Morgunblaðið - 20.08.2020, Page 46
46 MINNINGAR
Aldarminning
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 2020
Einn ágætasti
maður sem nokkurt
ríki hefur sent til að
vera sendiherra
sinn hér á landi er
án efa Janus A.W.
Paludan, sendiherra
Dana á Íslandi árin
1977 til 1985, gáfað-
ur, hæfileikaríkur
og sterkur persónu-
leiki. Vert er því að
minnast hans
nokkrum orðum nú 20. ágúst
2020 þegar rétt öld er frá fæðingu
hans.
Paludan var lögfræðingur að
mennt og gekk í dönsku utanrík-
isþjónustuna 1944, árið sem Ís-
lendingar rufu konungstengslin
við Danmörku og stofnuðu lýð-
veldi. Það varð reyndar upphaf
sambands hans við Ísland, því
hann var ritari nefndar sem kom
hingað 1946 til að semja um ýmis
mál varðandi aðskilnað landanna.
Einmitt í þeirri ferð, að sögn Pa-
ludans í blaðaviðtali löngu síðar,
gerðu Danir sér fyrst ljóst mikil-
vægi þess fyrir Íslendinga að fá
til sín íslensku miðaldahandritin
sem verið höfðu í vörslu Dana.
Um þau áttu eftir að standa mikil
átök uns farsæl lausn fékkst ára-
tugum síðar.
Paludan hafði farið víða þegar
hann að eigin ósk varð sendiherra
Janus A.W.
Paludan
á Íslandi, landi sem
honum hafði frá
fyrstu kynnum verið
hlýtt til. Hann var á
merkum ferli m.a.
sendiherra Dana í
Kongó, Brasilíu,
Egyptalandi og í
Kína; einnig hafði
hann starfað í sendi-
nefnd Dana hjá
Sameinuðu þjóðun-
um og heima fyrir
gegnt þungavigtarstöðu yfir-
manns stjórnmáladeildar danska
utanríkisráðuneytisins í ráð-
herratíð Hans Tabor, er frægur
varð sem formaður Öryggisráðs
SÞ í sex daga stríði Arabaríkja
gegn Ísrael 1967. Paludan bjó
þannig yfir einstaklega glöggri
sýn og djúpum skilningi á málum
hinna ýmsu heimshluta, flóknum
og ólíkum aðstæðum í Mið-Aust-
urlöndum, Afríku, Suður-Amer-
íku og Asíu, auk okkar eigin álfu.
Varð þessi víðtæka reynsla hans
m.a. til þess að hann var á árum
sínum hér fenginn í ráðgjafahóp
aðalframkvæmdastjóra SÞ um
tengsl afvopnunar og alþjóðaör-
yggis.
Um leið og Paludan gætti vel
hagsmuna lands síns, sem honum
hafði verið trúað fyrir, var hann
ætíð velviljaður og sanngjarn í
garð Íslendinga. Þá var hann lag-
inn við rækt þess sem styrkt gat
vináttubönd þjóðanna. Gott dæmi
um það er forganga hans um að
halda á lofti hvernig myndhöggv-
arinn mikli Albert Thorvaldsen
(1770-1844), sem fremstur var
talinn í Evrópu um skeið á 19. öld,
tengir löndin tvö í gegnum ís-
lenskt faðerni sitt og danskt móð-
erni. Var það fyrir hans atbeina
sem Thorvaldsenssafnið í Kaup-
mannahöfn og Listasafn Reykja-
víkur efndu til mikillar og ein-
staklega vandaðrar sýningar á
verkum myndhöggvarans á Kjar-
valsstöðum árið 1982, hinnar
fyrstu utan Danmerkur í þá 134
ára sögu danska safnsins. Einnig
tryggði Paludan stuðning við
dönskukennslu, því hann áleit
nauðsyn fyrir norrænu tengslin
að Íslendingar lærðu dönsku,
norsku eða sænsku.
Eiginkona Paludan, Ann, var
af breskum ættum, ekki síður
menningarlega sinnuð en maður
hennar, hæfileikum gædd og al-
úðleg í framgöngu. Var mikið
jafnræði með þeim hjónum. Hún
var vandaður fræðimaður og rit-
aði m.a. nokkrar bækur og grein-
ar um kínverska menningarsögu.
