Morgunblaðið - 20.08.2020, Síða 33
33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 2020
Frá fyrstu aðgerðum
ríkisstjórnarinnar
vegna heimsfaraldurs-
ins hafa skilaboð okkar
verið skýr: Við munum
beita ríkisfjármálunum
til að hjálpa fólki og
fyrirtækjum í vanda og
skapa skilyrði fyrir
vöxt efnahagslífsins á
ný. Líklega má fullyrða
að enginn sé ósnortinn
af afleiðingum farald-
ursins, en afleiðingarnar væru meiri
og þungbærari ef ekkert væri að-
hafst.
Hvað ríkisfjármálastefnuna varð-
ar hefur hún bein og óbein áhrif, sem
miserfitt er að meta. Bein áhrif felast
t.d. í fjárfestingarútgjöldum ríkis-
sjóðs og óbein áhrif m.a. í greiðslum
almannatrygginga og atvinnuleysis-
bóta, sem auka ráðstöfunartekjur og
eftirspurn heimila og leiða þannig til
framleiðslustarfsemi sem ella hefði
ekki átt sér stað.
Óvissu er, eðli málsins samkvæmt,
erfitt að mæla, en hún getur haft
veruleg áhrif á framvindu efnahags-
mála. Í mars og apríl var framtíðin
óráðin. Ekki var hægt að útiloka að
óvissan, gríðarlegur samdráttur í
neyslu og tímabundin stöðvun tiltek-
innar atvinnustarfsemi ylli alvar-
legum greiðsluvandræðum í hag-
kerfinu. Hjá því var komist og þótt
ekki verði sett nákvæm tala á þátt
stjórnvalda, er ljóst að skýr markmið
ríkisstjórnarinnar um að beita ríkis-
fjármálunum til að milda áfallið og
stuðningur Alþingis við aðgerðirnar
hafa haft áhrif á væntingar fólks,
aukið bjartsýni og eflt fram-
kvæmdavilja. Þannig hafa ákvarð-
anir stjórnvalda stuðlað að þrótt-
meira efnahagslífi.
Aðgerðir þegar skilað
80 milljörðum
Ætla má að halli á ríkissjóði á
þessu ári verði hátt í 300 milljarðar
króna. Þetta er stórfelld breyting á
ríkisfjármálunum, frá jafnvægi yfir í
gríðarlegan halla, og er ein
birtingarmynda afleiðinga heimsfar-
aldursins. Breytt afkoma ríkissjóðs í
ár vegna COVID-19 skýrist með
tvennum hætti. Annars vegar eru að
verki hinir svokölluðu sjálfvirku
sveiflujafnarar, þar sem skatttekjum
er leyft að lækka verulega samhliða
minni umsvifum í hagkerfinu og út-
gjöld vaxa vegna meira atvinnuleys-
is. Þessi sjálfvirku viðbrögð skýra
ríflega helming hallans. Hins vegar
skýrist halli ríkissjóðs af sértækum
aðgerðum sem gripið
var til í þeim tilgangi að
verja störf og verð-
mæti. Helstu efnahags-
aðgerðir stjórnvalda
hafa nú þegar skilað
tæpum 80 milljörðum
króna út í efnahagslífið,
en sjálfvirkt viðbragð
ríkisfjármála gæti
numið um 120 millj-
örðum. Því fer þess
vegna fjarri að þessi
mikli tilkostnaður sé
glatað fé.
Þjóðhagslegur
ávinningur til lengri tíma
Ýmsar aðgerðir sem við höfum
gripið til eru skammtímaúrræði til
að koma í veg fyrir að fólk og fyrir-
tæki gefist upp í þessum tímabundnu
erfiðleikum og verðmæti fari í súg-
inn að óþörfu. Lokunarstyrkir,
stuðningslán, aðstoð við að greiða
laun á uppsagnarfresti, frestun
skattgreiðslna og rýmri reglur um
greiðsluskjól eru m.a. úrræði sem
falla að þessu markmiði og eiga líka
að skapa svigrúm til að bregðast við
og aðlagast breyttum aðstæðum.
