Morgunblaðið - 14.11.2020, Síða 28

Morgunblaðið - 14.11.2020, Síða 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2020 Kirkjuteigur 7, 230 Reykjanesbæ Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is Vel staðsett og töluvert endurnýjað 6 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum ásamt bílskúr. Fleiri myndir og lýsing á eignasala.is. Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555 Verð kr. 49.500.000 155,9 m2 Elstu heimildir um germönsk mál eru frumnorrænar áletr-anir sem ritaðar voru með rúnaletri. Rúnastafrófið ernefnt fúþark eftir sex fyrstu rúnunum og á elstu tíð (150-550 e.Kr.) hafði kerfið 24 rúnir. Frum- norrænar rúnaristur eru fá- ar, knappar og brota- kenndar og sumar ærið torskildar enda merkir orð- ið rún „leyndardómur“. Frægust er áletrunin á gullhorni frá Gallehus á Jótlandi sem talin er vera frá um 400 e.Kr. ek hlewagastiz holtijaz horna tawido. Á íslensku væri þessi setning svona: „Ég Hlégest- ur Hyltir táði hornið.“ Auk- nefnið Hyltir á líklega við mann frá Holti (holt merkti upphaflega „skógur“). Hlé- gestur segir frá því að hann hafi gert hornið og þá væntanlega áletrunina líka. Það virðast ekki ýkja merkilegar upplýsingar enda hefur þessi texti verið kallaður „bragðlaus undir- skrift handverksmanns“. Raunar eru gullhornin tvö; annað 87 cm langt en hitt 55 cm, bæði fagurlega skreytt. Áletrunin er á því minna en þess er ekki getið hver gerði hitt. Sögnin ta- wido „gerði“ á sér ekki beina samsvörun í íslensku en ef hún hefði varðveist væri hún í nafnhætti tá (sbr. gotnesku taujan „gera“), þátíð táði. Þótt um sé að ræða aðalsetningu er sögnin aftast líkt og í aukasetningum í þýsku. Orðaröðin kann að helgast af því að þrátt fyrir hversdagslegt inni- hald er textinn bundinn saman með ljóðstöfum, tveimur stuðlum (hlewagastiz – holtija) og höfuðstaf (horna). Hin „þrískipta grein“ stuðlanna var einkenni á forngermönskum kveðskap sem hefur lifað í íslensku einni fram á þennan dag og tókst m.a.s. ekki að deyja al- veg á atómöld. Hér er rétt að minna á stórmerka doktorsritgerð Ragnars Inga Aðalsteinssonar, Tólf alda tryggð: Athugun á þróun stuðlasetningar frá elsta þekktum norrænum kveðskap fram til nú- tímans (2010). Niðurstaðan þar er að stuðlasetning sé í grunninn ná- kvæmlega sú sama nú og hún var á dögum Egils Skallagrímssonar. Vitnisburður elstu rúnaáletrana sýnir að þessi hefð nær í raun enn lengra aftur, nálega tvær þúsaldir. Stuðlasetningin er dæmi um óá- þreifanlegan menningararf í íslensku og ætti fyrir löngu vera komin á heimsminjaskrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Annars eiga gullhornin frá Gallehus sér ævintýralega sögu. Stærra hornið fannst árið 1639 en það minna (með áletruninni) tæpri öld seinna, 1734. Þeim var stolið 1802 og þjófurinn bræddi hornin upp. Til allrar hamingju voru til teikningar af gripunum og af þeim voru gerðar eftirlíkingar sem nú er að finna á söfnum í Dan- mörku. Afsteypunum var aftur stolið tvisvar sinnum (1993 og 2007) en það er önnur saga. Almennt hafa fræðimenn fyrir satt að rúna- ristan á minna horninu sé ósvikin og er fornlegt málfarið á henni til marks um það. Afar ólíklegt er að nokkur maður á fyrri hluta 18. aldar hefði verið nógu vel að sér um rúnir og frumnorrænt málstig til að geta falsað slíkan texta. Tveggja þúsalda tryggð Tungutak Þórhallur Eyþórsson tolli@hi.is Kristen Svensdatter fann gullhorn við Gallehus 1639. Nú berast enn fréttir af vinnubrögðum ogmeðferð á fólki á opinberri stofnun, aðþessu sinni Arnarholti, fyrir hálfri öld, semvekja óhug hjá fólki. Slíkar upplýsingar hafa komið fram við og við um alllangt skeið vegna