak- markanir fara upp aftur sem fyrst. Fyrst og fremst snýst þetta þó um heildina og þess vegna verðum við að halda veirunni í skefjum,“ segir Jóhannes. Stærðarhagkvæmni hjálpar Fyrr á þessu ári var greint frá samruna fyrirtækjanna FoodCo og Gleðipinna. Jóhannes hafði áður séð um rekstur síðarnefnda fyrir- tækisins. Voru fyrirtækin sameinuð með það fyrir augum að ná fram aukinni stærðarhagkvæmni á veit- ingamarkaði. Aðspurður segir Jó- hannes að umræddur samruni hafi auðveldað stöðunum að komast í gegnum ástandið. „Í raun og veru hafði verið mjög þröngt á veit- ingamarkaði í aðdraganda kór- ónuveirunnar. Það helgaðist af mikl- um vexti í ferðaþjónustu og offjárfestingu í veitingageiranum. Á þessum tíma fór af stað mikið launa- skrið ásamt verðstríði staða á mark- aðnum. Af þeim sökum þótti okkur eðlilegt að sameina og ná þannig fram aukinni rekstrarhagkvæmni. Það hefði gagnast okkur fyrir veir- una og gerir enn frekar núna. Það er margt fengið með stærðinni þegar kostnaðarliðir vinna á móti þér,“ segir Jóhannes sem kveðst bjart- sýnn þrátt fyrir erfiða tíma. Þá hafi síðustu mánuðir reynst dýrmætur lærdómur. „Menn koma misvel inn í svona ástand og það borgar sig að hafa verið skynsamur enda eiga menn þá meira súrefni. Ég er bjart- sýnn á að það komist jafnvægi á markaðinn hér heima aftur. Þetta er ákveðinn lærdómur sem maður gengur í gegnum og tekur með sér áfram.“ Gleðipinnar hafa lokað og selt veitingastaði í faraldrinum  Drógu saman seglin þegar faraldurinn skall á  Skynsemi í rekstri veitir fyrirtækinu súrefni Morgunblaðið/Eggert Veitingamaður Jóhannes stofnaði á sínum tíma Hamborgarafabrikkuna ásamt Sigmari Vilhjálmssyni. VIÐTAL Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Fyrir unga viðskiptamenn eins og sjálfan mig hefur þetta ástand verið mjög lærdómsríkt,“ segir Jóhannes Ásbjörnsson, einn eigenda Gleði- pinna, um áhrif heimsfaraldurs kór- ónuveiru á rekstur fyrirtækisins. Gleðipinnar hafa ekki farið varhluta af ástandinu sem skapast hefur sök- um veirunnar. Loka hefur þurft nokkrum stöðum auk þess sem tekjur hafa dregist umtalsvert sam- an það sem af er ári. Undir Gleðipinna heyra átta vöru- merki og eru staðirnir á þriðja tug talsins. Aðspurður segir Jóhannes að stöðunum hafi fækkað á fyrstu átta mánuðum ársins. Í sumum til- fellum er hægt að rekja það beint til faraldursins. „Við erum búin að loka Eldsmiðjunni á Bragagötu og á Laugavegi. Síðarnefndi staðurinn er nú þegar kominn í eigu annars aðila. Þá var Kaffivagninn Grandagarði sömuleiðis seldur,“ segir Jóhannes en tekur fram að ákveðnir staðir hafi haldið dampi. Nefnir hann í því sam- hengi Aktu Taktu, Hamborg- arafabrikkuna, Shake & Pizza og American Style. Þá er starfsemi Pít- unnar í Skipholti áfram óbreytt og hélst óbreytt í gegnum faraldurinn. „Aktu Taktu og American Style héldu sér alveg. Hins vegar þurfti að gera ákveðnar breytingar á hinum stöðunum þegar veiran var að stríða okkur sem mest,“ segir Jóhannes. Framtíð staða í óvissu Auk framangreindra staða eru Gleðipinnar með pítsustaðinn Black- box, Saffran og Roadhouse í rekstri. Síðastnefnda staðnum var lokað í miðjum faraldri og hefur ekki verið opnaður aftur. Spurður hvort Road- house verði opnað að nýju segir Jó- hannes að það sé enn óljóst. „Það er í N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Glæsileg borðstofuhúsgögnum frá CASÖ í Danmörku Vegna samkomutakmarkana sem nú eru í gildi og í ljósi þeirrar þró- unar sem seinni bylgja Covid-19 veldur hefur verið ákveðið að fresta sýningunni Verk og vit, sem halda átti í Íþrótta- og sýningar- höllinni í Laugardal 15.-18. októ- ber, fram til 15.-18. apríl 2021. „Samkvæmt núgildandi reglum heilbrigðisráðherra eru fjöldatak- markanir miðaðar við 100 manns. Það er viðbúið að fjöldatakmark- anir verði áfram í gildi. Reglurnar eru almennt gefnar út til tveggja vikna í senn en ljóst er að sýning- arhaldari og sýnendur þurfa lengri tíma til að undirbúa sýninguna,“ segir í tilkynningu. Metaðsókn var að sýningunni árið 2018 þegar um 25 þúsund gestir létu sjá sig og yfir hundrað sýnendur kynntu vörur sínar og þjónustu. Sýningunni Verk og vit frestað til vors
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.