Þau hjón blönduðu geði við Ís-
lendinga vítt um þjóðfélagið og
voru einstaklega vel látin. Frægir
urðu fjölmennir kvöldverðir
þeirra á bóndadaginn ár hvert,
þar sem þau söfnuðu saman vin-
um sínum. Var þá sendiherrabú-
staðurinn við Hverfisgötu 29
undirlagður, veitt af rausn og
dansað fram á nótt, m.a. hinn
formfasti dans lancier sem jafnan
vakti kátínu. Það var á einu þess-
ara kvölda sem dr. Kristján Eld-
járn forseti rifjaði upp í þakkar-
ræðu af hálfu gestanna þegar
hann á námsárum sínum í Dan-
mörku hafði lagt sig eftir að
þekkja muninn á tveimur tiltekn-
um fuglategundum en var þá
svarað af dönskum kunningja:
„Er það ekki bara spurning um
sósuna?“
Fuglar voru reyndar mikið
áhugamál þeirra Paludan-hjóna,
lifandi á flugi um loftin blá. Vörðu
þau löngum stundum úti í nátt-
úrunni til að skoða lífshætti
þeirra, bæði tvö útivistarfólk af
besta tagi. Létu þau rysjótt veð-
urfar ekki á sig fá heldur kunnu
vel að klæða það af sér og gistu
óhikað í tjaldi. Þegar ljúf kynni af
þeim eru rifjuð upp nú birtast
þau fyrir hugskotssjónum ekki
síður úlpuklædd en í þeim skart-
klæðum sem starfið stundum út-
heimti. Þau voru gædd þeim eðl-
iskosti sem Kipling nefnir í frægu
kvæði að njóta sín jafnt meðal al-
mennings og í konungsfylgd.
Eftir árin hér settust þau hjón-
in að á ættarslóðum Ann í
Cumbria-héraði á Norður-Eng-
landi, sem Paludan fannst sann-
gjarnt eftir að hún hafði dyggi-
lega fylgt honum land úr landi.
Þarna undu þau sér vel. Löngu
fyrr hafði Paludan gert sér lítið
fyrir og keypt forna steinkirkju
skammt frá húsi þeirra sem hann
ól önn fyrir og sýndi stoltur gest-
komandi. Hann lést 2004 og Ann
áratug síðar. Blessuð sé minning
þessara mætu og eftirminnilegu
hjóna.
Ólafur Egilsson.
✝ Þorlákur Ant-on fæddist 17.
febrúar 1982 á
fæðingardeild
Landspítalans í
Reykjavík. Hann
lést 30. júlí 2020.
Sonur Unnar
Þorláksdóttur, f.
1962, og Jóns Ant-
ons Holm, f. 1963,
sem er í sambúð
með Hönnu Vil-
hjálmsdóttur.
Systkini Þorláks eru Kristín
Marín, f. 1983, gift Enoki
Holm. Þau eiga Unnar Erni, f.
2001, Jóhönnu Báru, f. 2007,
Sóldísi Hörpu, f. 2009, og
Kristínu Júlíu, f. 2011. Sindri
Freyr, f. 1995, í sambúð með
Ljupku Tepeva og eiga þau von
á sínu fyrsta barni í október
nk.
haldsleikmaður. Körfuboltinn
var lagður á hilluna þegar
veikindin lögðust á hann.
Þorlákur átti mjög auðvelt
með að læra áður en hann
veiktist og þurfti lítið að hafa
fyrir náminu. Hann hafði mik-
inn metnað, vildi ljúka námi
sem gæfi honum góða atvinnu-
möguleika. Hann lærði forritun
í Iðnskólanum en lauk ekki síð-
ustu önninni því sjúkdómurinn
dró frá honum einbeitingu og
vilja. Árið 2010 skráði hann sig
í kvikmyndaskóla í London
ásamt Steinari Þór vini sínum.
Námið átti að taka tvö ár en
eftir fyrra árið varð sjúkdóm-
urinn honum ofviða og hann
flutti heim. Þorlákur gerði
fleiri tilraunir til að mennta sig
en hafði ekki burði til þess fyrr
en hann tók próf sem gaf hon-
um rétt sem löggiltur bílasali.
Hann vann í nokkur ár á bíla-
sölu mágs síns.
Þorlákur var jarðsunginn frá
Keflavíkurkirkju 13. ágúst.
Hann verður jarðsettur 20.
ágúst 2020 í Fossvogs-
kirkjugarði.
Þorlákur Anton
ólst upp í Keflavík
og hóf grunnskóla-
gönguna í Myllu-
bakkaskóla 1988
og fór síðan í
Holtaskóla 1994 og
útskrifaðist 1998.
Á lokaári grunn-
skólagöngunnar
greindist hannmeð
meltingarsjúkdóm-
inn chrons á 16
ára afmælisdegi sínum. Sá
sjúkdómur gerði Þorláki lífið
oft mjög erfitt nær alla hans
ævi eftir að veikindin hófust.
Þorlákur hafði mikinn áhuga
á körfubolta frá 10 ára aldri.
Æfði með Keflavík í nokkur ár.
