Morgunblaðið - 14.11.2020, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 14.11.2020, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2020 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Skipulagsfulltrúinn í Reykjavík ger- ir ekki athugasemd við það að efstu hæðum hins sögufræga húss Rúg- brauðsgerðarinnar í Borgartúni 6 verði breytt úr skrifstofum í íbúðir. Það var Richard Ólafur Briem hjá VA arkitektum sem lagði fram fyr- irspurnina fyrir hönd eiganda. Einnig voru í fyrirspurninni lagðar fram tillögur að annars vegar fjór- um íbúðum á efstu hæð og hins veg- ar sex íbúðum. Fyrirspurninni var vísað til um- sagnar verkefnisstjóra og var svo lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa. Var sú umsögn samþykkt. Í henni kemur fram að sam- kvæmt gildandi aðalskipulagi Reykjavíkur sé Borgartún 6 á mið- borgarsvæði M1b. Samkvæmt skipulaginu eru íbúðir heimilar, einkum á efri hæðum húsnæðis. Skipulagsfulltrúinn bendir enn fremur á að til að íbúðir verði sam- þykktar á hæðinni þurfi þó að upp- fylla allar kröfur til íbúðarhúsnæðis. Telur hann upp nokkur atriði og áskilur sér rétt til frekari at- hugasemda ef umsókn berst. Í bók Páls Líndal um Reykjavík kemur fram að árið 1944 hafi verið stofnað hlutafélagið Rúgbrauðs- gerðin og stóð það fyrir byggingu húss á lóðinni Borgartún 6 árið 1947. Framleiðsla brauða hófst 1948. Reksturinn gekk illa og var honum hætt upp úr 1970 en húsið skemmdist mikið af eldi í apríl það sama ár. Veislusalir ríkisins Ríkissjóður eignaðist húsið og á efri hæðum voru innréttuð húsa- kynni til fundahalda og gesta- móttöku. Starfsemin hófst 1979 og tók við hlutverki Ráðherrabústað- arins að nokkru leyti sem móttöku- hús fyrir ríkisstjórnina Lyfjaverslun ríkisins starfaði lengi í húsinu. Sömuleiðis ríkis- sáttasemjari og voru margar vinnu- deilur leystar þar við samninga- borðið. Þá hafa ýmis félagasamtök haft aðsetur í húsinu. Einkarekin veisluþjónusta var rekin þarna hin seinni ár. Morgunblaðið/sisi Borgartún 6 Rúgbrauðsgerðin er reisulegt hús og setur mikinn svip á um- hverfið með sínum turnum. Áform eru um að innrétta íbúðir á efri hæðum. Íbúðir innréttaðar í Rúgbrauðsgerðinni  Brauðgerð var upphaflega í húsinu Kröftugur og sjálfbær vöxtur til lengri framtíðar Kynning á breytingum á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010–2030 Streymisfundur miðvikudaginn 18. nóvember, kl. 17 á reykjavik.is/adalskipulag-2040 og á facebook.com/Reykjavik Drög að umfangsmiklum breytingum á Aðalskipulagi Reykjavíkur hafa verið lögð fram til kynningar. Hægt er að gera athugasemdir við tillögurnar fram til 27. nóvember nk. Í tillögunum felst heildaruppfærsla á stefnu aðalskipulagsins um íbúðarbyggð. Auk þess eru boðaðar stöku breytingar á völdum atvinnusvæðum og samgöngu- innviðum. Gert er ráð fyrir því að tímabil aðalskipulagsins verði framlengt til ársins 2040 og sett eru fram ný meginmarkmið í nokkrum málaflokkum. Leiðarljós við mótun tillagna er að tvinna betur saman áætlanir um uppbyggingu húsnæðis, við áform um byggingu og styrkingu vistvænna samgöngukerfa; Borgarlínu, stofnleiða Strætó bs, hjólastígakerfis og gönguleiða. Það er í takti við Loftslagsstefnu borgarinnar til ársins 2040, leiðarljós svæðisskipulags til ársins 2040, meginmarkmið gildandi aðalskipulags, húsnæðisáætlun og Græna planið. Ætlunin er að skapa forsendur fyrir kröftugri vöxt borgarinnar samhliða því að styðja markmið um sjálfbæra borgarþróun, kolefnishlutleysi árið 2040, vernd náttúrusvæða, líffræðilega fjöl- breytni og samkeppnishæft, lífvænlegt, réttlátt og fjölbreytt borgarsamfélag. Breytingartillögur verða kynntar ásamt umhverfismati á fundinum og verður hægt að senda fyrirspurnir fyrirfram á netfangið skipulag@reykjavik.is. Frekari upplýsingar um drögin má finna á adalskipulag.is og um dagskrá fundar á