Morgunblaðið - 20.08.2020, Síða 34
34 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 2020
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - hitataekni.is
Sími 588 6070 - hitataekni@hitataekni.is
Sjálfvirk pottastýring
með snertiskjá og vefviðmóti
POTTASTÝRING
VIÐ
GERUM
VIÐ
allar tegundir
síma, spjaldtölva
og tölva
Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is
s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a
Undanfarið hefur
borið á því að sumir
stjórnmálamenn í
Bandaríkjunum og á
Vesturlöndum hafi ráð-
ist á stjórnvöld í Kína
með órökstuddum róg-
burði og hafi málað kín-
verska komm-
únistaflokkinn upp sem
ógn við heimsfriðinn,
og að sú stefna að
reyna að hafa vin-
samleg samskipti við Kína hafi mis-
tekist hrapallega. Þessi málflutn-
ingur er vatn á myllu þeirra sem
aðhyllast hugmyndafræði kalda
stríðsins, og krafist er sameiginlegs
átaks
vestrænna ríkja gegn „kínversku
ógninni“. Þessi málflutningur er ekki
einungis í mótsögn við sögulegar
staðreyndir og endurspeglar van-
þekkingu um Kína, heldur eitrar
einnig alþjóðasamskipti og skaðar
hagsmuni allra aðila.
Síðan hið nýja Kína var stofnað
fyrir meira en 70 árum, hefur Kína,
þrátt fyrir breytilegt landslag á al-
þjóðavettvangi, alltaf haldið sig við
sína eigin sjálfstæðu utanríkisstefnu
sem gengur út á friðsamleg og ófrá-
víkjanlega vinsamleg samskipti við
önnur ríki sem byggja á hinum fimm
grunnsetningum friðsamlegra sam-
skipta. Kína hefur einsett sér að
stuðla að friðsælli þróun.
Við viðurkennum rétt
fólks í öllum ríkjum
heims til að velja sér
sjálft sínar eigin leiðir
til framþróunar. Við
höfum engan áhuga á
því að hlutast til um
innanríkismál annarra
þjóða, né flytja út okkar
hugmyndafræði. Kína
hefur aldrei hafið stríð,
né hertekið örðu af
landi sem tilheyrir öðr-
um. Kína vill stuðla að
framþróun, til hagsbóta
fyrir eigin þjóð, en ekki berjast við
Bandaríkin um einhver yfirráð.
Kína tekur virkan þátt í alþjóðlegu
samstarfi, ekki til að ryðja ein-
hverjum úr vegi, heldur til að standa
við skyldur sínar á alþjóðvettvangi
sem stórveldi. Sama hvað framtíðin
ber í skauti sínu mun Kína aldrei
standa fyrir yfirráða- eða útþenslu-
stefnu.
Kína öðlaðist frelsi frá heimsvalda-
og nýlendustefnu. Það var val sög-
unnar og þjóðarinnar að fylgja stefnu
sósíalisma undir stjórn kínverska
kommúnistaflokksins. En virkar kín-
verska kerfið og stefna kínverska
kommúnistaflokksins fyrir fólkið?
Íbúar Kína vita svarið betur en aðrir.
Staðreyndir sýna fram á að stjórn
kínverska kommúnistaflokksins nýt-
ur stuðnings allra 1,4 milljarða íbúa
landsins. Margar alþjóðlegar kann-
anir, þar á meðal könnun á vegum
Harvard-Kennedy-háskólans sýna að
meira en 90% íbúa Kína treysta ríkis-
stjórninni sem er leidd af kínverska
kommúnistaflokknum. Þetta mikla
traust er hvorki tilviljun, né kemur á
óvart. Það er kínverski komm-
únistaflokkurinn sem hefur leitt íbúa
Kína áfram í átt að sjálfstæði og
frelsi þjóðarinnar og lýst upp leiðina
sem hefur verið nefnd sósíalismi með
kínverskum hætti, sem hefur snúið
þjóðinni frá því að vera örsnautt ríki
yfir í að vera það land í heiminum
sem hefur næststærsta hagkerfið,
mestu iðnaðarframleiðsluna, hefur
langmestu vöruviðskiptin og er í
fyrsta sæti þegar kemur að
gjaldeyrisforða. Það er undir stjórn
kínverska kommúnistaflokksins að
verg landsframleiðsla á mann hefur
risið frá því að vera undir 200 Banda-
ríkjadollurum fyrir 40 árum og upp í
10.000 Bandaríkjadali, og meira en
800 milljónum manna hefur verið lyft
úr sárri fátækt.
