Morgunblaðið - 14.11.2020, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2020
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Vefverslunin alltaf opinwww.listverslun.is
Verkfæralagerinn
án.-m. kl. 9-18, fs. kl. 9-180, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-1
Kolibri trnur
í miklu úrvali, gæða-
vara á góðu verði
Kolibri penslar
Handgerðir þýskir penslar
í hæsta gæðaokki
á afar hagstæðu verði
Ennþá meira úrval af
listavrum
WorkPlus
Strigar frá kr. 195
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Mikil spurn er um allan heim eftir
starfskröftum Rauða krossins vegna
kórónuveikifaraldursins og aðgerða
sem tengjast honum, að sögn Atla
Viðars Thorstensen, sviðsstjóra hjá
Rauða krossi Íslands. Landsfélög
Rauða krossins hafa stutt við heil-
brigðiskerfi heima fyrir og alls stað-
ar er mikið álag á starfsemi Rauða
kross-félaga. Að auki er víða þörf á
aðgerðum sem meðal annars tengj-
ast vopnuðum átökum, fellibyljum og
stórviðrum, að sögn Atla.
Á þessu ári hafa níu sendifulltrúar
RKÍ verið að störfum erlendis, sem
er heldur færra en undanfarin ár.
Sem dæmi má nefna að í fyrra voru
fimm sendifulltrúar um tíma í Sýr-
landi og þar áður um 15 í Bangla-
dess. Ekki hefur verið um sambæri-
leg stórverkefni að ræða í ár enda
erfitt að koma þeim við vegna ferða-
takmarkana í faraldrinum.
Verkefni tengd faraldrinum
Um verkefni ársins sem tengjast
kórónuveikinni nefnir Atli Viðar að
einn heilbrigðismenntaður sendi-
fulltrúi er nú í Jemen á sérhæfðri Co-
vid-19 heilbrigðiseiningu Rauða
krossins. Það verkefni kom ofan á
önnur lífsnauðsynleg verkefni í land-
inu, sem tengjast vopnuðum áötkum,
fæðuskorti og fátækt.
Fyrr á árinu sinnti annar sendi-
fulltrúi hjá RKÍ verkefni í Asíu sem
laut að sálrænum stuðningi í
tengslum við kórónuveikina. Það
verkefni var unnið frá Íslandi. Annar
sendifulltrúi kemur að verkefnum
tengdum faraldrinum í Evrópu, og
mun vinna fyrst um sinn frá Íslandi
en flytur sig væntanlega til Búdapest
þegar ferðatakmörkunum léttir. Á
aðalskrifstofu Alþjóða Rauða kross-
ins í Sviss hefur annar sendifulltrúi
frá RKÍ starfað og m.a. unnið að leið-
beiningum og forvörnum til starfs-
manna Rauða krossins gagnvart far-
aldrinum svo halda megi starf-
seminni órofinni.
Atli Viðar segir að starfsemin í ár
tengist mjög heimsfaraldrinum, en
verkefnin séu þó af ýmsum toga.
Sendifulltrúi hafi verið í Genf og ver-
ið hluti af teymi sem berst gegn kyn-
ferðislegri misnotkun á átakasvæð-
um sem er sameiginlegt verkefni
RKÍ og íslenskra stjórnvalda. Fyrr í
ár var sendifulltrúi að störfum í Sýr-
landi og tveir komu að aðstoð í kjöl-
far hamfara á Bahama-eyjum í fyrra-
haust.
Krefjandi ár og sérstakt
Stórar landsskrifstofur Rauða
krossins eins og í Kanada og Noregi
hafa, auk erlendra verkefna, sinnt
verkefnum heima fyrir. Það sama er
að segja um RKÍ, sem m.a. hefur
komið að starfi í farsóttarhúsum. Atli
Viðar segir að árið hafi verið mjög
krefjandi og sérstakt, en útlit sé fyrir
að RKÍ takist að halda í horfinu.
Fjármagn til erlendrar starfsemi
RKÍ kemur meðal annars í gegnum
rammasamning við utanríkisráðu-
neytið og framlög frá Mannvinum
RKÍ. Þá segir Atli Viðar að stuðn-
ingur fyrirtækja hafi aukist sem sé
gríðarlega jákvætt. Almennt starf
Rauða kross-félaga er að mestu unn-
ið af sjálfboðaliðum.
AFP
Hörmungar Sjaldan er ein báran stök í Jemen
þar sem glímt er við vopnuð átök, fæðuskort,
fátækt og kórónuveiru. Myndin að ofan er tekin á
sjúkrahúsi í landinu í síðustu viku. Heilbrigðis-
kerfið er sagt í molum, en Rauði krossinn og
Rauði hálfmáninn opnuðu þar meðferðardeild í
september fyrir einstaklinga sem veikjast af kór-
ónuveirunni. Þar er Kolbrún Þorsteinsdóttir,
hjúkrunarfræðingur og sendifulltrúi Rauða
krossins á Íslandi (myndin til hliðar), að störfum
og verður fram í janúar Áður hefur hún starfað
sem sendifulltrúi í Bangladess.
Álag á félögum Rauða
krossins um allan heim
Verkefni hafa breyst með heimsfaraldrinum
Elliðaárdalur og framtíð mannvirkja
Elliðaárstöðvar og Árbæjarlóns
voru rædd á fundi borgarráðs
Reykjavíkur í fyrradag.
