Morgunblaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 60
60 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 2020
„Ísbjarnarsögur“ nefnist spurn-
ingaskrá sem Þjóðminjasafn Ís-
lands sendir út um þessar mundir
og er tilgangurinn að safna minn-
ingum fólks um ísbirni með áherslu
á að rannsaka ferðir þeirra til Ís-
lands í sögulegu og samtímalegu
samhengi, eins og því er lýst í til-
kynningu. Spurningaskráin er hluti
af þriggja ára rannsóknarverkefni
sem unnið er í samstarfi íslenskra
og alþjóðlegra háskóla og safna og
er styrkt af Rannsóknasjóði Rannís
2019-2021. Spurningaskránni er
svarað á vefsíðu gagnasafnsins
Sarpur á slóðinni
sarpur.is/Spurningaskra.aspx?ID-
=2083958. „Þær frásagnir sem ber-
ast verða varðveittar um ókominn
tíma og gerðar öllum aðgengilegar,
nema annað sé tekið fram. Nöfn
heimildarmanna birtast ekki,“ seg-
ir í tilkynningu og að markmið
rannsóknarverkefnisins, sem ber
heitið „Ísbirnir á villigötum“, sé að
auka þekkingu á fjölþættum
tengslum dýra, manna og umhverf-
is á tímum loftslagshlýnunar og
hækkandi sjávarmáls.
Ísbjarnasögur Frásagnir sem berast af ís-
björnum verða varðveittar um ókomna tíð.
Óskað eftir sögum
af ísbjörnum
Morgunblaðið/RAX
Gleðistundunum sem fyrirhug-
aðar voru á Kvoslæk í Fljótshlíð
22. og 29. ágúst verður frestað til
sumarsins 2021 vegna Covid-19.
Laugardaginn 22. ágúst stóð til
að Jóhann Ísak Pétursson jarð-
fræðingur segði frá náttúru
landsins í nálægð Markarfljóts og
29. ágúst átti að bjóða upp á dag-
stund með Schubert og Brahms.
Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari og
vinir hennar hefðu þá flutt kamm-
erverk eftir J. Brahms og F.
Schubert en tónleikarnir munu
fara fram næsta sumar, líkt og
fyrr sagði.
Frestað Gleðistundirnar verða ekki fleiri á
Kvoslæk í sumar að sögn skipuleggjanda
þeirra, Rutar Ingólfsdóttur fiðluleikara.
Gleðistundum
frestað til 2021
Elskuleg eiginkona mín erekki hugljúf ástarsaga,eins og nafnið gefur tilkynna, heldur spenn-
andi og að mörgu leyti vel gerð
glæpasaga og ósjálfrátt kemur
ákveðin þekkt kvikmynd upp í
hugann. Samt gengur ekki alveg
allt upp sem skyldi og eins og
smáatriði verða glæpamanni oft að
falli fellur höfundurinn Samantha
Downing í ákveðna gryfju undir
lok sögunnar og það dregur úr
trúverðugleikanum.
Hjónin Tobias, sem er reyndar
tilbúið nafn sögumanns, og Milli-
cent, eiginkona hans, búa ásamt
tveimur börnum sínum á ferming-
araldri í vernduðu hverfi efnaðs
fólks smábæjar í Flórída. Hann er
tenniskennari og hún fasteignasali,
dæmigert millistéttarfólk,
sem vill vera meira en
það er. Fyrir bragðið eru
þau yfirkeyrð af vinnu,
þótt þau virðist aldrei
eiga nóg, og álagið bara
eykst. Týpur, sem varast
ber að fara með í síðdeg-
iste í miðri viku eða
morgunte um helgar,
hvað þá þegar dimma tek-
ur, eftir á að hyggja.
Lífið gengur sinn vana-
gang, að minnsta kosti á yfirborð-
inu, en hjónin eiga vægast sagt
óvenjulegt áhugamál og það heldur
þeim við efnið. Dóttirin Jenna er í
fótbolta, þar sem mörk skilja á
milli liða í leik en ekki stig, eins og
þó stendur í þýðingu, og sonurinn
Rory lætur finna fyrir sér á
óvenjulegan hátt af táningi að
vera.
Leyndarmál, lygar og undirferli
einkenna frásögnina. Gjörðir
fjöldamorðingja á svæðinu fyrir
nær tveimur áratugum eru rifjaðar
upp og þær fara misjafnlega í
íbúana nú sem fyrr. Brjálæðið
leynir sér ekki og framkoma
hjónanna, hugsunarháttur þeirra
og hvernig þau bregðast
við hindrunum og hrinda
þeim úr vegi bera með sér
meira hugmyndaflug af
verra taginu en gengur og
gerist í daglegu lífi.
