Morgunblaðið - 20.08.2020, Page 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 2020
september, en Hlynur Páll bendir á
að vegna samkomutakmarkana
verði sýninga- og miðafjöldi tak-
markaður. Í ljósi þess að aðeins sé
hægt að nýta rúmlega 30% af saln-
um ef virða á tveggja metra regluna
liggur beint við að spyrja Hlyn Pál
hvort sýningin muni standa undir
sér kostnaðarlega. „Sólóverk á borð
við Ævi stendur hiklaust undir sér
þótt aðeins sé 30% sætanýting í saln-
um,“ segir Hlynur Páll og tekur
fram að gróðasjónarmið ein geti ekki
ráðið för í núverandi ástandi. „Auð-
vitað verður sýningarkvöldið að
standa undir sér fjárhagslega, en í
núverandi ástandi er kannski ekki
hægt að gera kröfu um mikið meira
en það,“ segir Hlynur Páll og bendir
á að hjá Íd hafi tekjur af miðasölu
yfirleitt staðið undir 15-20% af
rekstri flokksins sem sé lægra en
margra annarra sviðslistastofnana,
en sem dæmi má nefna að hjá Borg-
arleikhúsinu standa miðasölutekjur
og annað sjálfsaflafé undir 60% af
rekstri leikhússins.
Búast við langtímaáhrifum
Það er ekkert launungarmál að
vinsælar sýningar standa undir til-
raunastarfsemi og minni sýningum
sem oft þarf að borga með. Ef tak-
mörkun á sætaframboði leiðir til
þess að sýningar koma aðeins út á
núlli er þá ástæða til að óttast að
minna fari fyrir hvers kyns tilrauna-
starfsemi innan sviðslistastofnana?
„Ég er sannfærður um að sviðs-
listastofnanir muni leita allra leiða til
að láta það ekki gerast,“ segir Hlyn-
ur Páll sem einnig er formaður Sam-
taka atvinnuveitenda í sviðslistum
(SAVÍST), en aðilar að samtökunum
eru Borgarleikhúsið, Íslenski dans-
flokkurinn, Íslenska óperan, Menn-
ingarfélag Akureyrar, RÚV, Sinfón-
íuljómsveit Íslands og Þjóðleikhúsið.
„Víða erlendis er rekstrarmódelið
annars eðlis þar sem sviðslistastofn-
anir þurfa ekki að afla jafnhás hlut-
falls af rekstrinum í formi miða-
sölutekna og sjálfsaflafjár.“
Sérðu fyrir þér að yfirstandandi
kóf geti breytt rekstrarlandslagi
sviðslistastofnana hérlendis?
„Kófið er auðvitað áfall fyrir okk-
ur öll. Það liggur fyrir að flestar
sviðslistastofnanir hafa orðið fyrir
algeru tekjufalli og einnig kostn-
aðarauka vegna samkomutakmark-
ana og í raun algerrar stöðvunar
starfseminnar. Þessi stöðvun er auð-
vitað til komin vegna þvingaðra
nauðsynlegra aðgerða stjórnvalda.
Við finnum hins vegar fyrir skiln-
ingi, stuðningi og hvatningu frá gest-
um okkar og stjórnvöldum. Við trú-
um því þar af leiðandi að tryggt
verði að þessum stofnunum verði
bætt áfallið, þannig að þær geti svo,
þegar rofar til, haldið áfram hefð-
bundinni starfsemi. Við höfum jafn-
framt fulla trú á því að gestir okkar
og stjórnvöld kjósi ekki að til við-
bótar við algert stopp nú á þessu ári,
þá verði starfsemi menningarstofn-
ana sköðuð og löskuð til lengri tíma.