Kínverska þjóðin hefur góðan
skilning á umheiminum og er fullfær
um að velja sér sína eigin leið. Allar
tilraunir til að reyna að rægja og
rangtúlka kínverska stjórnkerfið, og
að reyna að reka fleyg milli kín-
verska kommúnistaflokksins og kín-
verskrar alþýðu, eru dæmdar til að
mistakast.
Kína hafnar öllum hugmyndum
um hið svokallaða „nýja
kalda stríð“, vegna þess að það er í
andstöðu við hina alþjóðlegu þróun í
átt að framþróun og velmegun. Sum-
ar alþjóðlegar kenningar, eins og
kaldastríðshugsunarhátturinn sem
birtist í kenningunum um „jafnvirð-
isleikinn“ og „gildru Þúkýdídesar“ og
sá hugsunarháttur að sterkt ríki leiti
alltaf að heimsyfirráðum eru orðnar
úreltar. Mismunur í hugmyndafræði
ætti ekki að vera hindrun í frið-
samlegri sambúð og sameiginlegri
þróun meðal þjóða. Samtal er hinn
eini vitræni kostur þegar menn eru
ekki sammála, og samvinna er besta
leiðin öllum til hagsbóta.
Hin hraða þróun sem hefur orðið í
Kína á undanförnum áratugum, sem
hefur notið samskipta og samvinnu
við ríki heimsins, hefur einnig leitt til
viðvarandi hvata og tækifæra fyrir
önnur ríki heimsins. Kína er ávallt
reiðubúið til að deila sínum árangri
og tækifærum með umheiminum.
Kína er orðið leiðandi á sviði efna-
hagsvaxtar og með framlag sem
nemur um 30% af efnahagsvexti
heimsins á undanförnum árum, sem
er meira en framlag allra þróaðra
ríkja samanlagt, og þar með talið
Bandaríkjanna, Evrópu og Japans.
Kína er stærsti viðskiptaaðili meira
en 120 landa og svæða, með innflutn-
ingi sem nemur um 11% af heildar
innflutningi heimsins. Vandaðar og
ódýrar vörur sem eru framleiddar í
Kína eru orðnar hagkvæmur val-
kostur fyrir neytendur heimsins.
Hinn stóri markaður og hið trausta
viðskiptaumhverfi sem Kína býður
upp á eru orðin uppspretta gríðar-
legs hagnaðar fyrir fyrirtæki á
heimsvísu.
Nú um stundir skapar COVID-19-
faraldurinn áskoranir fyrir öryggi og
framþróun í öllum ríkjum. Óstöðug-
leiki og óvissa í alþjóðlegum sam-
skiptum eykst sífellt. Það mikilvæg-
asta sem við gætum lært af
COVID-19 er að líf, heilsa og tæki-
færi almennings í mismunandi lönd-
um eru nátengd; mannkynið allt er
samfélag með sameiginlega framtíð.
Kína mun áfram einbeita sér að frið-
samlegum samskiptum, alþjóðlegri
framþróun, alþjóðlegu regluverki og
er tilbúið til að vinna með öðrum
þjóðum að samfélagi með sameig-
inlegri framtíð. Kína er tilbúið til að
vinna að því að styrkja alþjóðlega
samvinnu með Íslandi og öðrum ríkj-
um með fyrirbyggjandi aðgerðum og
stjórnun þar til náðst hefur stjórn á
faraldrinum á heimsvísu. Við skulum
vinna saman að því að byggja upp
nýja veröld að faraldrinum loknum
sem einkennist af friði, stöðugleika,
hreinskilni, fjölbreytni og sameig-
inlegum hagsmunum.