annarra opinberra stofnana og leitt til greiðslu svokall- aðra „sanngirnisbóta“. En hvað getur leitt til slíkra vinnubragða gagnvart fólki sem á undir högg að sækja, hér í okkar samfélagi? Í Kastljósi RÚV sl. miðvikudagskvöld hafði Héðinn Unnsteinsson, formaður Geðhjálpar, orð á því að ein skýring á því gæti verið ríkjandi viðhorf á hverjum tíma. Það er töluvert til í því, eins og raunar mátti sjá á mynd, sem birtist með frétt RÚV um málið, upp úr skýrslu um Arnarholt, þar sem m.a. var tilgreindur fjöldi svokallaðra „fávita“. Þetta orð er til allrar ham- ingju nánast horfið úr íslenzku máli en var algengt fyrir hálfri öld og áður. Þá var líka talað um „fá- vitahæli“. Orðið sjálft segir alla söguna um viðhorfið til tiltekinna einstaklinga á þeim tíma og þarf ekki að hafa um það mörg orð. Um „ríkjandi viðhorf“ fyrr á tíð má nefna nokkur dæmi. Snemma á 20. öldinni tíðkaðist það hjá svonefndum „betri borgurum“ í Reykjavík, sem höfðu átt þátt í því að konur urðu barnashafandi utan hjónabands að senda þær til Kaupmannahafnar til þess að eignast börnin. Þar var þeim svo komið fyrir á heimilum fyrir mun- aðarlaus börn. Sum þeirra komu til Íslands aftur, önn- ur aldrei. Á þeim árum og alveg fram yfir miðja 20. öldina var það talinn svartur blettur á börnum að vera fædd utan hjónabands. Þau voru talin „óskilgetin“. Fyrir sum þeirra var sá stimpill þung byrði að bera nánast alla ævi. Önnur náðu því að verða þjóðkunnir borgarar og þá var þetta orð gleymt og grafið. Fyrir um átta áratugum sat þjóðkunnur maður við dánarbeð föður síns (sem líka var þjóðkunnur) en hafði aldrei viðurkennt faðernið fyrr en þá, þegar komið var að leiðarlokum. Þeir skildu sáttir. Á styrjaldarárunum síðari komu bæði brezkir og bandarískir hermenn hingað til lands. Þá varð til nýtt hugtak. „Ástandið“. Konur, sem höfðu verið í vinfengi við erlenda hermenn voru sagðar vera „í ástandinu“. Hvernig brást samfélag okkar við því „ástandi“. Slíkum konum var safnað saman og þær fluttar í hús í Reykholtsdal og geymdar þar, nánast eins og í fang- elsi. Sá snúningastrákur á Hæl í Flókadal í fimm sumur, nokkrum árum seinna, sem hér skrifar, heyrði aldrei minnst á þessa geymslu í sveitinni og vissi ekkert af þessu fyrr en fyrir nokkrum árum. Útlendingar voru almennt litnir hornauga, fram yfir miðja 20. öldina. Skömmu fyrir aldamót fyrir rúmlega 120 árum, var ung bóndadóttir á Vestfjörðum áminnt opinberlega í kirkju af presti fyrir lauslæti. Hún hafði eignast barn með norskum hvalfangara. Löngu síðar var talið að faðir hennar hefði beðið prestinn um að veita dóttur sinni þessa áminningu, vegna þess að barnsfaðirinn væri útlendingur. Eftir að þeim Íslendingum fjölgaði, sem fóru til náms til útlanda, gerðist það æ oftar að þeir komu heim með maka. Ætla hefði mátt að landsmenn hefðu þolað maka frá öðrum norrænum ríkjum en það var upp og ofan. Fyrir nokkru talaði ég á fjarfundi Rotary- klúbbs Seltjarnarness um þá spurningu, hvort við byggjum í fordómafullu og þröngsýnu samfélagi. Af því spunnust líflegar umræður og ein fundarkona sagði frá því, að það hefði verið erfitt fyrir móður hennar, sem kom frá Nor- egi, að samlagast íslenzku sam- félagi. Og jafnvel þegar komið var fram yfir miðja síðustu öld var það alvarlegt mál, ef hör- undslitur maka var dekkri en okkar. Þetta eru nokkur dæmi um það að „ríkjandi viðhorf“ fyrr á tíð hafi verið fordómafull og einkennst af þröng- sýni. En fleira kemur til. Þegar þeir atburðir voru að gerast á Arnarholti, sem nú hefur verið upplýst um, var það óskráð regla í fjöl- skyldum á Íslandi að tala ekki um geðveiki, sem upp kom í fjölskyldum. Það var ekki fyrr en