Morgunblaðið - 20.08.2020, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 2020
raun bara enn í skoðun. Við eigum
eftir að ákveða hvað við gerum í
því,“ segir Jóhannes og bætir við að
auk Roadhouse sé framtíð Saffran á
Bíldshöfða í óvissu. Í upphafi árs
voru Saffran-staðirnir fjórir talsins.
„Við lokuðum staðnum í Bæjar-
hrauni fyrir kórónuveiruna og af
öðrum ástæðum. Hann verður ekki
opnaður aftur. Í faraldrinum
ákváðum við síðan að loka staðnum á
Bíldshöfða og höfum frá þeim tíma
einungis verið með tvo Saffran-staði.
Það getur vel verið að það verði svo-
leiðis áfram enda eiga þeir alveg að
geta þjónustað þá sem vilja kaupa
mat þaðan. Varðandi staðinn á
Bíldshöfða þá erum við í ákveðnum
pælingum. Það er til dæmis mögu-
legt að nýr staður verði opnaður eða
að við losum húsnæðið. Við erum að
skoða ýmsa kosti í stöðunni,“ segir
hann.
Náðu að halda dampi
Ljóst er að heimsfaraldur kórónu-
veiru kemur einna verst niður á
rekstraraðilum veitingastaða. Þá
hafa fjarlægðarmörk og fjöldatak-
markanir sett stórt strik í reikning-
inn. „Þetta setur okkur takmörk um
hversu mörgum er hægt að taka á
móti, en þetta hefur skánað mikið
frá því að þetta var sem verst fyrr á
árinu,“ segir Jóhannes og bætir við
að óvissan sé verst. Af þeim sökum
eiga rekstraraðilar erfitt með að
gera áætlanir fram í tímann. „Við
getum svo sem lítið kvartað. Ég
hugsa frekar til vina minn í ferða-
þjónustu og þeirra sem reka
skemmtistaði. Það er erfitt að vera í
þeirra sporum. Við erum bjartsýn og
vonum að það komist ákveðið jafn-
vægi á þetta. Það eru hins vegar
þessar sveiflur fram og til baka sem
reynast okkur erfiðar.“
Að hans sögn gekk ágætlega að
halda dampi í gegnum ástandið. Þá
sótti fjöldi viðskiptavina veit-
ingastaði keðjunnar í júní- og júlí-
mánuði. „Þessir mánuðir voru mjög
góðir og viðspyrnan var sterk eftir
að losað var um höft og fólki fór að
líða vel aftur. Nú eru aftur komnar
takmarkanir en þó miklu minni en
voru í byrjun árs. Við vonum að
þetta taki fljótt af og við sjáum tak-
markanir fara upp aftur sem fyrst.
Fyrst og fremst snýst þetta þó um
heildina og þess vegna verðum við
að halda veirunni í skefjum,“ segir
Jóhannes.
Stærðarhagkvæmni hjálpar
Fyrr á þessu ári var greint frá
samruna fyrirtækjanna FoodCo og
Gleðipinna. Jóhannes hafði áður séð
um rekstur síðarnefnda fyrir-
tækisins. Voru fyrirtækin sameinuð
með það fyrir augum að ná fram
aukinni stærðarhagkvæmni á veit-
ingamarkaði. Aðspurður segir Jó-
hannes að umræddur samruni hafi
auðveldað stöðunum að komast í
gegnum ástandið. „Í raun og veru
hafði verið mjög þröngt á veit-
ingamarkaði í aðdraganda kór-
ónuveirunnar. Það helgaðist af mikl-
um vexti í ferðaþjónustu og
offjárfestingu í veitingageiranum. Á
þessum tíma fór af stað mikið launa-
skrið ásamt verðstríði staða á mark-
aðnum. Af þeim sökum þótti okkur
eðlilegt að sameina og ná þannig
fram aukinni rekstrarhagkvæmni.
