Morgunblaðið - 20.08.2020, Side 36

Morgunblaðið - 20.08.2020, Side 36
Elínrós Líndal elinros@mbl.is Sjöfn stofnaði fyrirtækið Stroff ásamt eiginmanni sínum Grétari Karli Arasyni í mars árið 2017 og síð- an þá hafa viðskiptin blómstrað. Hún segir áhuga landsmanna á prjónaskap í raun aldrei hafa verið meiri en einmitt núna. ,,Ég byrjaði sjálf að prjóna sem barn en átti alltaf erfitt með að prjóna eftir uppskriftum. Ég var góð að prjóna en fannst uppskriftirnar erfiðar. Ég hef alltaf prjónað mikið og svo þegar ég gekk með annað barnið mitt þá fann ég ekkert sem mér leist á í blöðunum þannig að ég ákvað bara að setjast niður og prófa að skrifa niður aðeins einfaldari upp- skriftir. Hugmyndin kom reyndar frá Grétari manni mínum og fannst mér hún galin í fyrstu.“ Hefur prjónað 300 peysur Síðan þá hefur hún skrifað niður fjöldann allan af uppskriftum. „Ég skrifaði einhverjar 130 upp- skriftir og er það hluti af vörunum sem við bjóðum upp á í Stroff í dag.“ Hvernig lýsir þú muninum á þín- um uppskriftum og þeim sem þú fannst á netinu eða í prjónabókum og blöðum? ,,Ég nota meira mannamál og reyni að útskýra með setningum. Ég reyni líka að segja af hverju á að gera hlutina á þessa vegu. Ég nota helst ekki skammstafanir og mínar upp- skriftir eru mjög aðgengilegar öllum sem hafa áhuga á að prjóna.“ Hvað hefur þú prjónað margar peysur um ævina? ,,Ég hef örugglega prjónað í kring- um 300 peysur.“ Á hvaða aldri eru viðskiptavinir ykkar? „Það eru rosalega margar ungar stelpur að prjóna en aldurshópurinn sem verslar hjá okkur er allt frá níu ára til 96 ára. En ég finn að ástandið í dag ýtir undir að fólk finni sér áhuga- mál og prjónaskapur er dásamleg leið til að tengjast sjálfum sér og sitja í rólegheitunum og bara hlusta á hljóðbók sem dæmi þegar maður prjónar. Ég er með eina sérstaklega góða byrjendauppskrift sem kostar ekkert á síðunni okkar stroff.is. Þessi upp- skrift er mikið notuð fyrir þá sem vilja koma sér af stað.“ Una ný lína fyrir börn Er eitthvað nýtt í gangi sem þú vilt deila með lesendum? ,,Já, hún Salka Sól söngkona var að byrja að vinna með okkur. Hún kemur til með að taka nokkrar vaktir í mánuði en hefur einnig verið að þróa með okkur vörulínu fyrir litlar stelpur. Ég á tvo stráka og mig vantaði uppskriftir fyrir litlar stelpur líka. Salka er mjög frjó í hugsun og fram- kvæmir hlutina vel og vandlega. Svo úr varð vörulína sem heitir Una. Í vörulínunni er uppskrift að eyrna- bandi, krakkapeysu, hnepptri peysu, samfellu, húfu, bleiubuxum og barna- kjól. Síðan bjóðum við upp á eina full- orðinspeysu í þessari línu líka, sem er falleg í stíl við fatnað barnsins.“ Sjöfn segir að þau hjónin séu alltaf tvö í versluninni og því fagni þau að- komu Sölku Sólar í verslunina. Því mörg handtök séu á bak við rekstur af þessu tagi. Bæði þurfi að halda áfram að skrifa niður og þróa uppskriftir. Að finna garn, sinna bókhaldi og net- versluninni svo eitthvað sé nefnt. Æfingin skapar meistarann Áttu ráð fyrir þá sem hefur alltaf dreymt um að prjóna en kunna það ekki? „Já, bara að koma í verslunina og fá aðstoð. Við erum með einfaldar uppskriftir og getum leiðbeint fólki. Það er að ýmsu að huga. Mér finnst yfirleitt reglan vera þannig að ef fólk hefur áhuga, þá getur það prjónað. Ég hef séð marga sem eru góðir að prjóna en hafa lítinn áhuga á því. Þannig að áhuginn er það sem skiptir mestu máli. Æfingin skapar svo meistarann. Þegar þú prjónar ertu bara með þig og prjónana þína. Það fara marg- ir klukkutímar í að prjóna, hugsa og finna út hvernig hlutirnir eiga að vera. Mér finnst það einstök stund þegar til dæmis peysa verður til. Þetta er fallegt áhugamál sem hentar ástandinu í dag ágætlega.“ Una Sjöfn fékk Sölku Sól til að hanna Unu prjónalínu sem ætluð er stúlkum. Í línunni má finna kjóla, bleyjubuxur, húfur og fleira. Fallegar vörur sem allir ættu að skoða. Skipulag Taska sem býður upp á gott skipulag. Vörur Það er ýmislegt sem prjónarinn getur verslað sér í Stroff. Sjöfn og Salka Sól þróa nýjar prjónauppskriftir Hönnun Salka Sól og Sjöfn vinna vel saman. Sjöfn Kristjánsdóttir, uppeldis- og mennt- unarfræðingur, er annar tveggja eigenda Stroff – Petit Knitting. Hún hefur prjónað 300 peysur sjálf og skrifað yfir hundrað uppskriftir sem þykja einfaldar og góðar að fara eftir. Fallegt Vörur úr Stroff.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.