Samband hjónanna virð-
ist slétt og fellt með sam-
eiginlegt markmið í huga,
en þótt þau séu samstíga
með sama takmark sem
endapunkt er í raun um
störukeppni að ræða, sam-
keppni um yfirráð, hvort er
klárara, hvort hefur síðasta orðið.
„Við hættum bæði að tala um smá-
atriðin,“ (bls. 103) segir margt, því
ekkert er heilagt í atinu og öllum
meðölum beitt. Lýsingin á þessari
baráttu er hryggjarstykki bók-
arinnar, en stundum er farið yfir
strikið, höfundur ætlar sér um of
og það dregur úr mætti hennar.
Undirferli Leyndarmál, lygar og
undirferli einkenna frásögnina í
glæpasögu Samönthu Downing,
Elskuleg eiginkona mín.
Út yfir allan
þjófabálk
Glæpasaga
Elskuleg eiginkona mín bbbnn
Eftir Samantha Downing.
Marta Hlín Magnadóttir þýddi.
Björt, 2020. Kilja. 424 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
„Sjávarmál“ nefnist útilistaverk sem
valið var úr 70 innsendum tillögum í
samkeppni um nýtt útilistaverk í
Vesturbæ Reykjavíkur en höfundar
þess eru arkitektarnir Baldur Helgi
Snorrason og David Hugo Cabo og
unnu þeir tillöguna í samstarfi við
Andra Snæ Magnason rithöfund.
Borgarstjórinn í Reykjavík, Dag-
ur B. Eggertsson, tilkynnti niður-
stöðu dómnefndar í fyrradag við há-
tíðlega athöfn á Eiðsgranda þar sem
verkið kemur til með að vera. Í til-
kynningu segir að dómnefnd telji
„Sjávarmál“ vera einstakt verk sem
skapi spennandi umhverfi og fjalli
um aðkallandi viðfangsefni um leið
og það uppfylli öll skilyrði sam-
keppninnar um að auðga mannlíf í
Vesturbænum.
Safnar hljóðum hafsins
„Verkinu er ætlaður staður á sjáv-
arkambinum við Eiðsgranda og
blasir við hafi. Ekkert útilistaverk er
á þessu svæði og það mun auka nota-
gildi og aðdráttarafl svæðisins fyrir
íbúa og þá sem þar eiga leið um. Á
þeirri hlið listaverksins sem snýr að
hafinu er steypt innbjúg skál sem
safnar hljóðum hafsins og magnar
þau upp með einföldu endurkasti
fyrir þann sem stendur fyrir framan
skálina. Á þeirri hlið sem snýr að
byggð er hrjúfur veggur þar sem ís-
lensk heiti fyrir hafið eru letruð.
Áhrif loftslagsbreytinga á hafið eru
höfundum hugleikin og verkinu er
ætlað að bjóða upp á tækifæri fyrir
þá sem eiga leið hjá til að staldra við,
upplifa krafta hafsins og hlusta eftir
því sem náttúran hefur að segja okk-
ur,“ segir í tilkynningunni.
Kosning borgarbúa
Samkeppni um útilistaverk í
Vesturbæ var haldin samkvæmt
samkeppnisreglum Sambands ís-
lenskra myndlistarmanna og í kjöl-
far íbúakosningar í verkefninu
Hverfið mitt 2020 en á meðal þess
sem Vesturbæingar kusu um var að
halda samkeppni um gerð úti-
listaverks í hverfinu, að því er fram
kemur í tilkynningunni en Hverfið
mitt er íbúalýðræðisverkefni á veg-
um Reykjavíkurborgar þar sem íbú-
um gefst kostur á að setja fram hug-
myndir um úrbætur í nærumhverfi
sínu og þeim hugmyndum sem hljóta
brautargengi í kosningu meðal
borgarbúa er hrint í framkvæmd.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Forvitinn Tilkynnt var í fyrradag hvaða tillaga þótti sú besta í samkeppni um útilistaverk í Vesturbæ Reykjavíkur.
Athöfnin fór fram á Eiðsgranda og kisi í könnunarleiðangri fylgdist forvitinn með þeim Degi, Andra Snæ og Baldri.
Dómnefnd taldi „Sjávar-
mál“ besta listaverkið
Líkan Andri Snær sýnir Degi borg-
arstjóra líkan af listaverkinu.