Morgunblaðið - 14.11.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kaupfélag Skagfirðinga og dótturfyr-
irtæki afhentu í gær Fjölskylduhjálp
Íslands rúm fjögur tonn af mat-
vælum. Það er fyrsti hlutinn af um 40
þúsund matarskömmtum sem fyrir-
tækið mun afhenda hjálparstofnun-
um vegna matarúthlutunar fram til
jóla.
„Þetta er mjög stór sending mat-
væla sem verður dreift í Reykjavík á
mánudag og þriðjudag og í Reykja-
nesbæ á miðvikudag og fimmtudag.
Þetta verður alrausnarlegasta út-
hlutun sem við höfum nokkurn tím-
ann séð,“ segir Ásgerður Jóna Flosa-
dóttir, formaður Fjölskylduhjálpar,
og vísar þá til úthlutunar matvæla frá
KS og öðrum sem afhent verða fjöl-
skyldum vikulega fram að jólum, alls
sautján úthlutunardaga.
Í sendingunni sem KS og dóttur-
félög afhentu í gær er matur fyrir um
700 heimili til úthlutunar í næstu
viku. Þar er mikið af fiski, kjöti og
mjólkurvörum sem fyrirtækin fram-
leiða en einnig vörur sem fyrirtækið
hefur keypt til að bæta við. Magnús
Freyr Jónsson, forstöðumaður
Mjólkursamlags KS, segir að ekki sé
gaman að borða hamborgara nema
hafa brauð og franskar. Fyrirtækið
sjálft framleiði hamborgara og sósur
en hafi keypt brauð og franskar. Þá
fylgi kartöflur fiski og súpukjöti.
Ásgerður Jóna segir að vörur frá
fleiri fyrirtækjum verði í jólaúthlut-
uninni, þegar að henni kemur, þótt
vörurnar frá KS verði uppistaðan.
„Þetta er stórkostleg gjöf. Fólk verð-
ur svo glatt þegar það fær þetta og
við þurfum ekki að hafa áhyggjur af
því að geta ekki hjálpað fólki fyrir jól-
in. Svo hefur þetta smitað til annarra
fyrirtækja.“
KS og dótturfélög gefa einnig
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og
Hjálparstofnun kirkjunnar mat til að
úthluta fyrir jólin. Fyrsta sendingin
fer til Mæðrastyrksnefndar í næstu
viku. „Það er mjög gaman að taka
þátt í þessu,“ segir Magnús Freyr.
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sending Bílstjórar Vörumiðlunar afferma annan af tveimur flutningabílum sem komu með vörur úr Skagafirði.
Skagfirsk matvæli fyrir
700 fjölskyldur afhent
Fyrsti matarskammturinn frá KS til Fjölskylduhjálpar
Gjöf Magnús Freyr Jónsson afhendir Ásgerði Jónu Flosadóttur matarkörfu.
Magnús Svavarsson, framkvæmdastjóri Vörumiðlunar, var viðstaddur.
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins krefjast flugvirkjar Landhelgis-
gæslunnar sömu kjara og flugvirkjar
Icelandair fengu þegar samið var við
þá síðasta sumar, en að undanskild-
um þeim atriðum sem snúa að hag-
ræðingunni sem Icelandair fékk
vegna breytinga á kjarasamningnum.
Talið er að einingakostnaður vegna
flugvirkja Icelandair hafi lækkað um
10% í þeim samningi, sem er til fimm
ára. Hagræðingin var Icelandair
nauðsynleg vegna hlutafjárútboðs fé-
lagsins í lok sumars. Flugvirkjar
Gæslunnar telja breytingarnar ekki
eiga við sig.
Fylgir umframkostnaður
Heimildir blaðsins herma að ríkið
telji sig ekki lengur geta unað við að
tengja samninga flugvirkja Gæslunn-
ar við samning flugvirkja og Ice-
landair, honum fylgi alltaf umfram-
kostnaður fyrir Gæsluna. Allar
breytingar sem gerðar voru á samn-
ingnum séu gerðar fyrir rekstrarum-
hverfi Icelandair, sem sé annað en
rekstrarumhverfi Landhelgisgæsl-
unnar.
Verkfall flugvirkja hjá Landhelg-
isgæslunni hófst í síðustu viku og
hafa engar formlegar viðræður átt
sér stað hjá ríkissáttasemjara frá því
verkfallið skall á.
Morgunblaðið hefur heimildir fyrir
því að ríkið vilji gera sérstakan samn-
ing við flugvirkjana sem ekki verður
tengdur Icelandair-samningnum. Þar
verði tekið mið af þeirri launaþróun
sem er hjá flugvirkjum á almennum
vinnumarkaði, eða hjá þeim hópum
sem þeir vilja bera sig saman við. Í
boði eru sömu hækkanir og eru í lífs-
kjarasamningnum, sem aðrar stéttir
ríkisins hafa samið um.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að Flugvirkjafélagið hafi ekki viljað
opna á samtal um þetta.
Hófu viðræður í febrúar
Samningar flugvirkja hjá Gæsl-
unni losnuðu um síðustu áramót, og
hófu aðilar viðræður í febrúar, rétt
áður en kórónuveirufaraldurinn
hófst.
