Morgunblaðið - 20.08.2020, Qupperneq 36
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
Sjöfn stofnaði fyrirtækið Stroff
ásamt eiginmanni sínum Grétari
Karli Arasyni í mars árið 2017 og síð-
an þá hafa viðskiptin blómstrað.
Hún segir áhuga landsmanna á
prjónaskap í raun aldrei hafa verið
meiri en einmitt núna.
,,Ég byrjaði sjálf að prjóna sem
barn en átti alltaf erfitt með að
prjóna eftir uppskriftum. Ég var góð
að prjóna en fannst uppskriftirnar
erfiðar. Ég hef alltaf prjónað mikið
og svo þegar ég gekk með annað
barnið mitt þá fann ég ekkert sem
mér leist á í blöðunum þannig að ég
ákvað bara að setjast niður og prófa
að skrifa niður aðeins einfaldari upp-
skriftir. Hugmyndin kom reyndar frá
Grétari manni mínum og fannst mér
hún galin í fyrstu.“
Hefur prjónað 300 peysur
Síðan þá hefur hún skrifað niður
fjöldann allan af uppskriftum.
„Ég skrifaði einhverjar 130 upp-
skriftir og er það hluti af vörunum
sem við bjóðum upp á í Stroff í dag.“
Hvernig lýsir þú muninum á þín-
um uppskriftum og þeim sem þú
fannst á netinu eða í prjónabókum og
blöðum?
,,Ég nota meira mannamál og
reyni að útskýra með setningum. Ég
reyni líka að segja af hverju á að gera
hlutina á þessa vegu. Ég nota helst
ekki skammstafanir og mínar upp-
skriftir eru mjög aðgengilegar öllum
sem hafa áhuga á að prjóna.“
Hvað hefur þú prjónað margar
peysur um ævina?
,,Ég hef örugglega prjónað í kring-
um 300 peysur.“
Á hvaða aldri eru viðskiptavinir
ykkar?
„Það eru rosalega margar ungar
stelpur að prjóna en aldurshópurinn
sem verslar hjá okkur er allt frá níu
ára til 96 ára. En ég finn að ástandið í
dag ýtir undir að fólk finni sér áhuga-
mál og prjónaskapur er dásamleg
leið til að tengjast sjálfum sér og sitja
í rólegheitunum og bara hlusta á
hljóðbók sem dæmi þegar maður
prjónar.
Ég er með eina sérstaklega góða
byrjendauppskrift sem kostar ekkert
á síðunni okkar stroff.is. Þessi upp-
skrift er mikið notuð fyrir þá sem
vilja koma sér af stað.“
Una ný lína fyrir börn
Er eitthvað nýtt í gangi sem þú vilt
deila með lesendum?
,,Já, hún Salka Sól söngkona var
að byrja að vinna með okkur. Hún
kemur til með að taka nokkrar vaktir
í mánuði en hefur einnig verið að
þróa með okkur vörulínu fyrir litlar
stelpur.
Ég á tvo stráka og mig vantaði
uppskriftir fyrir litlar stelpur líka.
Salka er mjög frjó í hugsun og fram-
kvæmir hlutina vel og vandlega. Svo
úr varð vörulína sem heitir Una. Í
vörulínunni er uppskrift að eyrna-
bandi, krakkapeysu, hnepptri peysu,
samfellu, húfu, bleiubuxum og barna-
kjól. Síðan bjóðum við upp á eina full-
orðinspeysu í þessari línu líka, sem er
falleg í stíl við fatnað barnsins.“
Sjöfn segir að þau hjónin séu alltaf
tvö í versluninni og því fagni þau að-
komu Sölku Sólar í verslunina. Því
mörg handtök séu á bak við rekstur
af þessu tagi.
Bæði þurfi að halda áfram að
skrifa niður og þróa uppskriftir. Að
finna garn, sinna bókhaldi og net-
versluninni svo eitthvað sé nefnt.
Æfingin skapar meistarann
Áttu ráð fyrir þá sem hefur alltaf
dreymt um að prjóna en kunna það
ekki?
„Já, bara að koma í verslunina og
fá aðstoð. Við erum með einfaldar
uppskriftir og getum leiðbeint fólki.
Það er að ýmsu að huga. Mér
finnst yfirleitt reglan vera þannig að
ef fólk hefur áhuga, þá getur það
prjónað. Ég hef séð marga sem eru
góðir að prjóna en hafa lítinn áhuga á
því. Þannig að áhuginn er það sem
skiptir mestu máli. Æfingin skapar
svo meistarann.
Þegar þú prjónar ertu bara með
þig og prjónana þína. Það fara marg-
ir klukkutímar í að prjóna, hugsa og
finna út hvernig hlutirnir eiga að
vera. Mér finnst það einstök stund
þegar til dæmis peysa verður til.
Þetta er fallegt áhugamál sem hentar
ástandinu í dag ágætlega.“
Una Sjöfn fékk Sölku Sól til að hanna Unu prjónalínu sem ætluð er stúlkum. Í línunni má finna kjóla, bleyjubuxur, húfur og fleira. Fallegar vörur sem allir ættu að skoða.
Skipulag Taska sem býður upp á gott skipulag.
Vörur Það er ýmislegt sem prjónarinn getur verslað sér í Stroff.
Sjöfn og Salka Sól þróa
nýjar prjónauppskriftir
Hönnun Salka Sól og Sjöfn vinna vel saman.
Sjöfn Kristjánsdóttir,
uppeldis- og mennt-
unarfræðingur, er annar
tveggja eigenda Stroff –
Petit Knitting. Hún hefur
prjónað 300 peysur sjálf
og skrifað yfir hundrað
uppskriftir sem þykja
einfaldar og góðar að
fara eftir.
Fallegt Vörur úr Stroff.