Einnig safnaði hann myndum í
safn sem enn er til. Hann hélt
alla tíð með Chicago Bulls og
var Michael Jordan hans uppá-
Ég var 19 að verða 20 þegar ég
fékk þig í fangið í fyrsta sinn. Mik-
ið var ég hamingjusöm og stolt yf-
ir að eiga þig, svo fallegur og stór,
16 marka strákur. Fyrst bjuggum
við í Garði, hjá ömmu þinni og afa
sem sáu varla sólina fyrir nýjasta
barnabarninu sem fékk fallega
nafnið hans afa. Þú elskaðir nafnið
þitt og varst stoltur yfir hversu
sjaldgæft það nafn var.
Þú varst fjörugur strákur og
mikill könnuður, varst duglegur
og fróðleiksfús. Kannski pínu
handóður stundum. Varst rétt far-
inn að skríða þegar þú uppgötv-
aðir góða aðferð við að ná athygli
ömmu þinnar. Þú skreiðst inn í
stofu, að skáp sem hún geymdi
sparistellið í, opnaðir skápinn og
lést aðeins klingja í stellinu. Þá
kom amma alltaf strax og gaf þér
þá athygli sem þú vildir. Þetta
gerðir þú oft og amma þín hafði
gaman af enda fékk hún alltaf þitt
fallega bros að launum.
Þú varst ekki nema eins árs
þegar ég komst að því að þú værir
að verða stóri bróðir, ekki alveg
planað en gaman fyrir þig að fá
litla systur til að knúsa og
hrekkja. Það var sjaldan eitthvað
leiðinlegt hjá ykkur eða einhver
lognmolla nema þegar þið voruð
að gera einhver prakkarastrik. Þú
varst orðinn 13 ára þegar litli
bróðir þinn kom í heiminn og betri
gjöf hefði varla fengist fyrir ykkur
systkinin. Hann Sindri Freyr var
heppinn að fá þig og Kristínu fyrir
systkin, þið voruð mjög góð við
hann og við foreldrarnir áttum
aldrei í vanda með pössun fyrir
hann, þið voruð ávallt tilbúin til
þess að vera með hann þegar þið
voruð beðin.
Þú áttir marga góða vini sem
voru þér kærir alla tíð. Það var
mikið hlegið og gantast þegar þið
hittust. Þeir áttu mjög bágt þegar
þeir komu og kvöddu þig í útför-
inni þinni og greinilega erfitt fyrir
þá að tapa hlekk úr vinakeðjunni
sem var svo dýrmæt. Þeir höfðu
staðið að söfnun frá árganginum
ykkar og færðu okkur fjölskyld-
unni veglega gjöf fyrir útför þinni.
Sannkallaðir höfðingjar, þínir
kæru vinir. Þökk sé þeim og ár-
gangi ykkar. Frændsystkin mín
lögðu einnig fé af hendi til útfarar
þinnar og þakka ég þeim innilega.
Vinum og vandmönnum okkar
foreldra þinna sem veittu okkur
ómetanlega hjálp og öllum þeim
sem hafa gefið okkur samúð,
styrk og hlýju, vil ég þakka af öllu
hjarta.
Ég hef alltaf elskað þig minn
kæri sonur og óska þess að nú
sértu á góðum stað, laus við alla
þjáninguna sem þú þurftir að
þola. Megi algóður Guð gæta þín
og umvefja þig öllum þeim kær-
leika og vellíðan sem þú átt skilið.
Þakka þér góðar stundir, þín
mamma.
Það er ótrúlega óraunverulegt
að standa frammi fyrir því að ást-
kær bróðir minn sé búinn að yf-
irgefa þessa jörð. Mikið sem það
verður erfitt að læra að lifa án
hans. Eftir situr stórt sár í hjarta
mínu en einnig er það uppfullt af
þakklæti og gleði yfir þeim minn-
ingum sem ég hef af honum, okk-
ur tveim systkinum sem alltaf
voru að prakkarast saman. Við
hötuðum að elska hvort annað og
elskuðum að hata hvort annað.
Þorlákur elskaði að stríða mér og
það besta sem hann vissi var að
láta mig öskra. Inn á milli vorum
við bestu vinir og áttum góða tíma
saman. Þegar á reyndi stóð hann
ávallt við hlið mér eins og klettur
og gerði alla tíð.
Þorlákur veiktist ungur og ég
var of ung til þess að átta mig á
hversu alvarleg veikindi hans
voru, enda vorum við ekki nema
14 og 15 ára gömul. Ég þekkti
ekki orðið neitt annað en bardaga
hans við sjúkdóminn. Þegar við
urðum eldri var ég reið yfir því að
framtíð hans hafði verið tekin frá
honum. Ég hélt lífinu áfram, eign-
aðist mann og börn, var í vinnu og
stundaði nám, allt sem hann
dreymdi um að gera en hafði ekki
þrek til því hann var í stöðugu
stríði við sjúkdóm sinn sem á end-
anum vann eftir 23 ára baráttu.
