Morgunblaðið - 20.08.2020, Qupperneq 28
28 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 2020
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Forsvarsmenn Icelandair Group gera
ráð fyrir því að félagið muni tapa 45
milljörðum króna á yfirstandandi
rekstrarári og flytja u.þ.b. eina millj-
ón farþega yfir tímabilið. Samkvæmt
nýjustu flutningatölum sem félagið
birti í byrjun mánaðarins flutti það
564 þúsund farþega á fyrstu sjö mán-
uðum ársins. Gangi spárnar eftir
munu farþegar félagsins verða ríflega
87 þúsund að meðaltali í mánuði
hverjum fram að áramótum.
Þetta kemur fram í nýrri fjárfesta-
kynningu sem félagið sendi til Kaup-
hallar Íslands rétt fyrir miðnætti á
miðvikudag. Er kynningin ríflega 100
síður og hefur að geyma ítarlega
greiningu á núverandi stöðu félagsins,
þeim árangri sem náðst hefur í samn-
ingum við lánardrottna og samstarfs-
fyrirtæki á borð við Boeing og korta-
færslufyrirtæki sem þjónustað hafa
Icelandair á síðustu árum.
Samkvæmt áætlunum stjórnenda
félagsins er gert ráð fyrir að flug-
markaðurinn muni jafna sig hægt en
örugglega á komandi misserum.
Þannig muni félagið ekki flytja nema
1,4 milljónir farþega á næsta ári. Það
er 40% aukning miðað við spár yfir-
standandi árs en innan við helmingur
þess fjölda sem fyrirtækið flutti árið
2015. Gangi spárnar eftir, sem félagið
segir varfærnar, er gert ráð fyrir að
tap verði einnig af starfseminni á
næsta ári og að það muni nema 6,7
milljörðum króna. Hins vegar er búist
við hröðum viðsnúningi og að á árinu
2022 verði farþegafjöldinn kominn í
2,7 milljónir og hagnaður af starfsem-
inni verði 49 milljónir dollara, jafn-
virði 6,7 milljarða króna. Enn muni
markaðurinn taka við sér á árinu
2023, farþegarnir þá orðnir 3,8 millj-
ónir og hagnaðurinn 96 milljónir doll-
ara, jafnvirði 13,1 milljarðs króna. Ár-
ið 2024 gæti svo boðað mikil tímamót
en þá yrðu farþegarnir orðnir 4,5
milljónir, ríflega fjöldinn sem tók sér
far með félaginu metárið 2019 og
hagnaður verði þá hvorki meira né
minna en 128 milljónir dollara, jafn-
virði 17,5 milljarða króna.
Gangi spáin eftir yrði árið 2024
metár í ýmsum skilningi. Hagnaður-
inn meiri en nokkru sinni fyrr en síð-
ast sló félagið hagnaðarmet árið 2015
þegar það skilaði 111 milljóna dollara
hagnaði. Þegar rýnt er í rekstraráætl-
un félagsins sést að þótt félagið geri
ráð fyrir að flytja nærri 40% fleiri far-
þega á næsta ári gerir það ekki ráð
fyrir að tekjurnar vaxi nema sem
nemur rúmlega 20%. Það sem skýrir
hins vegar að ekki er gert ráð fyrir að
tapið verði nema 15% af því sem það
verður í ár er að áhrif niðurskurðarað-
gerða félagsins munu koma mjög af-
gerandi fram á næsta ári. Þannig
verður launakostnaður 35 milljónum
dollara, jafnvirði 4,8 milljarða króna,
lægri á komandi ári en í ár. Þá vegur
einnig þungt að afskriftir ríflega
helmingast en þær eru 227 milljónir
dollara, jafnvirði 31 milljarðs króna, í
ár skv. áætlun.