Því er unnið út frá því að lausn verði
fundin með stjórnvöldum og að
stofnanirnar fái fjárhagslegt áfall
bætt,“ segir Hlynur Páll og bendir á
sú seinkun sem þegar hefur orðið á
yfirstandandi sýningarári hafi þegar
haft áhrif á skipulag sviðslista-
stofnana. „Sú frestun á frumsýn-
ingum sem þegar hefur orðið mun
hafa ruðningsáhrif á allt sýningar-
árið. Það eru allir í því núna að end-
urskipuleggja sig og bíða spenntir
eftir að geta hafið starfsemi á ný.“
Fólk þyrstir í menningu
SAVÍST sendi í síðustu viku frá
sér ályktun þar sem stjórnvöld voru
hvött „til að leita leiða til að starf-
semi lista- og menningarstofnana
geti farið af stað á nýjan leik í þrep-
um á næstu vikum.“ Hlynur Páll
segist skynja það sterklega hjá al-
menningi að fólk sé þyrst í að geta
notið menningar og lista að því til-
skildu að hægt sé að tryggja sótt-
varnir. „Við hjá Íslenska dans-
flokknum héldum lítinn viðburð í
Gamla bíói í byrjun júní þegar byrj-
að var að slaka á samkomutakmörk-
unum þar sem við kynntum þrjú
verk í vinnslu og þar var stappfullt.
Ég er handviss um að fólk þyrstir í
að fara að lifa lífinu eðlilega og fá að
njóta menningar,“ segir Hlynur Páll
og tekur fram að í framhaldi af
ályktun síðustu viku sé SAVÍST í
góðu samtali við bæði sóttvarna-
yfirvöld og heilbrigðisyfirvöld.
„Við erum, í samráði við yfirvöld,
að vinna tillögur að því hvernig út-
færa megi það að hefja starfsemi
sviðslistastofnana á ný, í þrepum að
sjálfsögðu. Það er mjög mikilvægt að
við fáum að minnsta kosti leyfi til að
byrja að æfa, því eins og staðan er
núna er mjög erfitt að æfa verk
nema flytjendur séu í mesta lagi
tveir sem setur þröngar skorður.
Með því móti gætu sviðslistastofn-
anir verið tilbúnar til sýningarhalds
þegar byrjað verður að slaka á sam-
komuhöftum í þrepum og við von-
umst til að takmarkanirnar muni
minnka eða hverfa sem fyrst í sept-
ember,“ segir Hlynur Páll og áréttar
að yfirstandandi viðræður séu í mjög
góðu ferli og samráðið gott. „Von-
andi verða nánari upplýsingar um
hvernig starfsemi sviðslistastofnana
geti farið fram þegar næsta auglýs-
ing yfirvalda verður kynnt eftir
helgi.“
Leikhús í Danmörku sem byrjuð
eru að sýna hafa tekið upp grímu-
skyldu áhorfenda. Sérðu fyrir þér að
íslenskrar sviðslistastofnanir fari
svipaða leið?
„Þetta er eitt af því sem verið hef-
ur til umræðu. Hugmyndin um
grímunotkun er ekki mjög aðlaðandi
og ýmsir óttast að það geti haft nei-
kvæð áhrif á upplifun áhorfenda.
Engu að síður hefur reynslan sýnt
að grímur hafa áhrif í sóttvörnum og
geti því verið mikilvægt tæki. Það
gæti því komið til þess á einhverjum
fyrstu stigum tilslakana að áhorf-
endur verði hvattir til að bera
grímu.“
Sviðsmyndir vetrarins nefnast
logn, þoka og stormur
Hlynur Páll bendir á að gott sé að
nýta kófið til að tileinka sér æðru-
leysi. „Maður þarf, sem stjórnandi
sviðslistastofnunar, að sætta sig við
að það er mjög margt sem maður
hefur ekki stjórn á og maður þarf að
gera ráð fyrir ýmsum sviðsmyndum.
Við hjá Íslenska dansflokknum átt-
um góðan vinnufund með okkar
dönsurum þar sem við kynntum ólík-
ar sviðsmyndir, því það getur greini-
lega allt gerst. Við ákváðum að fara
ekki í litagreiningu og tala um
grænt, gult og rautt plan. Við nefn-
um sviðsmyndirnar okkar „logn“ –
þar sem allt er í góðu, engin smit í
samfélaginu eða samkomubann,
„þoka“ – þar sem við erum stödd
núna þar sem ríkja 100 til 500 manna
samkomutakmarkanir og tveggja
metra reglan er virk þar sem það
eru smit í samfélaginu og „stormur“
– sem á við ástandið eins og það var í
vor. Hjá Íslenska dansflokknum
erum við því búin að stilla upp næstu
mánuðum með öllum þessum mögu-
leikum og skoða hvernig við getum
unnið í mismunandi aðstæðum hvort
sem hér ríkir logn, þoka eða storm-
ur. Þrátt fyrir hömlur og erfiðar að-
stæður er alltaf hægt að skapa og
vera skapandi þótt útfærslan sé
ólík,“ segir Hlynur Páll að lokum.