Framþróun í Kína: tækifæri
fremur en ógn við heimsbyggðina
Eftir Jin Zhijian » Við viðurkennum
rétt fólks í öllum
ríkjum heims til að velja
sér sjálft sínar eigin
leiðir til framþróunar.
Jin Zhijian
Höfundur er sendiherra Kína
á Íslandi.
Fyrirsögnin á grein
í Morgunblaðinu 17.
ágúst og orð í fleiri
fjölmiðlum, í þá veru
að rýrnun Grænlands-
jökuls sé óafturkræf,
benda til misskilnings.
Túlka mætti ýmis þau
orð undanfarið í þá
veru að jökullinn sé á
hraðleið til algjörrar
eyðingar, jafnvel þótt
tækist að snúa við
hlýnun jarðar af mannavöldum.
Vissulega getur jökullinn horfið en
þá yrði meðalhitastig jarðar að hafa
hækkað um mörg stig í afar langan
tíma. Elsti ís jökulsins, sem náðst
hefur með borunum, er milli 200 og
300 þúsund ára. Á svo löngu tíma-
bili hefur hressilega kólnað og hlýn-
að á víxl, en þá af náttúrunnar völd-
um. Í greininni sem vitnað er til
(eftir Ian Howat og fleiri við Rík-
isháskóla Ohio í tímaritinu Nature
Communcations Earth and Envi-
ronment Journal) skrifa vís-
indamennirnir þetta í
lok útdráttar síns:
„Við berum saman
breytingar á fram-
skriði og uppbroti jök-
uljaðra (á jöklum sem
fljóta upp og kelfa í sjó
fram – aths. ATG) á
áratugabili. Komumst
að því að aukin eyðing
jökulíssins stafar að
langmestu leyti af
uppbroti skriðjökult-
ungnanna en miklu
síður af ferlum sem
eiga sér stað inni á
meginjöklinum. Eyðingin herðir
merkilega jafnt og þétt á sér; sem
svarar 4-5% aukningu fyrir hvern
kílómetra sem hver skriðjökull hop-
ar. Við sýnum fram á að víðáttu-
mikil hörfun skriðjökla á árunum
2000 til 2005 olli snöggri viðbót-
areyðingu og umskiptum til nýrrar,
hvikullar stöðu hvað massatap
varðar sem héldi áfram jafnvel þótt
yfirborðsbráðnun minnkaði.“
Með þessu er átt við að ísmassi
Grænlandsjökuls getur rýrnað
áfram þrátt fyrir viðbót vegna auk-
innar ákomu/minni bráðnunar í
kólnandi veðurfari, fari svo að nú-
verandi þróun snúist við. Það eru
vissulega alvarlegar rannsókn-
arniðurstöður, m.a. vegna hækk-
unar sjávarborðs. Hvergi er þó full-
yrt í grein vísindamannanna að
heildarmassatapið héldi áfram þar
til jökullinn hyrfi. Grænlandsjökull
er seigur, sýnir jarðsagan, gæti
leitað jafnvægis á ný og jafnvel
stækkað aftur. Vonandi gerist það
sem fyrst. Vandinn vegna loftslags-
breytinga er mikill og hann vex á
meðan ríki heims hika, það skortir
á stamstöðu þeirra og mótvæg-
isaðgerðir eru of linar, einkum
ríkjanna sem mest áhrif hafa á
loftslagsbreytingarnar.
Framtíð Grænlandsjökuls
Eftir Ara Trausta
Guðmundsson »Hvergi er þó fullyrt í
grein vísindamann-
anna að heildarmassa-
tapið héldi áfram þar til
jökullinn hyrfi.
Ari Trausti
Guðmundsson
Höfundur er jarðvísindamaður.
Geirfuglinum var ekki út-
rýmt við strendur Íslands.
Geirfuglinn var farfugl og
þegar hann hélt suður á bóg-
inn á haustin beið hans stór
floti fiskiskipa við austur-
strönd Ameríku, og þar var
hann drepinn í þúsunda tali,
eða þar til hann kom ekki
meir. Stór, glæsilegur og gat
ekki flogið frá kjötætum á
bátum.
Kristján Hall vega@vortex.is
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Geirfuglinn
og útrýming
hans
Ljósmynd/HAK
Allt um
sjávarútveg