Segja má að framtíðin sem blasir við
sé allt önnur en hún var og við þurf-
um að finna taktinn í nýjum veru-
leika.
Fjárfestingarátak og stuðningur
við nýsköpun miðar hvort tveggja að
því að auka umsvif á samdrátt-
artímum og skapa viðspyrnu fyrir
vöxt til framtíðar. Rannsóknir á
tengslum ríkisfjármálastefnu og
hagvaxtar benda til þess að stuðn-
ingur ríkisfjármála við efnahagslífið
hafi sérstaklega mikil áhrif á meðan
atvinnuleysi er mikið, en í lok júlí
voru 17 þúsund á atvinnuleysisskrá
eða 7,9% vinnuaflsins. Samtals voru
21 þúsund einstaklingar á hlutabót-
um og atvinnuleysisskrá, eða 8,8%,
en hæst fór það hlutfall í tæp 18% í
apríl. Talið er að innspýting með
hallarekstri ríkissjóðs í ár geti aukið
landsframleiðslu um allt að 200
ma.kr. (̃6-7% af landsframleiðslu) á
næstu misserum. Efnahagsleg áhrif
hallans, eða með öðrum orðum, auk-
innar skuldsetningar, væru aðeins
brot af þeirri fjárhæð við hefðbundn-
ari efnahagsaðstæður.
Hallarekstur ríkissjóðs felur því
við þessar aðstæður ekki í sér þjóð-
hagslegt tap í sjálfu sér, þótt hann
endurspegli efnahagslegt tap vegna
útbreiðslu veirunnar. Hallanum er
öllum varið til að styrkja fjárhags-
lega stöðu einstaklinga og fyr-
irtækja, skapa störf, koma í veg fyrir
að verðmæti glatist að óþörfu og
örva hagkerfið til að gera okkur
kleift að vaxa út úr þessu gríðarlega
áfalli sem heimsfaraldurinn er. Við
eigum engan valkost annan en að
sækja fram, skapa meiri verðmæti,
framleiða, auka skilvirkni og stækka
þjóðarkökuna. Án vaxtar bíður ekk-
ert annað en harkaleg aðlögun sem
mun kosta okkur mikið í lífskjörum.
Þegar hagkerfið hefur tekið við
sér þarf að vinda ofan af stuðningi og
koma ríkissjóði aftur í þá stöðu að
geta tekist á við þrengingar. Gleym-
um því ekki að við þurftum að skapa
forsendur fyrir því að geta tekist á
við þetta áfall með þeirri stefnu sem
nú er rekin. Góður árangur síðustu
ára, markviss skuldalækkun og
ábyrg stjórn ríkisfjármálanna er ein-
mitt forsenda þess að við höfum get-
að spyrnt kröftuglega á móti efna-
hagslegum áhrifum faraldursins.
Mesti vöxtur innlendrar
neyslu frá 2007
Talið var að landsmenn myndu
bregðast við óvissuástandi nú með
auknum sparnaði og spáði Seðla-
bankinn að einkaneysla á öðrum árs-
fjórðungi myndi hrynja um allt að
20% frá sama ársfjórðungi fyrra árs.
Þeir hagvísar sem liggja nú fyrir
benda til þess að samdrátturinn hafi
verið minni en 10%. Um leið og ár-
angur sást af sóttvarnaaðgerðum og
unnt var að slaka á þeim tók innan-
landsvelta við sér.
Fólk hefur verið duglegt að
ferðast um landið í sumar, nýta sér
ýmiss konar þjónustu og ráðast í
framkvæmdir, eins og sjá má af mik-
illi fjölgun umsókna um endur-
greiðslu virðisaukaskatts vegna
vinnu. Kortavelta Íslendinga á Ís-
landi í júní jókst um 17% milli ára,
sem er mesti vöxtur veltunnar síðan í
ágúst 2007. Vöxturinn í júlí var einn-
ig mjög sterkur, eða 13%.
Neysla Íslendinga nær ekki að
vega upp framlag erlendra ferða-
manna, sem yfir sumarmánuðina
hefur verið um 30% af heildarneysl-
unni. Einkaneysla hefur eigi að síður
orðið mun kraftmeiri en gert var ráð
fyrir. Hún vegur um helming í lands-
framleiðslu og því ljóst að hagþróun
á öðrum ársfjórðungi varð mun hag-
felldari en allar spár reiknuðu með í
vor.