Stór samningur við Boeing
Líkt og áður hefur komið fram hef-
ur Icelandair Group náð samningum
við Boeing sem felast í því að félagið
fellur frá kaupum á fjórum 737-MAX-
vélum sem voru hluti af 16 véla pönt-
un sem gengið var frá árið 2013. Þá
hefur félagið einnig tryggt bætur frá
Boeing vegna kyrrsetningar þeirra
MAX-véla sem þegar voru komnar í
flota félagsins áður en þær voru tekn-
ar úr umferð. Í fjárfestakynningunni
kemur fram að félagið meti samkomu-
lagið við Boeing á 260 milljónir doll-
ara, jafnvirði 35,5 milljarða. Er þá
tekið tillit til þeirra jákvæðu áhrifa
sem samkomulagið hefur á lausafjár-
stöðu félagsins og aðra fjárhagslega
stöðu á komandi árum. Hefur félagið
nú í fyrsta sinn staðfest að bæturnar
frá Boeing felast bæði í beinum pen-
ingagreiðslum og auknum afsláttar-
kjörum á þeim sex vélum sem enn á
eftir að afhenda.
Í áætlunum félagsins er ljósi varp-
að á hvernig félagið hyggist ná kostn-
aðarhlutföllum niður. Er það reiknað
sem kostnaður á hvern framboðinn
sætiskílómetra (CASK). Árið 2018 var
kostnaður félagsins 6,9 sent á kíló-
metra, eða 9,4 krónur. Árið 2024 ætlar
félagið að hafa náð kostnaðinum niður
í 8,4 krónur. Í fljótu bragði virðist þar
ekki muna miklu, eða einni krónu. Fé-
lagið hyggst hafa byggt upp framboð
upp á 16 milljarða sætiskílómetra í lok
spátímans og því nemur ætluð hag-
ræðing heilum 16 milljörðum króna.
Athygli vekur að í útreikningum fé-
lagsins er gert ráð fyrir að launa-
kostnaðurinn verði eilítið hærri út frá
sömu mælikvörðum eða 2,2 sent á
hvern framboðinn sætiskílómetra en
kostnaðurinn var 2,1 sent árið 2018.
Mestu munar í þeim sparnaði sem fé-
lagið hyggst ná fram með lægri elds-
neytiskostnaði. Er gert ráð fyrir að
hann lækki um 35%. þar munu MAX-
vélarnar fyrrnefndu leika lykilhlut-
verk en fyrst þarf að koma þeim í loft-
ið. Enn hefur ekki fengist staðfest
hvenær flugmálayfirvöld í Bandaríkj-
unum og Evrópu muni að nýju gefa út
flughæfnisskírteini fyrir þær.
Ná fyrri styrk á fjórum árum
Mikilvægir samningar
» Félagið segir að sam-
komulag við lánardrottna og
ýmsa samstarfsaðila bæti
lausafjárstöðu þess um 450
milljónir dollara, jafnvirði 61
milljarðs króna, meðan starf-
semin verður í lágmarki.
» Þar vegna samningar við
Boeing þyngst en t.d. fresta
lánardrottnar afborgunum
lána um allt að 24 mánuði og
styrkir það stöðuna um 51
milljón dollara.
17,5 milljarða hagnaður að fjórum ár-
um liðnum Tapið 45 milljarðar í ár Spá um farþegafjölda og stærð fl ugfl ota Icelandair til ársins 2024Farþegafjöldi Icelandair 2015-2019, spá til ársins 2024 og möguleikar á auknum umsvifum
Flugfl oti Icelandair 2018-2019
og áætlun fyrir 2020-2014
4
3
2
1
0
40
30
20
10
0
2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024
2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024
Milljónir farþega
2015-2019
Spá fyrir 2020-2024
Möguleiki á auknum
umsvifum
Boeing 757-200 og -300
Boeing 737 MAX
Boeing 767-300 ER
Viðbótar fl ugvélar
3,1
3,7
4,0 4,1
4,4
1,0
1,4
3,8
4,5
2,7
4
3
26
33
7
6
26
39
4
6
10
20 4
9
10
23 4
12
10
26
4
12
15
31 5
4
12
13
34
Milljónir farþega
Heimild: Icelandair