Morgunblaðið - 14.11.2020, Síða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2020
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Um 140 íbúðir hafa selst á nýjum
þéttingarreitum í miðborginni síðan
í febrúar og eru nú óseldar innan við
100 íbúðir af um 620. Við þá tölu
bætast þrettán leiguíbúðir.
Hafa því selst ríflega 500 íbúðir
síðan fyrstu íbúðirnar komu á mark-
að haustið 2017 á Frakkastígsreit en
sá reitur seldist upp í júlí sl.
Má áætla að söluverðið sé saman-
lagt ekki undir 25 milljörðum.
Eins og komið hefur fram í Morg-
unblaðinu er slíkt framboð nýrra
íbúða á svo skömmum tíma í mið-
borginni án fordæma. Fjöldinn er á
við tvö Skuggahverfi og vel ríflega
það. Eru þá ótaldar 70 lúxusíbúðir
við Austurhöfn en svar við fyrir-
spurn um sölu þeirra hafði ekki bor-
ist í gær.
Fjárfestar hafa keypt margar
íbúðir á þessum reitum með útleigu í
huga, ekki síst á Brynjureit.
Frá því verkefnin voru kynnt hafa
reglur um útleigu til ferðamanna
verið hertar, WOW air farið í þrot og
kórónuveiran lamað heimsbyggðina.
Forsendur geta því hafa breyst.
Hafa selt 96 íbúðir
Á Kirkjusandi er búið að selja
meirihluta íbúða í tveimur fjölbýlis-
húsum. Annars vegar 55 af 77 íbúð-
um í fjölbýlishúsinu Stuðlaborg og
hins vegar 41 af 52 íbúðum í fjölbýlis-
húsinu Sólborg.
Félagið 105 Miðborg byggir á fjór-
um af níu reitum á Kirkjusandi.
Félagið er fagfjárfestasjóður í
rekstri og stýringu Íslandssjóða.
Kjartan Smári Höskuldsson,
framkvæmdastjóri Íslandssjóða,
segir útlit fyrir að íbúðirnar verði
uppseldar upp úr áramótum.
Það sé í takt við áætlanir um að
hafa selt íbúðirnar um það leyti sem
framkvæmdunum lyki.
„Salan er stöðug og það er mikið
skoðað á heimasíðunni okkar.
Ástæðurnar eru margþættar. Í
fyrsta lagi er þetta mjög vinsælt
svæði og lítið framboð hefur verið af
nýjum íbúðum í Laugarneshverfinu
síðustu ár. Því var uppsöfnuð eftir-
spurn meðal fólks úr hverfinu sem
vildi minnka við sig eða fara í nýtt
húsnæði. Svo er þetta frábær stað-
setning við strandlengjuna í Reykja-
vík og verðin eru töluvert hagstæð-
ari en í nýbyggingum nær
miðbænum.
Svo má ekki gleyma því að lægri
vextir á húsnæðislánum hafa stækk-
að hópinn sem ræður við að kaupa
sér nýtt íbúðarhúsnæði. Nýjar íbúðir
eru að jafnaði dýrari en gamlar og
við áttum því ekki von á að það yrði
töluvert um fyrstu kaupendur sem
hefur svo reynst raunin.
Þá má heldur ekki gleyma því að
þeim verkefnum sem eru í byggingu
og sölu fer fækkandi. Það hefur
gengið vel á lagerinn,“ segir Kjartan
Smári um stöðuna.
Tugmilljarða sala á árinu
4
5
6 7
9
11
13
14
12
1
10
2
3
Nýjar íbúðir til sölu í miðborg Reykjavíkur Salan til og með 11.11. 2020 og
hlutfall seldra íbúða*
8
Ko
rt
ag
ru
nn
ur
: S
ta
m
en
*Samkvæmt söluvefjum 11.11.2020. **1 íbúð óseld á Hverfi sgötu 40-44
af 49. 9 íbúðir óseldar á Laugavegi 27 a og b af 23. Fjöldi leiguíbúða er á
Brynjureit. ***Að auki er búið að selja bæði atvinnurýmin á jarðhæð.