Það hefði gagnast okkur fyrir veir-
una og gerir enn frekar núna. Það er
margt fengið með stærðinni þegar
kostnaðarliðir vinna á móti þér,“
segir Jóhannes sem kveðst bjart-
sýnn þrátt fyrir erfiða tíma. Þá hafi
síðustu mánuðir reynst dýrmætur
lærdómur. „Menn koma misvel inn í
svona ástand og það borgar sig að
hafa verið skynsamur enda eiga
menn þá meira súrefni. Ég er bjart-
sýnn á að það komist jafnvægi á
markaðinn hér heima aftur. Þetta er
ákveðinn lærdómur sem maður
gengur í gegnum og tekur með sér
áfram.“
Gleðipinnar hafa lokað og selt
veitingastaði í faraldrinum
Drógu saman seglin þegar faraldurinn skall á Skynsemi í rekstri veitir fyrirtækinu súrefni
Morgunblaðið/Eggert
Veitingamaður Jóhannes stofnaði á sínum tíma Hamborgarafabrikkuna ásamt Sigmari Vilhjálmssyni.
VIÐTAL
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Fyrir unga viðskiptamenn eins og
sjálfan mig hefur þetta ástand verið
mjög lærdómsríkt,“ segir Jóhannes
Ásbjörnsson, einn eigenda Gleði-
pinna, um áhrif heimsfaraldurs kór-
ónuveiru á rekstur fyrirtækisins.
Gleðipinnar hafa ekki farið varhluta
af ástandinu sem skapast hefur sök-
um veirunnar. Loka hefur þurft
nokkrum stöðum auk þess sem
tekjur hafa dregist umtalsvert sam-
an það sem af er ári.
Undir Gleðipinna heyra átta vöru-
merki og eru staðirnir á þriðja tug
talsins. Aðspurður segir Jóhannes
að stöðunum hafi fækkað á fyrstu
átta mánuðum ársins. Í sumum til-
fellum er hægt að rekja það beint til
faraldursins. „Við erum búin að loka
Eldsmiðjunni á Bragagötu og á
Laugavegi. Síðarnefndi staðurinn er
nú þegar kominn í eigu annars aðila.
Þá var Kaffivagninn Grandagarði
sömuleiðis seldur,“ segir Jóhannes
en tekur fram að ákveðnir staðir hafi
haldið dampi. Nefnir hann í því sam-
hengi Aktu Taktu, Hamborg-
arafabrikkuna, Shake & Pizza og
American Style. Þá er starfsemi Pít-
unnar í Skipholti áfram óbreytt og
hélst óbreytt í gegnum faraldurinn.
„Aktu Taktu og American Style
héldu sér alveg. Hins vegar þurfti að
gera ákveðnar breytingar á hinum
stöðunum þegar veiran var að stríða
okkur sem mest,“ segir Jóhannes.
Framtíð staða í óvissu
Auk framangreindra staða eru
Gleðipinnar með pítsustaðinn Black-
box, Saffran og Roadhouse í rekstri.
Síðastnefnda staðnum var lokað í
miðjum faraldri og hefur ekki verið
opnaður aftur. Spurður hvort Road-
house verði opnað að nýju segir Jó-
hannes að það sé enn óljóst. „Það er í
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Glæsileg borðstofuhúsgögnum
frá CASÖ í Danmörku
Vegna samkomutakmarkana sem
nú eru í gildi og í ljósi þeirrar þró-
unar sem seinni bylgja Covid-19
veldur hefur verið ákveðið að
fresta sýningunni Verk og vit, sem
halda átti í Íþrótta- og sýningar-
höllinni í Laugardal 15.-18. októ-
ber, fram til 15.-18. apríl 2021.
„Samkvæmt núgildandi reglum
heilbrigðisráðherra eru fjöldatak-
markanir miðaðar við 100 manns.
Það er viðbúið að fjöldatakmark-
anir verði áfram í gildi. Reglurnar
eru almennt gefnar út til tveggja
vikna í senn en ljóst er að sýning-
arhaldari og sýnendur þurfa lengri
tíma til að undirbúa sýninguna,“
segir í tilkynningu. Metaðsókn var
að sýningunni árið 2018 þegar um
25 þúsund gestir létu sjá sig og yfir
hundrað sýnendur kynntu vörur
sínar og þjónustu.
Sýningunni Verk og vit frestað til vors