Þorlákur var eldklár og átti
mjög auðvelt með að læra. Hann
eyddi ófáum tímunum í að hjálpa
mér með nám mitt, þá bæði í
ensku og stærðfræði en þar stóð
færni hans hæst, án hans hefði ég
ekki komist jafn langt og ég gerði
því ég hef ákveðna námsörðug-
leika. Hann var þolinmóður og
góður í að útskýra. Hann var
ávallt boðinn og búinn að hjálpa
þegar eitthvað bjátaði á. Þorlákur
tók stóran þátt í lífi barnanna
minna og fékk nasasjón af for-
eldrahlutverki í gegnum þau, hlut-
verk sem hann þráði svo mikið.
Ég trúi ekki að nú þurfi ég að
kveðja og fái ekki að hitta þig fyrr
en minn tími kemur.
Elsku bróðir minn, besti vinur
minn, þú munt ávallt lifa í hjarta
mér.
Þín systir,
Kristín Marín Holm.
Ég man þegar þú komst til
Spánar til okkar síðast, það var
mjög skemmtilegt að sjá þig og þú
varst hjá okkur í heila tvo mánuði,
það var mjög gott að hafa þig. Ég
var ákaflega glöð að hafa þig með
okkur og þakklát fyrir tölvuleik-
inn sem þú gafst mér, og um jólin
gafstu mér mjög flotta peysu, ég
man líka þegar við fórum á mynd-
ina Avengers: Endgame, hún var
virkilega skemmtileg. Þú varst
alltaf svo fyndinn og þú varst
mjög hrifinn af tölvuleikjum og
tækjum. Þegar ég frétti að þú
værir dáinn leið mér mjög illa og
grét mikið, það var svo sárt að
missa þig. Þú varst besti frændi í
heimi og ég vildi að þú gætir alltaf
verið hjá mér. Ég elska þig mjög
mikið.
Þín frænka
Jóhanna Bára Holm.
Þorlákur Anton
Holm
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
RÚNAR MATTHÍAS MÖLK,
lést á heimili okkar í Þýskalandi
mánudaginn 10. ágúst.
Margrét Garðars Mölk
Daníel Garðars Mölk Isabell Mölk
Úlfar Örn Mölk Alexa Mölk
Monika Guðrún Mölk
Matthías Rúnarsson
barnabörn.
Útför
DÓRU S. BJARNASON,
prófessors emeritus
við Háskóla Íslands,
fer fram 21. ágúst klukkan 13 í Neskirkju.
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu er athöfnin
fyrir nánustu aðstandendur eingöngu, en verður streymt á
slóðinni https://youtu.be/ybVU8Oa5Loo og deilt á
Facebook-síðu Dóru.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á bankareikning Benna nr. 311-26-9991, kt.
221280-5399.
Benedikt H. Bjarnason
Inga Bjarnason
Ingi Þ. Bjarnason
Theodór Karlsson og Helle Kristensen
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
HJÖRDÍS M. MAGNÚSDÓTTIR
kennari,
andaðist fimmtudaginn 13. ágúst.
Útför mun fara fram frá Lindakirkju
föstudaginn 28. ágúst klukkan 15.
Vegna samkomutakmarkana er athöfn einungis fyrir
ættingja og vini.
Hálfdán Helgason
Kristín Anna Einarsdóttir Páll Árnason
Guðmundur Einarsson Súsanna Schmidt
Helga Einarsdóttir Sigurjón Eiríksson
Áslaug Helga Hálfdánard. Matthías V. Baldursson
barnabörn og langömmubörn
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
SIGRÚN RAGNA SKÚLADÓTTIR
hárgreiðslumeistari,
Arnarsmára 2, Kópavogi,
lést á heimili sínu 10. ágúst sl.
Útför hennar fer fram 24. ágúst nk.
Vegna aðstæðna er athöfnin einungis fyrir nánustu fjölskyldu
og vini.
Jónas Þór Kristinsson
Birna Dís Birgisdóttir Andri Janusson
Kristinn Viktor Jónasson Fanney Rós Magnúsdóttir
Heiðar Snær Jónasson
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HULDA VORDÍS AÐALSTEINSDÓTTIR
húsfreyja, Syðri-Bægisá,
Hörgársveit,
lést 11. ágúst. Útför verður mánudaginn
24. ágúst frá Glerárkirkju klukkan 13.30.
Vegna fjöldatakmarkana verður eingöngu nánustu ættingjum og
vinum boðið í kirkjuna, jarðsett verður á Bægisá.
Blóm og kransar eru afþakkaðir, en bent er á Sjúkrahúsið á
Akureyri.
Katrín Steinsdóttir Jóhannes Sigfússon
Helgi Bjarni Steinsson Ragnheiður M. Þorsteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn