Morgunblaðið - 14.11.2020, Side 26

Morgunblaðið - 14.11.2020, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Regluverk á Ís-landi er sér-lega íþyngj- andi. Það er gömul saga og ný. Oft virð- ist sem það sé sér- stakt keppikefli að flækja málin og gera erfitt fyrir. Í vikunni voru kynntar niðurstöður samkeppnismats OECD á íslenskri ferðaþjónustu og byggingariðnaði. Í skýrslunni, sem unnin var að beiðni Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur, ferða- mála-, iðnaðar- og nýsköpunar- ráðherra, segir að áhrif af íþyngj- andi regluverki séu umtalsverð og eru í henni á fimmta hundrað til- lögur, sem gætu numið um einum hundraðasta af landsframleiðslu eða um 30 milljörðum. Þórdís Kolbrún kallar þessar niðurstöður sláandi í grein í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins nú um helgina. Í skýrslunni komi fram að Ísland sé þegar á heildina sé litið eftirbátur annarra á Norð- urlöndum þegar kemur að sam- keppnishæfni og rétt við meðaltal allra ríkja OECD. Þetta sé óvið- unandi og skerði lífskjör og helsta ástæðan sé sú að Ísland sé með „þyngstu reglubyrði allra landa OECD þegar kemur að veitingu þeirrar þjónustu sem skoðuð var í skýrslunni. Við skorum þar ekki bara undir meðaltali heldur lægst af öllum löndum OECD.“ Vitaskuld á ekki að gleypa allt hrátt, sem frá OECD kemur, en sumt í skýrslunni gæti hæglega verið tekið úr gömlum leiðara úr Morgunblaðinu. Á einum stað er til dæmis sagt að kröfur um hönnun bygginga til að tryggja að- gengi allra og lífs- gæði séu mjög ná- kvæm forskrift og taki „ekki alltaf tillit til ólíkra nota bygginganna og annarra mögu- legra lausna á vandamálunum, sem eigi að leysa. Fyrir vikið eru þær líklegar til að auka kostnað og draga úr vali neytandans í bygg- ingargeiranum.“ Það er hægt að einfalda flókin kerfi. Til marks um það er grund- vallarbreyting á skattskýrslugerð. Á árum áður kostaði hún almenn- ing höfuðverk og drjúgan tíma. Nú er fyrirhöfnin nánast engin fyrir þorra framteljenda. Þann vanda, sem lýst er í skýrslu OECD, má yfirfæra á margt í hinu opinbera kerfi og oft- ar en ekki mæta tilraunir til úr- bóta úrtölum og tregðu. Við setn- ingu regluverks gleymist allt of oft að hlutverk þess er að þjóna. Regluverkið á að vera einfalt, rök- rétt og straumlínulagað. Það á ekki að vera svo flókið að það sé eins og að ráfa um völundarhús að komast í gegnum það. Það á ekki að vera svo flókið að utan um það myndist kerfisbákn, sem bólgnar út jafnt og þétt. Ísland er of fámennt land til að manna utanumhald með allt of flóknum og íþyngjandi reglum. Það er kominn tími til að virkja mátt einfaldleikans. Regluverk á Íslandi er allt of íþyngjandi og einföldun þess er tímabær} Máttur einfaldleikans Íslenska karla-landsliðið var grátlega nærri því að tryggja sér réttinn til þátttöku í úrslita- keppni Evrópumóts- ins í knattspyrnu á fimmtudags- kvöld. Liðið var yfir gegn Ung- verjalandi þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum, en fékk á sig tvö mörk á lokamínútunum og missti þar með af farseðlinum á EM. Eftir svona úrslit hefst ávallt áköf umræða um hvað fór úrskeið- is og hvað hefði mátt gera betur. Í því sambandi verður að hafa í huga að þátttaka í stórmótum er ekki sjálfsögð. Til marks um það er að í fyrrakvöld grétu Skotar af gleði yfir því að hafa tryggt sér þátttöku á EM í vítaspyrnu- keppni. Ástæðan fyrir gleðinni var ekki síst sú að Skotar komust síð- ast á stórmót árið 1998 og eru þeir engir byrjendur í fótbolta. Til marks um hversu nærri liðið var að komast áfram er frammi- staðan í riðlakeppninni. Ísland var í einum af fimm sex liða riðlum og fékk 19 stig. Í tveimur þeirra dugði það til að komast beint áfram. Ekkert lið í þriðja sæti hafði jafn mörg stig og Ísland. Íslendingar eru fljótir að verða góðu vanir. Hefði liðið unnið leik- inn í Búdapest hefði það komist á þriðja stórmótið í röð. Eins og á var bent á íþróttasíðum Morgun- blaðsins í gær hafa Íslendingar nokkr- um sinnum unnið sig- ur á lokamínútum leiks. Nú voru það ekki örlög okkar. Vel má vera að nú sé tími til að endurskoða ýmislegt í sambandi við landsliðið. Hollenska knatt- spyrnugoðsögnin Johan Neeskens sagði í viðtali í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins í fyrra að ís- lenska landsliðið hefði á undan- förnum árum unnið fáheyrt afrek, „við erum að tala um 350 þúsund manna þjóð“. Svo bætti hann við: „Nú er þessi gullkynslóð ykkar að eldast og fyrir vikið eru úrslitin ekki alveg eins góð núna og fyrir tveimur til þremur árum. Þetta er alveg það sama og gerðist hjá hol- lenska landsliðinu, þegar síðasta gullkynslóð, Robben, van Persie og þeir, fór yfir hæðina. Nú er næsta kynslóð hins vegar að hasla sér völl og eins og við þá þurfið þið Íslendingar að bíða þolinmóðir. Í knattspyrnunni gengur þetta allt í bylgjum; oft þarf að fara niður á við til að komast upp aftur.“ Það er mikið hæft í þessu. Landsliðið hefur á undaförnum ár- um veitt landsmönnum mikla gleði og innblástur og rifið þjóðina með sér. Það átti líka við í undan- keppninni nú þótt súrt hefði verið í broti að tapa. Tapið í Búdapest á ekki að skyggja á frábæran árang- ur liðsins. Tapið í Búdapest á ekki að skyggja á frábæran árangur} Súrt í broti R íkisstjórn Katrínar (VG), Bjarna (D) og Sigurðar Inga (B) hefur nú í þrjú ár unnið ötullega að því að auka fátækt fatlaðs og lang- veiks fólks í stað þess að bæta kjör þess. Það er sorgleg staðreynd að stór hópur ör- yrkja býr við sárafátækt. Þetta fólk býr við fjárhagslega undirokun sem kristallast með skýrum hætti í því að um áramótin verður munurinn á örorkulífeyri og lágmarkslaunum orðinn 86 þúsund krónur á mánuði. Þetta bil hefur breikkað stöðugt allar götur frá árinu 2007, og kallast kjaragliðlun. Það á að heita að sitjandi stjórn sigli undir forystu svo- kallaðs vinstri flokks (VG) sem kennir sig í kosningaáróðri sínum við jöfnuð, mannréttindi og baráttu fyrir hag fátækra. Samt hefur ekk- ert verið gert til að bregðast við þessari kjara- gliðnun launa og lífeyris fátækra á kjörtímabilinu sem brátt er á enda. Forystufólk stjórnarflokkanna lofar öllu fögru í þessum málum fyrir kosningar. Síðan er allt svikið þegar ráðherrarnir eru sloppnir inn í hlý ráðuneytin. Enga breytingu er að sjá nú þegar Bjarni Benedikts- son, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lagt fram sitt síðasta fjárlagafrumvarp á kjörtíma- bilinu. Frekar þvert á móti. Það er stefnt á aukna fátækt lægstu lífeyrisþega. Harðari sveltistefnu gegn fólki sem getur illa borið hönd fyrir höfuð sér og á svo alltof fáa mál- svara í opinberri umræðu hér á landi. Fjármálaráðherra sagði nú vikunni í svörum við fyrirspurn minni í þinginu um kjör fátækra að hann teldi að hægt væri að leysa úr vanda þeirra sem eru á því sem hann kallaði „ber- strípaðar bætur“. Sá hópur væri svo fámenn- ur. Þá spyr ég hvers vegna hann og ríkis- stjórnin séu ekki búin að gera það nú þegar? Hvers vegna hækka lífeyrislaun bara um 3,6% um næstu áramót, en nú þegar hafa mat- vörur hækkað yfir 10% og þá hafa einnig hækkuð húsleiga og kostnaður vegna geng- issigs krónunnar haft áhrif á fjárhagsstöðu líf- eyrislaunaþega, ásamt aukinni verðbólgu? Nei, allt er hér á sama veginn. Reka skal sveltistefnu gegn veiku fólki, eldri borgurum og börnum. Þetta á ekki að líðast á Íslandi þeg- ar komið er fram á 21. öld. Því miður eru alvar- legir gallar á velferðarkerfi okkar. Öryggis- netið er alltof víða bæði rifið og götótt. Við í Flokki fólksins erum í stjórnmálum vegna þess að viljum bæta þetta net. Við þekkjum götin af eigin reynslu. Við vitum að staðan í dag er ekki sæmandi fyrir okkur öll sem þjóð. Skömmin vegna þessa hvílir alfarið á herðum núver- andi ríkisstjórnar og fjórflokkanna; Sjálfstæðisflokks, Framsóknar, Vinstri grænna og Samfylkingar. Þeir hafa skipt bróðurlega með sér völdum í þessu landi allt frá aldamótum og jafnvel lengur. gudmundurk@althingi.is Guðmundur Ingi Kristinsson Pistill Kjaragliðnun í boði fjórflokksins Höfundur er þingmaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Atvinnuleysið fer stigvax-andi frá mánuði til mán-aðar og jókst alls staðar álandinu í seinasta mánuði. Almennt atvinnuleysi fór í 9,9% í október og verulega hefur fjölgað í hópi þeirra sem eru í minnkuðu starfshlutfalli og fóru á hlutabætur en atvinnuleysi tengt því fór í 1,2%. Heildaratvinnuleysi á landinu var því 11,1% í október og er að lítið eitt meira en Vinnumálastofnun (VMST) hafði reiknað með að sögn Unnar Sverrisdóttur, forstjóra stofnunar- innar. Hún segir greinilegt að áhrif hertra sóttvarnaráðstafana í þriðju bylgju veirufaraldursins komi fram í þessum atvinnuleysistölum og fjölg- un á hlutabótaleiðinni, ekki síst vegna lokana í veitingaþjónustu. Allt bendir til að atvinnuleysið muni halda áfram að vaxa á næstu vikum. VMST spáir því núna að heildaratvinnuleysið verði 11,9% í yfirstandandi mánuði og geti farið í 12,2% í desember. Viðlíka tölur um fjölda atvinnu- lausra í almenna bótakerfinu hafa ekki áður sést að sögn Unnar. Þegar það reis hæst í apríl sl. var almennt atvinnuleysi 7,5%. Alls voru 20.252 einstaklingar atvinnulausir í almenna bótakerfinu í lok októbermánaðar og 4.759 í minnkaða starfshlutfallinu, eða sam- tals 25.011 manns. Fjölgað hefur um 1.440 manns sem nýta sér hlutabóta- leiðina í októbermánuði. Heildaratvinnuleysi