Eins og Morgunblaðið hefur heim-
ildir fyrir er ýmislegt í samningi flug-
virkja við Icelandair sem myndar um-
framkostnað fyrir Landhelgis-
gæsluna. Þar má nefna til dæmis að
stór munur er á vaktauppbyggingu
enda sé ólíku saman að jafna að starfa
við flugvélar í áætlunarflugi og þyrlur
sem eru kallaðar út eftir þörfum, eins
og hjá Gæslunni. Starfsstöðin er
einnig önnur. Flugvirkjar Icelandair
vinna flestir á Suðurnesjum, en flug-
virkjar Gæslunnar í Reykjavík. Á
móti kemur að flugvirkjar Landhelg-
isgæslunnar eru oft á bakvakt og
þurfa að vera tilbúnir að standsetja
þyrlu með stuttum fyrirvara.
Heimildir blaðsins herma að flug-
virkjar hræðist að sérstakur ríkis-
samningur verði ávísun á lægri kjör í
framtíðinni.
Í samningi flugvirkja Gæslunnar
eru ýmis ákvæði sem einhverjum
gætu þótt undarleg. Til dæmis er þar
ákvæði um að Gæslan borgi Saga
Class-sæti undir flugvirkja sem þurfa
starfs síns vegna að fara til útlanda.
Hjá Icelandair fá flugvirkjar Saga
Class-sæti ef slíkt sæti er laust og
óselt.
Vilja samninginn án hagræðingar
Deilt um Saga Class-sæti Ríkið vill ekki tengja við samning Icelandair Rekstrarumhverfi Ice-
landair sagt ólíkt rekstrarumhverfi Landhelgisgæslunnar Engar formlegar viðræður eru í gangi
Morgunblaðið/Hari
Deila Flugvirkjar sinna meðal annars þyrlum Landhelgisgæslunnar.
Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar
hf., sem rekur m.a. Stöð 2, Vísi og
Bylgjuna, segir félagið vel geta tekið
að sér almannaþjónustuhlutverk sem
RÚV er einu falið
í lögum í dag. Í
umsögn Sýnar til
fjárlaganefndar
segir að fjölmiðlar
félagsins séu vel í
stakk búnir til að
veita almanna-
þjónustu og ríkið
gæti gert samning
um það við fyrir-
tækið hliðstæðan
þeim sem gerður
hefur verið við TV2 í Noregi.
,,Við erum með vinsælasta vef
landsins um þessar mundir, Vísi, við
erum með stóra fréttastofu, við rek-
um sjö útvarpsstöðvar og erum við
með níu sjónvarpsstöðvar þannig að
það er ekkert vandamál fyrir okkur
að ná til allra. Við rekum líka eina
landsdekkandi dreifikerfi sjónvarps
og útvarps. Við getum því séð um
þetta,“ segir hann.
,,Ríkið þarf að skilgreina hvað al-
mannaþjónusta er. Að halda úti aug-
lýsingamiðli er ekki almannaþjón-
usta, að kaupa sápur og sýna í
sjónvarpi er ekki almannaþjónusta og
að vera með vinsælar íþróttaútsend-
ingar er ekki almannaþjónusta. Það
er nóg af fyrirtækjum sem sjá um
þetta og gera það á eigin kostnað en
ekki á kostnað skattborgara,“ segir
Heiðar. Hann bætir því við að rekstr-
arkostnaðurinn á RÚV sé allt of hár
og reksturinn ekki nógu hagkvæmur.
„Miðað við hvað þeir framleiða af efni
þá er kostnaðurinn 50 prósentum of
hár,“ segir hann. ,,Þeir eru ekki að
reka þetta nógu vel og er ég þá ekki
að tala um að það eigi að lækka fólk
þarna í launum en það þarf bara að
auka framleiðni fyrirtækisins. Þeir
eru að gera allt of lítið fyrir allt of
mikið,“ segir hann.
Heiðar segist ekki ætlast til að
RÚV verði lagt niður, en það standist
ekki að tala um það sem almanna-
þjónustu þegar RÚV er að leigja út
t.d. myndver og myndatökubúnað.
„Það er nóg af einkafyrirtækjum í
þessum verkefnum. Ríkið á ekkert að
vera að vasast í því.“ omfr@mbl.is
Geti vel sinnt
almannaþjónustu
Rekstrarkostnaður RÚV allt of hár
Heiðar
Guðjónsson
www.kofaroghus.is - sími 553 1545
359.000 kr.
Tilboðsverð
518.000 kr.
Tilboðsverð
416.500 kr.
Tilboðsverð
34mm
34mm44mm
Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik
má finna á vef okkar
Afar einfalt er að
reisa húsin okka
r
Uppsetning teku
r aðeins einn da
g
BREKKA 34 - 9 fm
STAPI - 14,98 fm NAUST - 14,44 fm
25%
afsláttur
25%
afsláttur
30%
afsláttur
TILBOÐ Á GARÐHÚSUM!
(SÍÐUSTU HÚSIN 2020) VANTAR
ÞIGPLÁSS?