Orsakir kröftugri umsvifa
Ætla má að ástæður kröftugra
efnahagslífs og meiri neyslu en
reiknað var með séu margþættar.
Þyngst vegur líklega árangur í sótt-
vörnum í vor og sú staðreynd að fá
smit greindust frá miðjum maí og
fram til loka júlí. Það styður við þá
ákvörðun að grípa til aðgerða á ný til
að draga úr útbreiðslu COVID-19.
Hagfelldari aðstæður á vinnumark-
aði skýra einnig hluta þróunarinnar.
Þrátt fyrir að þátttaka í ýmsum úr-
ræðum stjórnvalda hafi hingað til
reynst minni en búist var við má
reikna með að snögg viðbrögð fjár-
málastefnunnar og skýr vilji stjórn-
valda til að styðja við hagkerfið hafi
vegið á móti óvissu um efnahags-
horfur og þannig stuðlað óbeint að
meiri umsvifum en ella væri raunin.
Skýr markmið draga úr óvissu
Talsverð umræða hefur verið und-
anfarið um nauðsyn þess að meta
hagræn áhrif aðgerða, bæði efna-
hagslegra úrræða og sóttvarna-
ráðstafana. Mat af þessu tagi verður
aldrei nákvæmnisvísindi. Útkoman
verður ekki upp á gramm úr kílói.
Eigi að síður er mikilvægt að við
dýpkum umræðuna um þessa þætti.
Á undanförnum mánuðum hafa safn-
ast upplýsingar til að vinna með og
við höfum gert minnisblöð sem
stuðst hefur verið við í ákvarð-
anatöku en vilji okkar stendur til
þess að gera dýpri greiningar og
vonandi byggja þannig undir upp-
lýstari, nákvæmari og enn betri
ákvarðanatöku.
Hér hefur verið nefnt að það hafi
skipt máli fyrir innlend umsvif að ná
tökum á útbreiðslu veirunnar og má
þar horfa til atvinnustarfseminnar
en einnig á áhrif til skemmri og
lengri tíma á t.d. skólastarf og al-
menna virkni í samfélaginu. Hér ber
einnig nefna þann sjálfsagða grund-
vallarþátt í okkar samfélagi að ekki
sé gengið lengra en nauðsyn krefur í
aðgerðum sem skerða frelsi fólks til
daglegs lífs og athafna sem við telj-
um sjálfsagða þætti nútíma-
samfélags.
Það er öllum ljóst að við getum átt
fyrir höndum erfiðan vetur, en þá er
gott að hafa í huga að við höfum sagt
að viðbrögð stjórnvalda myndu taka
mið af aðstæðum hverju sinni. Ef
þörf yrði á harkalegri sóttvarna-
viðbrögðum með tilheyrandi efna-
hagslegum afleiðingum þyrfti sam-
hliða að endurskoða aðgerðir til að
tryggja að við náum þeim skýru
markmiðum sem að er stefnt: Að
verja félagslega og efnahagslega vel-
sæld og stöðugleika um leið og við
setjum líf og heilsu fólksins í landinu
í öndvegi og tryggjum aðstæður fyr-
ir meiri verðmætasköpun. Þessi
vinna stendur yfir og var málið á
dagskrá ríkisstjórnarinnar í vikunni.
Náum árangri með samstöðu
Við erum í ákveðnum skilningi í
stríði gegn ytri ógn. Nú þegar hafa
margar orrustur verið háðar og við
getum sagt að útkoman hafi verið vel
viðunandi miðað við aðstæður. Höf-
um hugfast að þetta stríð getur var-
að enn um sinn og við þurfum áfram
að byggja árangur okkar á sam-
stöðu.
Með samstöðunni, sterkri innri
stöðu, ákvörðunum sem byggðar eru
á þekkingu og reynslu, og með óbil-
andi trú á framtíð landsins mun okk-
ur takast að sigrast á öllum erfið-
leikum. Ekkert segir að við getum
ekki komið stærri, sterkari og öfl-
ugri sem samfélag enn nokkru sinni
fyrr út úr þessari stöðu. Þangað
skulum við stefna.
