Morgunblaðið - 20.08.2020, Side 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 2020
HVER restaurant á Hótel Örk
er fyrsta flokks veitingastaður,
fullkominn fyrir notalegar
gæðastundir með vinum,
fjölskyldu eða vinnufélögum.
GIRNILEGUR
OG SPENNANDI
MATSEÐILL
Pantaðu borð í síma 483 4700 | www.hverrestaurant.is
50 ára Magnús ólst
upp í Garðabæ en býr
á Akureyri. Hann er
íþróttakennari að
mennt frá ÍKÍ og við-
skiptafræðingur frá
STU í Óðinsvéum.
Hann er viðskipta-
stjóri hjá A4. Magnús er formaður
handknattleiksdeildar Þórs á Ak-
ureyri.
Börn: Hugrún Líf, f. 2001, Aron Ingi, f.
2004, og Júlía Karen, f, 2009.
Foreldrar: Eggert Magnússon, f.
1947, fv. formaður KSÍ, og Guðlaug
Ólafsdóttir, f. 1948, húsmóðir. Þau
eru búsett í Valencia á Spáni.
Magnús Ingi Eggertsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú þarft að gefa sjálfum þér tíma
þessa dagana. Búðu þig undir hvoru-
tveggja svo þú getir sinnt því sem máli
skiptir.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú skalt fara eftir ráðum góðs vinar í
samskiptum við ættingja þinn í dag. Hálfn-
að er verk þá hafið er.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vertu viðbúinn því að þurfa að
verja mál þitt fyrir háttsettum aðilum.
Passaðu að hafa nóg svigrúm í dag.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert á endasprettinum með
viðamikið verkefni. Gerðu þín mál upp hið
fyrsta. Auðgaðu því anda þinn.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Að gera lítið úr sjálfum sér, jafnvel í
gríni, er glæpur núna. Spjall um gömlu
góðu dagana og örlæti veita þér vellíðan.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér líður vel með sjálfa/n þig í dag,
og þú ert til í hvað sem er. Allir þurfa endr-
um og eins að fá að vera óþekkir, og nú er
þinn tími kominn.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hafðu augun opin fyrir þeim mögu-
leikum sem þér gefast á kynnum við fólk
sem deilir með þér áhugamáli þínu. Ef þú
gengur fram af fólki mun það svara þér
fullum hálsi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú verður uppiskroppa með
hugmyndir af því að vinna einn. Reyndu að
vera í þægilegu umhverfi því það mun
létta lund þína.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er alltaf best að horfast í
augu við raunveruleikann og haga orðum
og gerðum í samræmi við hann. Vertu skýr
í framsetningu og haltu þig við stað-
reyndir.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ættir að endurskoða líferni
þitt og taka meira mið af því sem er hollt
og heilsusamlegt. Sýndu nú dirfsku.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert sjálfsöruggur og til í
hvaða áskorun sem er – sérstaklega ef
ástin kemur til sögu. Hann/hún mun ann-
aðhvort deila leyndarmáli með þér eða þú
með honum/henni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Fylgdu engum að málum fyrr en þú
ert viss um að þínum hag sé borgið.
Endurskoðaðu áætlun þína og breyttu
henni.
og var um tíma í sveitarstjórn fyrir
flokkinn en einnig með H-lista, fyrst
með Arnþóri Þórólfssyni sem hafði
verið lengi í sveitarstjórn og síðar
Sigurbirni Marinóssyni og fleira frá-
Þorvaldur var í sveitarstjórn
Reyðarfjarðar 1978-1998. „Ég hef
alla tíð haft mikinn áhuga á pólitík
og fylgdist ungur vel með lands-
málum, gekk í Sjálfstæðisflokkinn
Þ
orvaldur Aðalsteinsson
er fæddur 20. ágúst
1950 í Reykjavík, en
fjölskyldan fluttist til
Reyðarfjarðar þegar
hann var á fjórða ári. Þá hafði faðir
hans ásamt öðrum keypt þar bíla-
verkstæði. Reyðarfjörður var síðan
starfsstaður fjölskyldunnar.
„Þarna var á margan hátt mjög
gott að vera, mikið frelsi fyrir börn
til að leika sér og næg vinna t.d. á
síldarárunum frá um 1963 til 1967.
Snemma kom mikill áhugi fyrir ís-
lenskri glímu, þar sem faðir minn
hafði æft og stundað glímu með KR
í Reykjavík á sínum yngri árum og
fram undir það að fjölskyldan flutti
austur. Hann tók til við að kenna
glímu á Reyðarfirði um 1960 og
vildu flestir krakkar og unglingar
vera með og hefur glíma verið
stunduð á Reyðarfirði frá um 1960
til dagsins í dag og hafa Reyðfirð-
ingar náð langt á landsvísu.“ Þor-
valdur varð fjórum sinnum glímu-
kóngur Austurlands.