„Gleðiefni að geta frumsýnt“
Íslenski dansflokkurinn frumsýnir Ævi í næsta mánuði Formaður Samtaka atvinnuveitenda í
sviðslistum vonar að hægt verði að draga úr samkomutakmörkunum sem fyrst í september
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Það er okkur mikið gleðiefni að
geta frumsýnt dansverkið Ævi eftir
Ingu Maren Rúnarsdóttur þrátt fyr-
ir þær samkomutakmarkanir sem nú
gilda,“ segir Hlynur Páll Pálsson,
framkvæmdastjóri Íslenska dans-
flokksins (Íd), en verkið verður
frumsýnt á Nýja sviði Borgarleik-
hússins laugardaginn 5. september.
„Inga Maren, sem er fastráðinn
dansari hjá
Íslenska dans-
flokknum og ný-
komin úr fæðing-
arorlofi, fékk
listamannalaun
og styrk frá
sviðslistaráði til
að vinna verkið
og í framhaldinu
af því óskaði hún
eftir samstarfi við
okkur. Verkið var
upphaflega á dagskrá hjá okkur í
vor, en þá þurfti að fresta því vegna
samkomubannsins sem sett var á
vegna kórónuveirufaraldursins. Svo
þegar önnur bylgja faraldursins fór
af stað fyrir skömmu með tilheyr-
andi takmörkunum aftur ákváðum
við með Ingu Maren að láta samt
slag standa og frumsýna þrátt fyrir
nýjustu samkomutakmarkanir,“
segir Hlynur Páll og tekur fram að
auðvitað verði í öllu farið eftir fyrir-
mælum stjórnvalda til að tryggja
sóttvarnir.
Gróðasjónarmið ráða ekki för
„Nýja sviðið tekur venjulega um
240 manns í sæti, en aðeins verða í
boði allt að 80 sæti á hverri sýningu
þannig að við getum tryggt tveggja
metra bil milli ótengdra aðila. Gert
er að ráð fyrir að setið verði á öllum
bekkjum salarins. Seld verða tvö og
tvö sæti saman og gert ráð fyrir fjór-
um auðum sætum á milli ótengdra
aðila og síðan raðað í sikksakk milli
bekkja,“ segir Hlynur Páll og tekur
fram að verk Ingu Marenar sé full-
komið verk til að sýna á tímum sam-
komutakmarkana þar sem virða þarf
tveggja metra regluna þar sem um
sólóverk sé að ræða. „Óhjákvæmi-
lega náum við að virða tveggja metra
regluna á sviðinu þar sem danshöf-
undurinn dansar eigið verk og nær
ein að túlka æviskeiðin,“ segir Hlyn-
ur Páll. Bendir hann á að Júlíanna
Lára Steingrímsdóttir hanni bún-
inga og sviðsmynd, en sjónræn
ánægja mun vera höfð í fyrirrúmi.
Tónlistin er eftir Ólaf Arnalds þar
sem hann fléttar saman þekktum og
óþekktum lögum úr eigin smiðju.
Næstu sýningar verða 11. og 13.
Hlynur Páll
Pálsson
Ljósmynd/Saga Sigurðardóttir
Sólóverk Inga Maren Rúnarsdóttir í sólóverkinu sínu Ævi sem Íslenski dansflokkurinn frumsýnir senn. Fram-
kvæmdastjóri Íd segir að sólóverk standi undir sér í sýningu þótt aðeins verði hægt að vera með 30% sætanýtingu.
Stjórnendur Mariinsky-ballettflokksins heimsfræga í
Rússlandi hafa þurft að fella niður allar sýningar á næst-
unni vegna kórónuveirunnar. Samkvæmt upplýsingum
frá heilbrigðisyfirvöldum í Sankti Pétursborg veiktust
30 starfsmenn, að stærstum hluta dansarar flokksins, af
kórónuveirunni og voru þrír lagðir inn á spítala til að-
hlynningar. Nærri 300 öðrum dönsurum var fyrirskipað
að fara í heimasóttkví í varúðarskyni.
AFP
Fella niður sýningar vegna sýkingar
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is
Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga
VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI,
TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI?
Fjölmör
stuttnáms
í handve
g
keið
rki.
Skráning og upplýsingar á
www.handverkshusid.is