á Suður- nesjum komið í 21,1% Suðurnesin skera sig algerlega úr meðal landshlutanna í skýrslu Vinnumálastofnunar, sem birt var í gær. Þar mældist heildaratvinnu- leysi 21,2% í október og var almenna atvinnuleysið 20,1% en atvinnuleysi tengt minnkuðu starfshlutfalli var 1,1%. „Hin erfiða staða flugrekstrar og ferðaþjónustu bitnar hart á at- vinnulífi Suðurnesja,“ segir í um- fjöllun VMST. Atvinnuleysið jókst um 1,6 prósentustig á Suðurnesjum milli mánaða. Þar er heildar- atvinnuleysið mun meira meðal kvenna en karla, eða 24,0% alls hjá konum en 19,3% hjá körlum. Víðar má sjá verulega aukningu atvinnuleysis. Á höfuðborgarsvæð- inu var aukningin 1,2 prósentustig en atvinnuleysið þar fór úr 10,1% í sept- ember og í 11,3% í október. Á Suður- landi jókst það úr 8,4% í september og í 10,0% í október og á Austurlandi fór það úr 5,2% í september og í 7,0% í október. Minnsta aukningin varð á Vesturlandi, Vestfjörðum og á Norðurlandi vestra eða á bilinu 0,5 prósentustig og 0,8 prósentustig. „Atvinnuleysi er hærra meðal kvenna en karla alls staðar á landinu nema á höfuðborgarsvæðinu og Vestfjörðum. Heildaratvinnuleysið er nú 10,8% (9,7% í almenna kerfinu) með- al karla, en 11,4% (10,2% í almenna) meðal kvenna á landinu öllu,“ segir í samantekt VMST. Erfitt er að spá um hvað tekur við eftir áramótin. Þá má reikna með að uppsagnarfrestir margra sem sagt var upp störfum á haustmán- uðum fari að renna út, og gætu þeir þá bæst við á atvinnuleysisskrána. Ekki er þó heldur útilokað að birti til með endurráðningum fyrirtækja sem nái viðspyrnu í vetur ef farald- urinn verður í rénun og ekki síst ef bóluefni við veirunni er í augsýn. Spá 12,2% heildarat- vinnuleysi í desember 20% 15% 10% 5% 0% Þróun atvinnuleysis og spá til áramóta Atvinnuleysi í október eftir landshlutum Atvinnuleysi í janúar-október 2020 og spá fyrir nóvember og desember 20% 15% 10% 5% 0% jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. 4,8% 5,0% 9,2% 17,8% 13,0% 9,5% 8,8% 9,4% 9,8% 11,1% 11,9% 12,2% 11,3% 21,2% 7,0% 4,5% 4,3% 7,7% 7,0% 10,0% Höfuð- borgarsv. Suðurnes Vesturland Vestfi rðir Norðurl. vestra Norðurl. eystra Austur- land Suður- land 4,8 5,0 3,5 5,7 10,3 7,5 5,6 7,4 2,1 7,5 7,9 8,5 9,0 9,9 10,8 11,3 10,1 20,1 6,1 4,0 3,4 6,8 5,8 8,6 Almennt atvinnuleysi Vegna skerts starfshlutfalls Spá VMST Heimild: Vinnu- málastofnun Allt landið 11,1% Fjölgað hefur mikið í hópi þeirra sem hafa verið atvinnulausir í langan tíma. Alls höfðu 3.614 einstaklingar sem voru í at- vinnuleit í október verið án at- vinnu í meira en 12 mánuði og hefur þeim fjölgað um 2.148 á milli ára. Þeim sem verið hafa atvinnulausir í 6-12 mánuði fer einnig fjölgandi, voru 5.491 í lok október en 2.063 fyrir ári. Atvinnuleysið kemur sér- staklega hart niður á erlendum ríkisborgurum og var atvinnu- leysi meðal þeirra 22% í októ- ber. 8.204 erlendir ríkisborg- arar voru án atvinnu í almenna bótakerfinu í lok október. 1.409 erlendir ríkisborgarar voru þá skráðir á hlutabótum. Í atvinnuleit í meira en ár LANGTÍMAATVINNULEYSI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.