Morgunblaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 2020
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
TAKE AWAY
25% afsláttur
af sérstökum Take Away matseðli
Pantaðu á
www.matarkjallarinn.is
Boða nýjar refsiaðgerðir
Leiðtogar Evrópusambandsins hafna niðurstöðu forsetakosninganna í Hvíta-
Rússlandi Lúkasjenkó felur ríkisstjórn sinni að binda endi á mótmælin
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Leiðtogar Evrópusambandsríkj-
anna höfnuðu í gær niðurstöðum for-
setakosninganna í Hvíta-Rússlandi,
sem haldnar voru 9. ágúst síðastlið-
inn, og sögðu það augljóst að kosn-
ingarnar hefðu ekki farið fram með
lýðræðislegum hætti. Boðuðu þeir
jafnframt nýjar viðskiptaþvinganir á
hendur lykilmönnum í ríkisstjórn Al-
exanders Lúkasjenkó, forseta Hvíta-
Rússlands.
Lúkasjenkó fyrirskipaði í gær
ríkisstjórn sinni að koma í veg fyrir
frekar mótmæli gegn niðurstöðu
kosninganna, en andstæðingar hans
hafa staðið fyrir fjölmennum mót-
mælum gegn forsetanum á hverjum
degi frá því greint var frá niðurstöðu
kosninganna. „Það eiga ekki að vera
óeirðir í Minsk. Fólkið er þreytt;
fólkið heimtar frið og ró,“ sagði Lúk-
asjenkó á fundi þjóðaröryggisráðs
Hvíta-Rússlands í gær.
Þá fyrirskipaði Lúkasjenkó landa-
mæraeftirliti landsins að herða eftir-
lit með landamærunum til þess að
koma í veg fyrir að fólk, vígbúnaður
eða fjármagn gæti komist inn í land-
ið til þess að ýta undir frekari mót-
mæli gegn sér. Þá ætti varnarmála-
ráðuneytið að vera á sérstöku
varðbergi gagnvart Litháen og Pól-
landi, en bæði ríkin eru í Atlants-
hafsbandalaginu.
Undirbúa svartan lista
Charles Michel, forseti leiðtoga-
ráðs Evrópusambandsins, sagði eftir
fjarfund leiðtoganna að Evrópusam-
bandið stæði með hvítrússnesku
þjóðinni. Sagði Michel að ríkin
myndu á næstunni setja fjölmarga
einstaklinga á svartan lista vegna
ástandsins í Hvíta-Rússlandi, en
þeim er gefið að sök að hafa átt þátt í
að kveða niður mótmæli gegn Lúk-
asjenkó með ofbeldi, sem og að taka
þátt í kosningasvikum. „Hvít-Rússar
eiga betra skilið. Þeir eiga skilið lýð-
ræðislegan rétt sinn til þess að velja
sér forystu og móta framtíð sína,“
sagði Michel um kosningarnar.
Angela Merkel Þýskalandskansl-
ari ræddi við Vladimír Pútín Rúss-
landsforseta um ástandið í fyrradag,
en Merkel sagði eftir leiðtogafund-
inn í gær að Lúkasjenkó hefði hafnað
símtali frá sér. „Mér finnst það mið-
ur,“ sagði Merkel. „Það er bara hægt
að miðla málum þegar þú ert í sam-
bandi við báðar hliðar.“
Merkel lagði einnig á það áherslu
að augljóst væri að lög og reglur
hefðu verið brotin við framkvæmd
kosninganna. Því væri brýnt að
Hvít-Rússar fengju sjálfir að
ákvarða framtíð sína.
AFP
Leiðtogafundur Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna funduðu í gær í gegn-
um fjarfundabúnað og ræddu þar stöðu mála í Hvíta-Rússlandi.
Ibrahim Boubac-
ar Keita, forseti
Malí, sagði í gær
af sér í þeirri von
að hægt yrði að
komast hjá blóðs-
úthellingum.
Keita er enn í
haldi uppreisnar-
manna úr röðum
hersins, en for-
svarsmenn valda-
ránsins hafa heitið því að boðað
verði til nýrra kosninga sem fyrst.
Boubou Cisse, forsætisráðherra
Malí, er einnig á valdi uppreisnar-
manna.
Keita sagði í sjónvarpsávarpi
stuttu eftir miðnætti í fyrrinótt að
hann teldi sig ekki eiga annarra
kosta völ en að segja af sér. Fjöl-
menni safnaðist saman á götum Ba-
mako og fagnaði afsögn Keita, en
mikill órói hefur verið í stjórnmála-
lífi Malí síðustu mánuði.
Nágrannaríki Malí fordæmdu í
gær valdarán hersins sem og allar
breytingar á stjórnarfari landsins
sem væru ekki í samræmi við
stjórnarskrá þess.
Antonio Guterres, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
kallaði eftir því í gær að Keita og
Cisse yrði sleppt þegar í stað og án
nokkurra skilyrða, og öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna ræddi ástandið
í gær.
Heita nýj-
um kosn-
ingum
Ibrahim
Boubacar Keita
Keita segir af sér
til að afstýra átökum
Taílenskur dómstóll gaf í gær út handtökuskip-
anir á hendur sex forvígismönnum mótmæla sem
staðið hafa yfir í landinu undanfarnar vikur.
Mótmælendurnir hafa krafist aukinna lýðræðis-
umbóta og jafnvel gert athugasemdir við emb-
ætti konungsins, sem þykir mikil goðgá.
Þrátt fyrir handtökuskipanirnar komu stúd-
entar saman í gær í höfuðborginni Bangkok til
þess að sýna stuðning sinn við mótmælin í verki.
Handtökuskipanir á forsprakka mótmælanna
AFP
Recep Tayyip
Erdogan Tyrk-
landsforseti hét
því í gær að
hann myndi ekki
láta undan „sjó-
ræningjum“
hvað varðaði
leið að orkuauð-
lindum í austur-
hluta Miðjarð-
arhafs.
Evrópusambandið hefur und-
anfarna daga þrýst á um að Tyrk-
ir láti þegar í stað af leit sinni að
olíu- og jarðgasi, sem sambandið
segir að eigi sér stað innan efna-
hagslögsögu Kýpverja og Grikkja.
„Við erum í 100% rétti. Ef við
látum undan sjóræningjunum
munum við ekki geta horfst í
augu við kynslóðir framtíð-
arinnar,“ sagði Erdogan. Hét
hann því að Tyrkir myndu verja
„rétt“ sinn gagnvart hótunum
„nýlenduveldanna“.
TYRKLAND
Munu ekki láta und-
an „sjóræningjum“
Recep Tayyib
Erdogan