fyrir ald- arfjórðungi eða svo, að ungt fólk, aðallega konur, en einn og einn karl, fóru að leggja leið sína á ritstjórn Morgunblaðsins og óskuðu eftir birtingu á greinum um geðveiki og geðveika. Í þeim hópi var m.a. fyrrnefndur formaður Geðhjálpar. Smátt og smátt leiddi framtak þessa unga fólks til þess að umræður um málefni geð- veikra eru nú opnar í okkar samfélagi og enginn þarf lengur að loka sig inni með skömm af þeim ástæðum. Hið sama átti við um alkóhólisma, eitt mesta böl í lífi fjölskyldna hér og annars staðar. Á áttunda áratug síð- ustu aldar tóku nokkrir alkóhólistar höndum saman um að snúast gegn þessu böli og úr varð SÁÁ. Um málefni samkynhneigðra má segja svipaða sögu. Þau brutu sjálf af sér þá hlekki. Hér hafa verið nefnd nokkur dæmi, sem styðja við þá skoðun, að íslenzkt samfélag hafi verið bæði for- dómafullt og þröngsýnt fyrr á árum og að sú meðferð, sem einstakir hópar urðu fyrir á opinberum stofnunum hafi að einhverju leyti átt sér rætur í „ríkjandi við- horfum“. Hvernig ráðum við bót á þessum alvarlegu veik- leikum í samfélaginu? Með opnum umræðum. Þess vegna skiptir máli, að allt sem vitað er um Arnarholt sé birt og að ítarleg rannsókn fari fram á því, sem þar gerðist af hálfu op- inberra aðila. Eftir stendur svo þessi spurning: Hvar er eitthvað þessu líkt að gerast nú án þess að við tökum eftir því? Fordómar og þröngsýni Hvar er „Arnarholt“ nú? Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Næsta mánudag á bandarískiheimspekingurinn Robert No- zick afmæli. Hann fæddist 16. nóv- ember 1938 og lést langt fyrir aldur fram 23. janúar 2002. Í væntanlegri bók á ensku um frjálslynda og íhaldssama stjórnmálahugsuði segi ég frá kynnum okkar, en við áttum merkilegar samræður um heima og geima. Bók Nozicks, Stjórnleysi, ríki og staðleysur (Anarchy, State and Utopia), vakti mikla athygli, þegar hún kom út 1974. Í fyrsta hlutanum svaraði hann stjórnleys- ingjum og sýndi fram á, að ríkið gæti sprottið upp án þess að skerða réttindi einstaklinganna. Í öðrum hlutanum svaraði hann jafn- aðarmönnum og leiddi rök að því, að ekkert ríki umfram lágmarks- ríkið, sem fengist aðeins við að halda uppi lögum og rétti, væri sið- ferðilega réttlætanlegt. Í þriðja hlutanum bendir hann á, að innan lágmarksríkisins geti menn auðvit- að stundað sósíalisma, stofnað sitt eigið draumríki, svo framarlega sem þeir neyði aðra ekki inn í það. Nozick telur, að hver maður sé tilgangur í sjálfum sér og hann megi ekki nota eingöngu sem tæki fyrir aðra. Hann andmælir þess vegna nytjastefnu, sem telur til- gang heildarinnar vera sem mesta ánægju sem flestra. Þetta getur kostað það, að einstaklingi sé fórn- að fyrir heildina. En er ánægjan eftirsóknarverð í sjálfri sér? Nozick ímyndar sér vél, sem við gætum stigið inn í og valið þar um lífs- reynslu að vild, til dæmis ánægjuna af að hafa samið stórkostlegt tón- verk, drukkið höfug vín og eignast góða vini. Engar hliðarverkanir væru af dvölinni, og við gætum val- ið á tveggja ára fresti, hvort við vildum halda vistinni áfram. Mynd- um við stíga inn í þessa ánægjuvél? Nei, svarar Nozick, því að við vilj- um vera eitthvað og gera eitthvað sjálf, ekki lifa í manngerðum veru- leika. Ánægjuvél Nozicks er hugvits- samleg, en ég er dálítið hissa á, að enginn fræðimaður skuli hafa bent á, að þýski heimspekingurinn Frie- drich Paulsen setti fram svipað dæmi, nema hvað hann hugsaði sér ódáinsdrykk, en ekki vél, í Siðferð- islögmálum (System der Ethik), II. bók, II. kafla, 4. grein (Berlin 1889). Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Ánægjuvél Nozicks

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.