Morgunblaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 38
Ný sending af skóm
Dömu
ALPENROSE ULTRA
MID GTX Kr. 29.990.-
Dömu
ALPENROSE ULTRA
MID GTX Kr. 32.990.-
Herra Herra
Herra
WILDFIRE EDGE
MID GTX Kr. 32.990.-
ULTRA FLEX
MID GTX Kr. 29.990.-
MS DROPLINE
GTX Kr. 29.990.-
Dömu
MS DROPLINE
GTX Kr. 29.990.-
AGENT EVO GV GTX
Kr. 25.990.-
Herra Herra
FALCON GV GTX
Kr. 29.990.-
FALCON GV GTX
Kr. 29.990.-
ANGLE GV GTX
Kr. 25.990.-
DömuDömu
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Blaðamaður K100 og morgunþátt-
urinn Ísland vaknar ræddu við Ey-
þór, vinningshafa „Söngs sumars-
ins“, um lok ferðalagsins um landið
sem hófst 8. ágúst en hann segir að
fjögurra manna fjölskyldan og heim-
ilishundurinn hafi öll komið endur-
nærð úr ævintýrinu. Fjölskyldan
samanstendur af Eyþóri og eig-
inkonu hans, Ingibjörgu Björns-
dóttur, og sonunum Daníel Erni, 17
ára, Eyjólfi Erni, 11 ára og hvolp-
inum Lunu. Greint var frá byrjun
ferðalagsins í síðustu viku á K100.is.
Eftir að hafa ferðast til Vest-
mannaeyja, í Reynisfjöru, Jökuls-
árlón og um Austfirði lá leið fjöl-
skyldunnar til Húsavíkur þar sem
þau dvöldu í þrjár nætur og fóru þau
meðal annars í hvalaskoðun með
Gentle Giants á Rib-hraðbát.
„Geggjuð“ ferð
„Það var algjörlega frábært veður
og hrikalega gaman að sigla langt út
á haf. Við sáum bæði hvali og höfr-
unga í ferðinni sem okkur fannst
stórkostlegt,“ segir Eyþór. Segir
hann að Eyjólfur, 11 ára, hafi sagt að
ferðin hafi verið „geggjuð“ þrátt fyrir
að hann hafi sjálfur orðið svolítið sjó-
veikur á bátnum.
„Húsavík er mjög fallegur bær og
við nutum þess að vera þar í góðu
veðri,“ sagði Eyþór.
Fjölskyldan fór einnig í dagsferð
til Akureyrar og hittu þau á leiðinni
Valgeir Bergmann, framkvæmda-
stjóra Vaðlaheiðarganga, sem fræddi
þau um göngin, sem Eyþór segir að
hafi verið afar áhugavert. Frábært
veður var í bænum og fékk fjöl-
skyldan ljúffengan hádegismat á Fa-
brikkunni. „Við áttum dásamlegan
dag þar sem við nutum góða veðurs-
ins, kíktum í sund, röltum um og end-
uðum frábæran dag á að borða á
Múlabergi,“ sagði hann.
Fjölskyldan varði því næst tveim-
ur nóttum á Fosshóteli í Stykkis-
hólmi, þau nutu þess að skoða bæinn
og borðuðu meðal annars á veit-
ingastaðnum Narfeyrarstofu sem
Eyþór segir að hafi verið frábært.
„Næstsíðasta daginn í ferðinni
keyrðum við um Snæfellsnesið og
skoðuðum áhugaverða staði eins og
til dæmis Rauðfeldsgjá, Arnarstapa,
Hellnar og Skarðsvík og svo fórum
við í berjamó. Að sjálfsögðu urðum
við að stoppa á veitingastaðnum
Sker í Ólafsfirði og fá okkur kvöld-
mat. Við mælum svo mikið með þeim
stað,“ sagði hann.
Fjölskyldan gisti síðustu nóttina í
ferðalaginu á Stykkishólmi og lagði
af stað heim að loknum morgunverði
á hótelinu.
Spurður út í það hvernig það er að
ferðast um landið eftir að önnur
bylgja kórónuveirufaraldurs skall á,
sagði Eyþór að fjölskyldan hefði ver-
ið dugleg að nota grímur og spritt og
hefðu ekki látið faraldurinn hafa
mikil áhrif á ferðalagið. „Við höfum
getað gert allt sem okkur langaði þó
svo COVID-19 sé að gera okkur erf-
iðara fyrir í samfélaginu. Við höfum
þurft að nota grímur og hanska á
mörgum stöðum. Stemningin er góð
og það virðast allir vera að gera sitt
besta og fólk meðvitað um mikilvægi
tveggja metra reglunnar. Við erum
með lager af grímum og spritti í bíln-
um þannig að við erum góð,“ sagði
Eyþór.
Eyþór segir að það hafi skipt
miklu máli að vera á góðum bíl á
ferðalaginu en fjölskyldan fékk afnot
af glænýrri Toyota Land Cruiser-
bifreið meðan á ferðalaginu stóð.
„Það skiptir miklu máli að vera á
góðum bíl í svona ferðalagi. Hann er
rúmgóður og það fer vel um alla í
bílnum. Það er þægilegt að ganga um
bílinn og svo er líka stórt skott þann-
ig að við gátum tekið allt það sem við
þurftum með okkur,“ sagði Eyþór.
Gott að koma heim
endurnærður
Þó svo að ferðalagið hafi verið æv-
intýralegt þá segir Eyþór að það hafi
verið gott að koma aftur heim.
„Það var yndislegt að koma heim
eftir þetta frábæra ferðalag. Við
gerðum alls konar skemmtilegt,
borðuðum góðan mat, skoðuðum
landið okkar og nutum þess að vera í
fríi öll saman, maður má nefnilega
ekki gleyma því að staldra við og
njóta en þannig kemur maður endur-
nærður heim úr svona ferðalagi,“
sagði hann.
Vinningshafar endurnærðir
eftir ævintýralegt ferðalag
Eyþór Örn Eyjólfsson,
sigurvegarinn í sumar-
leiknum „Söngur sum-
arsins“ á K100, vann
ferðalag um landið fyrir
alla fjölskylduna ásamt
fleiri glæsilegum vinn-
ingum á dögunum en
fjölskyldan lauk ævintýri
sínu um landið um síð-
ustu helgi, 15. ágúst.
Heppin Eyþór Örn Eyjólfsson og fjölskylda hans eru endurnærð eftir ferða-
lag í kringum landið sem Eyþór vann í leiknum Söngur sumarsins á K100.
Luna Hundurinn Luna fékk að fara
með á öll hótel en ferðalagið var
skipulagt að hluta til út frá henni.
Ævintýri Fjölskyldan naut þess að skoða landið á ferðalagi sínu.
Upplifun Fjölskyldan sá bæði
hvali og höfrunga á Rib-hraðbáti
á Húsavík með Gentle Giants.
Fararskjóti Land Crui-
ser-bifreið sem fjöl-
skyldan ferðaðist með á
ferðalaginu kom sér
mjög vel að sögn Eyþórs.