Eftir unglingaskóla á Reyðarfirði
fór Þorvaldur í gagnfræðabekk í
Reykholti í Borgarfirði og síðan
einn vetur í 3. bekk Verslunarskóla
Íslands. Hann stundaði síðan nám í
Iðnskóla Austurlands, sem þá var á
Egilsstöðum, 1970-1974 og lærði bif-
vélavirkjun og fékk meistarabréf í
þeirri grein. Hann var síðan í verð-
bréfanámi hjá HÍ veturinn 2000-
2001.
Starfsvettvangur Þorvaldar hefur
verið á Reyðarfirði og lengst af sem
framkvæmdastjóri hjá fjölskyldu-
fyrirtækinu Lykli ehf. „Það hafði
starfað frá 1954 sem bílaverkstæði,
en breyst talsvert í tímans rás og
um 1980 orðin fjölbreytt starfsemi í
bílaviðgerðum, verslun og ýmiss
konar þjónustu, m.a. í samstarfi við
Eimskip, Skeljung og Sjóvá. Á árinu
2000 var hins vegar orðinn svo mik-
ill samdráttur almennt á Austur-
landi sem hafði veruleg áhrif á starf-
semi fyrirtækisins, þannig að
ákveðið var að hætta öllum form-
legum rekstri.“ Síðan þá hefur Þor-
valdur að mestu verið að umsýsla
með fasteignir sem verið höfðu í
eigu fyrirtækisins.
bæru fólki.“ Síðustu fjögur árin sem
Þorvaldur var í sveitarstjórninni í
meirihluta D-lista og H-lista var
hann oddviti. „Á þeim tíma var gerð-
ur sögulegur samningur um samein-
ingu Neskaupstaðar, Eskifjarðar og
Reyðarfjarðar, síðar hafa fleiri bæst
í hópinn. Á þessum 20 árum sem ég
sat í sveitarstjórn fór mikill tími í að
halda vakandi möguleikanum á stór-
iðju og stórvirkjun fyrir austan, sem
að lokum varð að veruleika fyrir til-
stuðlan ríkisstjórnar Davíðs Odds-
sonar og Halldórs Ásgrímssonar.“
Helsta áhugamál Þorvaldar er
miðaldaættfræði. „Ég hef lengi haft
áhuga á ættfræði og búinn að fara í
gegnum nærættfræðina, getum við
sagt. En svo lengi sem ég man eftir
mér hef ég verið að lesa bæði Ís-
lendingasögur og Sturlungu og allt
sem ég hef komist yfir frá fyrri
tíma. Ég fór að rannsaka ættfræð-
ina frá þessum tíma mjög vel og það
er margt sem er óskráð, finnst mér.
Ég er alveg sannfærður um hafa
fundið miðaldaættir sem eru ekki
skráðar í Íslendingabók. Ég hef
ekki komið þessu á framfæri enn þá
en á þetta hjá mér. Næst á dag-
skránni hjá mér er að komast í
handrit Steingríms Jónssonar bisk-
ups.“
Fjölskylda
Eiginkona Þorvaldar er Birna
Guðmundsdóttir, f. 3.9. 1952, ráð-
gjafi einstaklinga. Foreldrar hennar
eru Guðmundur V. Björgvinsson, f.
1.5. 1925, d. 9.4. 2015, vélstjóri og
Svanhvít Hannesdóttir, f. 17.1. 1928,
húsmóðir.
Börn Þorvaldar og Birnu eru 1)
Aðalsteinn Vigfús Þorvaldsson, f.
19.12. 1970, sambýliskona hans er
Linda Rós Andrésdóttir og dóttir
þeirra er Andrea Birna Aðalsteins-
dóttir, f. 16.8. 1995, sambýlismaður
hennar er Björgvin Jónsson. 2) Daði
Páll Þorvaldsson, f. 4.10. 1977, eig-
inkona hans er Lupe Luzuriaga
Calle. Dóttir Daða frá fyrra sam-
bandi með Margréti Helgadóttur er
Helga Guðrún Daðadóttir, f. 14.3.
1998.
Systkini Þorvaldar eru Sigurður
Eiríkur, f. 19.5. 1953, verkstjóri á
Þorvaldur Aðalsteinsson framkvæmdastjóri – 70 ára
Hjónin Birna og Þorvaldur á leiðinni til Tenerife árið 2012.
Rannsakar miðaldaættir
Barnabörnin Helga Guðrún og Andrea Birna ásamt Birnu, ömmu sinni, og
ömmu Birnu, Árnýju Þórðardóttur 103 ára, árið 2010.
30 ára Sigurður ólst
upp í Hafnarfirði en býr
í Reykjavík. Hann lærði
kvikmyndaleikstjórn í
Sarajevó í Bosníu og er
kvikmyndagerð-
armaður og trommu-
leikari Grísalappalísu.
Maki: Kolfinna Nikulásdóttir, f. 1990,
menntuð í leikstjórn frá Listaháskóla Ís-
lands.
Börn: Unnur, f. 2016, og Eysteinn, f.
2019.
Foreldrar: Víglundur Möller Sívertsen, f.
1961, húsasmíðameistari, og Halldóra
Karlsdóttir, f. 1963, bókari. Þau eru bú-
sett í Hafnarfirði.
Sigurður Möller Sívertsen
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is