Morgunblaðið - 20.08.2020, Side 64
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
mánudaga - sunnudaga 12-18
20-50%
Sparadu-
af borðstofu-
húsgögnum
20. ágúst - 7. september
20-25%
Sparadu-
af öllum borðbúnaði
PARKER BORÐSTOFUBORÐ
3 plankar. Svartlakkaður eikarspónn. L 200 x B 100 cm. 139.900 kr.
Nú 111.900 kr. SPARAÐU 28.000 kr.
Framlenging. 16.900 kr.Nú 12.900 kr. SPARAÐU 4.000 kr.
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 233. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Knattspyrnukonan Svava Rós Guðmundsdóttir hefur
slegið í gegn með Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni
og beinir nú spjótum sínum að íslenska landsliðinu en
þessi 24 ára framherji segir það ekkert launungarmál að
hún vilji vera mikilvægur hlekkur þess. Hún sagði Morg-
unblaðinu frá krefjandi en skemmtilegu lífi sem atvinnu-
kona í Svíþjóð en hún hefur skorað fimm mörk og gefið
eina stoðsendingu í ellefu leikjum það sem af er núver-
andi tímabils fyrir Kristianstad en þar spilar hún undir
leiðsögn þjálfarans Elísabetar Gunnarsdóttur. »55
Ekkert leyndarmál að hún vilji vera
mikilvægur hlekkur í landsliðinu
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Fyrir rúmu ári setti Kristín J. Hjart-
ardóttir, ritari forsætisráðherra, sér
það markmið að synda á 60 mismun-
andi stöðum á landinu, ýmist í ám,
vötnum eða sjó, fyrir 60 ára afmælis-
daginn 9. ágúst síðastliðinn. „Loka-
hnykkurinn var í Jökulsárlóni og nú
höfum við verið að tala um að næsta
markmið verði 100 staðir,“ segir hún.
Sund hefur fylgt Kristínu frá
barnæsku, en það var fyrst fyrir um
fimm árum að hún vogaði sér út í sjó.
„Unnur Björg Hansdóttir, sam-
starfskona mín, sannfærði mig um að
sjósund væri mjög sniðugt og gott
fyrir mig en fram að því hafði ég
fundið því allt til foráttu og gefið lítið
fyrir orð sjósundsfólks um ágæti
þess. Taldi fólkið vera stórskrýtið að
halda slíku fram. En ég lét á þetta
reyna og féll fyrir því í fyrstu tilraun
í Nauthólsvík enda þekki ég ekki
aðra eins náttúrutengingu.“
Kristín neitar því ekki að sér hafi
þótt sjórinn kaldur þennan nóv-
emberdag, þegar ferðin, sem ekki
sér fyrir endann á, hófst. „Ég fann
líka fyrir oföndun en ég vandist
þessu jafnt og þétt, varð háð teng-
ingunni við sjóinn og hef fundið hvað
sjósundið er gott fyrir sál og lík-
ama.“
Hringurinn og hálendið
Sjórinn getur verið kaldur við
landið, ekki síst á veturna, og þótt
Kristín fari um tvisvar til þrisvar í
sjóinn vikulega tók hún smá forskot
á sæluna og hóf atlöguna að 60 staða
markinu 17. júní í fyrra. „Við þeytt-
umst um allt land í fyrrasumar og
fram á haust auk þess sem við fórum
nokkrum sinnum út á land í vetur til
að ná settu marki,“ segir hún. Sama
hefur verið uppi á teningnum í sum-
ar. „Við höfum þrisvar farið hring-
veginn og einu sinni yfir Sprengi-
sand til þess að leita að vötnum og
ám og það hefur verið gaman að
skoða landið með þessum hætti, eftir
fegurð vatna, áa og sundstaða í sjó.“
Kristín segist reyna að synda þar
sem hún sjái fallegan stað. Dóttirin
er helsti sundfélaginn og sonurinn er
líka stundum með í för, en eiginmað-
urinn lætur sér nægja að mynda
sundfólkið. Hún segir erfitt að gera
upp á milli staða en Jökulsárlónið
komi fyrst upp í hugann. „Ég var
sérstaklega kát eftir að hafa synt í
því.“
Kristín segir að sjósundið gefi sér
mikið. „Það er á við besta gleðilyf og
ég er alltaf kát eftir hverja sjóferð.
Því mæli ég með því við hvern sem
er.“ Vegna sjósundsins hefur ferðum
í sundlaugar fækkað, en hún hleypur
auk þess reglulega og stundar jóga.
„Ég hef alltaf hreyft mig mikið, hef
til dæmis hlaupið kerfisbundið frá
því ég var 25 ára. Helsta vandamálið
er að koma allri þessari hreyfingu
fyrir í dagskránni!“
Fólk, sem stundar sjósund reglu-
lega, segir gjarnan að það sé lífsstíll,
sem erfitt sé að vera án eftir að hafa
tekið hann upp. Kristín er í þessum
hópi og er þegar farin að leggja drög
að nýjum sundstöðum til að heim-
sækja á næstunni. „Við höfum verið
að skoða hálendið, því þar eru marg-
ir fallegir staðir sem gaman væri að
takast á við.“
Synti á 60 stöðum í
ám, vötnum og sjó
Ljósmyndir/Egill Eðvarðsson
Í Fjallsárlóni Kristín J. Hjartardóttir lætur ekkert stöðva sig.
Markmið Kristínar J. Hjartardóttur á 60 ára afmælisárinu
Á Drangsnesi Kristín fagnar hverjum áfanga að hætti afrekskonunnar.
Lára Bryndís Eggertsdóttir organisti leikur á níundu
og síðustu tónleikum tónleikaraðarinnar Orgelsumar
2020 í Hallgrímskirkju í dag kl. 12.30. Á efnisskránni
er þó ekkert orgelverk að finna heldur eingöngu
orgelumritanir Láru á píanó- og hljómsveitarverkum.
Eru það kaflar úr Rímnadanslögum Jóns Leifs, rúm-
enskir þjóðdansar sem Béla Bartók útfærði fyrir pí-
anó og hljómsveit og tónaljóðið Moldá (Vltava) eftir
tékkneska tónskáldið Bedrich Smetana. Lára lauk
einleikaraprófi frá Tónskóla þjóðkirkj-
unnar með hæstu einkunn vorið
2002 og flutti árið 2018 aftur
heim til Íslands eftir 10 ára bú-
setu í Danmörku þar sem hún
lauk meistaraprófi í kirkjutónlist
frá Tónlistarháskólanum í Árós-
um. Einnig starfaði hún sem
organisti við Sønderbro-kirkju
í Horsens og semballeik-
ari hjá barokksveitinni
BaroqueAros í Árós-
um.
Ekkert orgelverk á orgeltónleikum