Borgarstjóri lagði fram tillögu á
fundinum um drög að erindisbréfi
stýrihóps um Elliðaárdal. Hlutverk
hópsins verður að gera tillögu í sam-
ráði við helstu hagsmunaaðila um
mótvægisaðgerðir í kjölfar tæm-
ingar Árbæjarlóns sem horfi m.a. til
fuglalífs, annarrar náttúru og mann-
lífsins í dalnum. Einnig um framtíð-
arumhverfi svæðisins í kringum
stífluna og stöðu Elliðaárdals sem
verndaðs svæðis, borgargarðs.
Í stýrihópnum sitja m.a. tveir for-
menn íbúaráða, formaður skipulags-
og samgönguráðs, tveir borg-
arfulltrúar Sjálfstæðisflokks og
stjórnarformaður OR. „Leiðarljós
hópsins er að hafa hagsmuni lífrík-
isins og útivistar að leiðarljósi enda
Elliðaár og dalurinn allur einstök
náttúru- og útivistarperla.“ Tillagan
var samþykkt.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæð-
isflokks höfðu áður lagt fram bókun
á fundinum og furðað sig á vinnu-
brögðum við tæmingu Árbæjarlóns
sem var ekki lögð fyrir stjórn Orku-
veitu Reykjavíkur áður en það var
tæmt. „Nauðsynlegt er að kanna til
hlítar hvernig best er að skila Elliða-
árdalnum áður en farið er í að breyta
Árbæjarlóni til frambúðar,“ sagði
m.a. í bókuninni. Þá var bent á að
ekki hafi verið leitað álits m.a. um-
hverfis- og heilbrigðisráðs, íbúaráða,
íbúasamtaka eða Hollvinasamtaka
Elliðaárdalsins sem hefði verið rétt
að gera þegar um slíka ákvörðun var
að ræða.
Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins
lagði einnig fram bókun og sagði allt
við ákvarðanatöku um tæmingu
lónsins ámælisvert. gudni@mbl.is
Stýrihópur um
Elliðaárdalinn
Aðgerðir í kjölfar tæmingar lónsins
Morgunblaðið/Eggert
Elliðaár Búið er að tæma lónið ofan
við Árbæjarstífluna til frambúðar.
Reynt hefur verið að halda fullri
þjónustu sendiskrifstofa Íslands
erlendis þrátt fyrir kórónuveiki-
faraldurinn. Allar sendiskrifstofur
Íslands eru opnar, þótt afgreiðsla
og afgreiðslutími taki mið af sótt-
varnaaðstæðum í hverju gistiríki,
samkvæmt upplýsingum frá utan-
ríkisráðuneytinu.
Starfsfólk vinnur ýmist á staðn-
um eða í fjarvinnu í viðkomandi
landi, en á flestum stöðum er því
skipt í teymi þannig að ávallt geti
einhver haldið starfsemi gangandi
ef smit kemur upp á starfsstöð.
Starfið er í raun í fullum gangi
svo langt sem það nær og áhersla
er lögð á að halda því þannig.
Sendiskrifstofum Íslands í Úg-
anda og Malaví var lokað um tíma
í fyrstu bylgju faraldursins og út-
sent starfsfólk kallað til Íslands í
öryggisskyni. Skrifstofan í Kamp-
ala var opnuð á ný í júlí og sú í
Lilongwe í október þegar mögu-
legt var að komast þangað aftur
með flugi og aðstæður vegna far-
aldursins leyfðu.
Fjarfundabúnaður notaður
Starfsemi fastanefnda gagnvart
alþjóðastofnunum hefur tekið mið
af starfseminni á hverjum stað.
Þannig fara flestir fundir á vett-
vangi Sameinuðu þjóðanna fram
með fjarfundabúnaði, bæði í New
York og Genf. Fulltrúar mæta
þegar kosið er til embætta eða í
aðrar atkvæðagreiðslur sem þarf
að taka þátt í á vettvangi. Hjá Atl-
antshafsbandalaginu hafa reglu-
legir fundir farið fram í höf-
uðstöðvum allan tímann, en ráð-
herrar taka þátt í fjarfundum.
Borgaralegir sérfræðingar sem
starfa á vegum Íslensku frið-
argæslunnar á sviði öryggis- og
varnarmála voru ekki sérstaklega
kallaðir heim. Hvað útsenda sér-
fræðinga á sviði mannúðar-
aðstoðar varðar voru þeir almennt
kallaðir heim af áhættusvæðum í
fyrstu bylgju faraldursins.
Minna álag á borgaraþjónustu
Eftir það mikla álag sem var á
borgaraþjónustu og aðstoð ráðu-
neytisins í fyrstu bylgju faraldurs-
ins, m.a. vegna aðstoðar við inn-
lyksa Íslendinga víða um heim,
hafa borgaraþjónustuverkefni
færst í hefðbundnara horf. Staða
mála vegna heimsfaraldurs gerir
íslenskum borgurum þó áfram erf-
itt fyrir með ýmis praktísk mál og
töluvert er um að leitað sé ráða og
aðstoðar, samkvæmt upplýsingum
utanríkisráðuneytisins. Neyðar-
símavakt er sem fyrr í gangi allan
sólarhringinn. aij@mbl.is
Reynt að halda
fullri þjónustu í
sendiskrifstofum
Lokað um tíma í Úganda og Malaví
AFP
Holland Vel klæddir nemendur
fylgjast með kennslu við opnar dyr
og glugga til að bæta loftræstingu.