Seldar íbúðir Frá síðustu
talningu
Íbúðir í leigu
11.11. '20
Óseldar
íbúðir
Hlutfall
seldra íbúðaÍbúðir í söluferli Fjöldi 26.6. '19 4.9. '19 28.11. '19 20.2. '20 11.11. '20
1 Höfðatorg 94 64 67 77 79 88 9 6 94%
2 Stuðlaborg* 77 6 11 12 16 55 39 22 71%
3 Sólborg 52 7 18 41 23 11 79%
4 Frakkastígsreitur 68 37 52 59 59 68 9 0 100%
5 Hverfi sgata 85-93 70 10 17 24 27 63 36 7 90%
6 Hverfi sgata 84 3 3 2 -1 1 67%
7 Hverfi sgata 86 3 3 3 0 0 100%
8 Hverfi sgata 94-96 38 16 19 24 33 37 4 1 97%
9 Hafnartorg 70 22 31 35 37 40 3 5 25 57%
10 Brynjureitur** 72 0 0 37 50 60 10 2 10 83%
11 Klapparstígur 30 11 8 11 10 11 11 0 0 100%
12 Borgartún 28A*** 21 3 9 6 12 43%
13 Klapparstígur 28 4 1 1 3 3 0 1 0 75%
14 Tryggvagata 13 38 25 27 27 30 32 2 5 1 84%
Samtals 621 188 236 313 372 512 140 13 96
Um 140 íbúðir hafa selst á þéttingarreitum í miðborginni frá 20. febrúar sl.
Framkvæmdastjóri Íslandssjóða segir vaxtalækkanir eiga þátt í mikilli sölu
blaðsins hefur íslenska fjármálafyr-
irtækið Arctica Finance haft hönd í
bagga við skipulag kynningar-
fundanna en félagið var auk þess ráð-
gjafi Fredensborg við kaup á Heima-
völlum.
Vilja stækka á komandi árum
Samkvæmt kynningu Heimstaden
hefur félagið að markmiði að fjölga
íbúðum í eigu Heimstaden Iceland
um að minnsta kosti 100% á komandi
árum. Í dag eru eignir í útleigu um
1.581 talsins en áætlanir séu uppi um
að fjölga þeim í 3-4 þúsund. Þá sé
horft til þess að vöxturinn verði bæði
knúinn áfram með kaupum á eignum
sem nú þegar eru á markaðnum og
kaupum á þróunarverkefnum sem
eru í pípunum.
Félagið hyggst einkum horfa til
smærri og hagkvæmari íbúða sem
séu á verði sem stærstur hluti sam-
félagins ráði við. Þá verði horft til höf-
uðborgarsvæðisins og þéttbýlissvæða
innan 45 mínútna akstursfjarlægðar
frá Reykjavík. Segir auk þess í kynn-
ingunni að húsaleigumarkaðurinn á
Íslandi fari vaxandi en sé þó enn
óþroskaður. Þá fari hlutfall þeirra
sem eigi fasteign lækkandi og fjöl-
skyldustærðir séu enn stórar en fari
minnkandi. Þá séu efnahagshorfur
góðar fyrir landið, efnahagsstjórnin
sé í góðu horfi og að þau gildi sem séu
við lýði í samfélaginu falli vel að
markmiðum Heimstaden.
Stækkar en samt smátt
Samkvæmt mati Heimstaden eru
leigueignir Heimavalla nú metnar á
u.þ.b. 48,1 milljarð króna. Gróft álitið
virðast áætlanir félagsins því vera
þær að stækka eignasafnið þannig að
verðmæti þess muni nema a.m.k. 100
milljörðum króna.
Í heildarsamhengi starfseminnar
hjá Heimstaden verður íslenska fé-
lagið ekki stórt í sniðum. Minnsta
rekstrareiningin er nú í Þýskalandi
og þar eru íbúðirnar tæplega 1.300 og
eignasafnið metið á 46,6 milljarða
króna. Í Tékklandi er félagið með
flestar íbúðir eða ríflega 42 þúsund.