Eftir Bjarna
Benediktsson » Við erum í ákveðnum
skilningi í stríði
gegn ytri ógn. Nú þegar
hafa margar orrustur
verið háðar og við get-
um sagt að útkoman
hafi verið vel viðunandi
miðað við aðstæður.
Bjarni
Benediktsson
Höfundur er fjármálaráðherra
og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Samstaðan skilar árangri
1,9
3,1 3,1 3,9
13,5
14,5
18,0
19,1Sértækar efnahagsaðgerðir
stjórnvalda
Helstu aðgerðir hafa þegar skilað um
80 milljörðum kr. út í efnahagslífið
Laun í
sóttkví
Lokunar-
styrkir
Ferða-
þjónusta
Barna-
bótaauki
Stuðn-
ings- og
viðbót-
arlán
Laun á
upp-
sagnar-
fresti
Fjár-
festingar-
átak
Séreignar-
sparn-
aður
Hluta-
bætur
Frestun
skatt-
greiðslna
Milljarðar kr.
0,20,2
Ætla mætti að
stærsta sveitarfélagið
væri hagkvæmasta
rekstrareiningin. Gæti
gert meira fyrir
minna. Stærð-
arhagkvæmni sveitar-
félaga á að skila sér í
minni kostnaði á
hvern íbúa. Um það er
ekki deilt. Það skýtur
því skökku við að með-
alkostnaður borgarinnar er ekki
lægri en nágrannasveitarfélaganna
sem þó eru talsvert minni rekstrar-
einingar. Þvert á móti er launa-
kostnaður borgarinnar 16% hærri
en meðaltal stærstu nágranna
hennar; Kópavogs, Garðabæjar og
Hafnarfjarðar fyrir síðasta ár. Ef
launakostnaður á íbúa væri sá sami
í Reykjavík væri hann níu millj-
örðum lægri. Það gerir 287 þúsund
krónur fyrir hverja fjögurra manna
fjölskyldu á ári hverju. Munar um
minna. Þessi kostnaður
er skerðing á ráðstöf-
unartekjum heimilanna
í borginni enda rukkar
Reykjavík hærra út-
svar af launum þeirra
sem búa í borginni en
nágrannasveitar-
félögin. Tekur mun
meira af laununum en
sjálft ríkið. Fast-
eignaskattar hafa líka
hækkað langt umfram
verðlag. Það bitnar á
fólki og fyrirtækjum. Í
stað þess að nútímavæða rekstur
borgarinnar hefur yfirbyggingin
verið stækkuð. Ánægja með þjón-
ustu borgarinnar er minni en meðal
íbúa nágrannasveitarfélaganna í
samræmdum viðhorfskönnunum.
Kostnaðurinn skilar sér þannig í
hærri sköttum en ekki í aukinni
ánægju. Þeir sem vilja fara vel með
skattfé og áhugamenn um bættan
rekstur ættu að skoða hvernig á
þessu stendur. Hér mætti bjóða út
meira. Og betur. Hér mætti hag-
ræða. Nýta tæknina betur. Minnka
báknið. Á öllum tímum munar
heimilin um 287 þúsund krónur. Á
erfiðum tímum eins og nú eru mun-
ar það miklu. Mjög miklu.
Eftir Eyþór
Arnalds
Eyþór Arnalds
» Launakostnaður
borgarinnar er 16%
hærri en meðaltal
stærstu nágranna henn-
ar; Kópavogs, Garða-
bæjar og Hafnarfjarðar
fyrir síðasta ár.
Launakostnaður á íbúa
Þúsundir króna
600
500
400
300
200
100
0
Reykjavík Kópa-
vogur
Garðabær Hafnar-
fjörður
Dýr rekstur
Reykjavíkurborgar
Höfundur er oddviti sjálfstæðis–
manna í borgarstjórn.Þrif Það er vissara að vera vel tækjum búinn við þrif á tyggjóklessum.
Kristinn Magnússon