reykjavik.is/adalskipulag-2040 Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Sveiflan á hæð Skorradalsvatns er slík að landspjöll hljótast af. Frá hausti til vors getur þetta munað ein- um og hálfum metra. Á veturna þeg- ar íshrannir rekur á land hér við norðurbakka vatnsins eru þær beitt- ar eins og rakvélarblöð og brjóta landið,“ segir Pétur Davíðsson, bóndi á Grund í Skorradal. Bændur þar í sveit fara þess nú á leit við Orku nátt- úrunnar að fyrirtækið gæti hófs við miðlun til Andakílsárvirkjunar úr Skorradalsvatni. Fundir eru haldnir og lausna er leitað. Heimild til hækkunar einhliða ákvörðun Mál þetta á sér langa sögu, eða allt aftur til þess tíma að Andakílsár- virkjun var reist á árunum 1946-47. Þá var útbúin stífla við ós vatnsins, allt að 80 sentimetra há, án samráðs við landeigendur og gerður afrennsl- isskurður með lokunarbúnaði. Árið 1955 kom svo beiðni til atvinnu- málaráðuneytisins um að fá að hækka vatnsborð um 1,5-2 metra til viðbótar. Hreppsnefnd valdi árið eft- ir í nefnd til viðræðna við ráðuneytið. Aldrei var þó haft samband við nefndina frá ráðuneytinu sem ákvað einhliða að heimila stjórn Andakíls- árvirkjunar að hækka vatnsborð um 50 cm frá 15. september að hausti og 15. maí að vori. Sá fyrirvari var gerð- ur að ef í ljós kæmi að hækkunin ylli verulegum landspjöllum, að dómi ráðuneytisins, yrði heimildin felld niður. Kvörðum var raskað Í framhaldi af þessari ákvörðun ráðuneytisins var hafður til viðmið- unar punktur sem Sigurjón Rist vatnamælingamaður setti út, mæli- stika sem seinna var fjarlægð, sem raskað hefur kvörðum. Þannig var ný stífla við ósinn gerð árið 1994 og er hún 10-12 sm hærri en heimilt var, að sögn Skorradalsbænda. „Eftir þessa framkvæmd fóru landskemmdir að aukast mjög, eftir að hafa staðið í stað í nokkuð langan tíma áður. Það segir sig líka sjálft að 10-12 sentimetra hækkun vatnsborðs til viðbótar við eins metra ölduhæð, eins og oft verður í suðaustanátt, brýtur land og veldur verulegum skaða,“ segir Pétur. „Fyrir utan landspjöllin þá raskar vatnsmiðlunin sömuleiðis lífríki vatnsins. Hrygning- arstöðvar bleikju eru á grynningum sem eðlilega skaðast við mikla sveiflu á vatnsmagni. Mikið var á sínum tíma af murtu, smáu afbrigði bleikj- unnar, í vatninu. Þegar Jón Krist- jánsson fiskifræðingur rannsakaði Skorradalsvatn á sínum tíma var ráð- legging hans sú að best færi á því að grisja murtuna með urriða, sem dafnar þar ágætlega í dag. Þannig hefur náðst ákveðið jafnvægi í fisk- gengd, enda þótt 80% af fæðufram- leiðslu í vatninu hafi, að mati Jóns, verið eyðilögð með sveiflunni á vatns- borðinu.“ Sviðsmyndir í skoðun Pétur á Grund segir bændur í Skorradal gjarnan óska þess í rign- ingatíð að opnað sé betur fyrir stíflu- lokur sem stýra rennsli til Andakíls- árvirkjunar. Allur gangur sé á því að óskum þar um sé sinnt. Sé ekki hreyft við lokunum hækki oft um tugi sentimetra í vatninu á skömmum tíma og við þær aðstæður byrji land- brotið. Eftir að Orka náttúrunnar losaði leir og set úr lóni virkjunar með stórskaða í Andakílsá sumarið 2017 hafi þó verið samtal á milli heimamanna og ON. „Fulltrúar heimamanna eru boð- aðir á fundi nokkrum sinnum á ári og síðan haldnir fundir með öllum land- eigendum. Núna er verið greina nokkrar sviðsmyndir um framtíð miðlunar sem hefur ekkert virkj- unarleyfi. Vinna þessi hefur tafist vegna þeirra aðstæðna í samfélaginu sem nú ríkja,“ segir Pétur Davíðsson. Rokkandi vatnshæð veldur skaða  Sveifla í Skorradalsvatni  Miðlað í Andakílsárvirkjun  Misjöfn hæð og háar öldurnar brjóta bakkana  Skaði í lífríkinu á löngum tíma  Lausna er leitað í samvinnu við Orku náttúrunnar Ljósmynd/Aðsend Stífla Hér er veitt úr Skorradalsvatni til Andakílsárvirkjunar, en ekki er sátt um hvort rétt sé staðið að málum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.