Eignaverð þar í landi er hins vegar
mjög lágt og því er fjárfestingin í
eignunum aðeins metin á 208 millj-
arða. Mest er fjárfestingin í ríflega 30
þúsund íbúðum í Svíþjóð og er hún
metin á tæpa 700 milljarða króna. Í
Danmörku er eignaverðið mjög hátt
og eru 9.728 íbúðir metnar á 570
milljarða. Koma svo Noregur og Hol-
land þar mitt á milli.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Norska fasteignafélagið Fredens-
borg AS, sem keypti Heimavelli hf. að
fullu í kjölfar yfirtökutilboðs í sumar,
hyggst breyta nafni Heimavalla í
Heimstaden Iceland á nýju ári. Verð-
ur það gert í tengslum við breytingar
á stöðu fyrirtækisins þar sem það
mun færast úr beinu eignarhaldi
Fredensborgar og undir félagið
Heimstaden sem er einnig í eigu
Fredensborg. Heimstaden fer einnig
með meirihlutastjórn á Heimstaden
Bostad sem á leigufélög í sex öðrum
ríkjum, Svíþjóð, Danmörku, Noregi,
Hollandi, Tékklandi og Þýskalandi.
Aðrir fjárfestar sem koma að eign-
arhaldinu á Heimstaden Bostad, með
49% atkvæðisrétt á hluthafafundum
eru félögin Alecta (41%), sem er einn
stærsti lífeyrissjóður Svíþjóðar,
Folksam (6%), Ericsson (2%) og
Sandvik (1%). Í kynningu sem fulltrú-
ar fyrirtækisins hafa birt á fundum
með íslenskum lífeyrissjóðum og öðr-
um sjóðastýringarfyrirtækjum á und-
anförnum vikum kemur fram að
markmið fyrirtækisins sé að innleiða
stefnu Heimstaden í starfsemi ís-
lenska félagsins en að það byggi m.a.
á sjálfbærni og samfélagsábyrgð.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
Heimavellir verða Heimstaden
Stefna á mikinn vöxt Fjárfestir á
húsnæðismarkaði í sjö ríkjum Evrópu
Eignasafn Heimstaden í Evrópu
Heimild: Kynning Heimstaden
Íbúðir
Heildarvirði
eigna, ma.kr.
Ísland 1.581 48,1
Svíþjóð 30.076 699
Danmörk 9.728 570
Holland 12.635 358
Noregur 4.589 254
Tékkland 42.544 208
Þýskaland 1.298 46,6
14. nóvember 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 137.46
Sterlingspund 180.57
Kanadadalur 104.96
Dönsk króna 21.771
Norsk króna 15.059
Sænsk króna 15.92
Svissn. franki 150.01
Japanskt jen 1.3045
SDR 194.92
Evra 162.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 196.9458
Hrávöruverð
Gull 1868.0 ($/únsa)
Ál 1905.0 ($/tonn) LME
Hráolía 43.73 ($/fatið) Brent
● Launagreiðendum hérlendis í við-
skiptahagkerfinu fækkaði um 3,8% á
milli ágústmánaðar síðasta árs og
ágústmánaðar þessa árs. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá Hagstofu Íslands.
Ástæðuna má að öllum líkindum
rekja til kórónuveirufaraldursins, en
fjöldi fyrirtækja, einkum í ferðaþjón-
ustu, hefur orðið fyrir skakkaföllum
vegna veirunnar.
14.467 launagreiðendur
Í ágúst síðastliðnum voru 14.467
launagreiðendur í viðskiptahagkerfinu
sem er fækkun um 575 eða 3,8% frá
ágúst 2019.
Eins og áður hefur komið fram hefur
atvinnuleysi aukist verulega hérlendis
og var um 10% í október. Þá voru tæp-
lega 20 þúsund einstaklingar án vinnu
og um þrjú þúsund í minnkuðu starfs-
hlutfalli.
Launagreiðendum
fækkaði um 3,8%
STUTT
● Hlutabréf Icelandair Group hækkuðu
mest allra í Kauphöll Íslands í gær, eða
um 3,17% í 479 milljóna króna við-
skiptum. Gengi félagsins á markaðnum
er nú 1,3 krónur á hvern hlut. Mesta
lækkun í gær varð á bréfum Arion
banka, eða 1,41% í 373 milljóna króna
viðskiptum, en lokagengi bankans var
83,8 krónur í lok gærdagsins.
Icelandair hækkaði