Morgunblaðið - 14.11.2020, Side 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2020
Tveir félagar úr baráttunnifagna 60 ára afmæli áþessu ári. Margeir Pét-ursson náði áfanganum 15.
febrúar sl. og í gær, 13. nóvember,
varð Jón L. Árnason sextugur. Það
liggur í augum uppi að á löngum
tíma hafa þeir marga hildi háð en
jafnframt átt góða samvinnu. Fram-
an af var Margeir meira í sviðsljós-
inu en haustið 1976 og allt árið 1977
geystist Jón L. fram, fyrst með því
að sigra á Haustmóti TR, verða svo
Íslandsmeistari 16 ára gamall, þá
Norðurlandameistari unglinga og
loks heimsmeistari pilta 16 ára og
yngri. Það mót fór fram í franska
bænum Cagnes sur Mer við Mið-
jarðarhafið og meðal keppenda voru
Garrí Kasparov og Nigel Short.
Margeir var aðstoðarmaður hans.
Við athugun á skákum Jóns frá
mótinu sýnist mér að sú mikla vinna
sem hann innti af hendi mánuðina
fyrir keppni hafi skilað þessum ár-
angri. Fyrir næstsíðustu umferð
hafði hann ½ vinnings forskot á
næstu menn og jók það með sann-
færandi sigri í 10. umferð. Eftir það
dugði stutt jafntefli í lokaumferðinni
og Íslendingar eignuðust sinn fyrsta
heimsmeistara:
HM ungmenna 16 ára og yngri;
10. umferð
Jón L. Árnason – Santo Roman
(Frakklandi)
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 e5 6. Rdb5 d6 7.
Bg5 a6 8. Ra3 b5 9. Rd5 Be7 10.
Bxf6 Bxf6 11. c3 Bg5 12. Rc2 Hb8
13. Be2 0-0 14. 0-0 Be6 15. Dd3 f5
16. Bf3 Dc8 17. Had1 f4?
Jón L. tefldi afbrigði Svesnikovs
sjálfur með svörtu. Hann vissi að
þetta er alltaf hæpinn leikur.
18. De2 Bd8 19. h3 Hb7 20. Hd3
g5 21. Bg4!
Þessi uppskipti treysta yfirburði
hvíts.
21. … Bxg4 22. Dxg4 Dxg4 23.
hxg4 Rb8 24. b4 Kf7 25. Hfd1 Kg6
26. c4 bxc4 27. Hc3 a5 28. a3 axb4
29. axb4 h5 30. gxh5+ Kxh5
- Sjá stöðumynd 1 -
31. Ra3!
Snyrtilega teflt. Svartur ræður
ekkert við riddarana.
31. … Bb6 32. Rxc4 Bd4 33. Hh3+
Kg6 34. Rxd6 Ha7 35. Rf5 g4 36.
Rde7+ Kg5 37. Hhd3 Hf7 38. Rc8
Ha1 39. Hxd4! exd4 40. Hxa1
– og svartur gafst upp.
Þremur árum eftir Frakklands-
ævintýrið sátu þeir Jón L. og Mar-
geir hlið við hlið í viðureign Íslands
við stórlið Hollendinga á Ólympíu-
mótinu á Möltu. Þrátt fyrir u.þ.b.
100 elo-stiga mun unnu Íslendingar
2½:1½. Meðalaldur þeirra liðsmanna
Íslands, sem tefldu nær allar skák-
irnar undir liðsstjórn Inga R. Jó-
hannssonar, var 20 ár og þetta var
fyrsti sigur þessa hóps yfir stórþjóð í
skákinni. Margeir lagði sitt lóð á
vogarskálarnar:
Ólympíumótið í Valetta 1980; 13
umferð:
Hans Ree – Margeir Pétursson
Tarrasch-vörn
1. c4 c5 2. Rf3 Rf6 3. Rc3 e6 4. g3
Rc6 5. Bg2 Be7 6. 0-0 0-0 7. e4 d5 8.
cxd5 exd5 9. e5 Re4 10. He1 Bf5 11.
d3 Rxc3 12. bxc3 d4 13. c4 Dd7 14.
Db3 Hab8 15. Bf4 Be6 16. Db5 Dd8!
Einfalt og snjallt. Hvíta drottn-
ingin hrekst til baka því að 17. Hab1
má svara með 17. … Rb4! sem hótar
18. … a6.
17. Db1 a6 18. h4 b5 19. Rg5 Bxg5
20. Bxg5 Dc7 21. Dc1 Rxe5 22. Bf4
f6 23. Bxe5 fxe5 24. f4 bxc4 25.
Hxe5 Bf7 26. dxc4 Hb4 27. Bf1 Dc6
28. Dd1 Bxc4 29. Bg2 Dd6 30. Hc1
d3!
Í fljótu bragði virðist þessi leikur
ekki ganga upp en annað kemur á
daginn.
31. Hxc4 Hxc4 32. Bd5+ Kh8 33.
Bxc4 Dd4+ 34. Kg2 Dxc4 35. Db3
Dxb3 36. axb3 Hd8 37. He1 d2 38.
Hd1 a5 39. Kf2 a4! 40. bxa4 c4
– og Ree gafst upp. Hann ræður
ekki við frípeðin.
Samvinna frá
unga aldri
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Sextugir Jón L. Árnason og Margeir Pétursson á góðri stund.
Á Íslandi er rekin af-
skaplega léleg efna-
hagsstefna. Í kreppu-
árum eins og árið 2020
ætlar sér að verða er
notuð sú aðferð á Ís-
landi að láta gengi ís-
lensku krónunnar
sökkva hægt og rólega
svo að hægt sé að auka
hagnað nokkurra fyr-
irtækja á Íslandi í ís-
lenskum krónum talið.
Það er staðreynd að með því að
láta gengi íslensku krónunnar lækka
eins og gert hefur verið fær almenn-
ingur á Íslandi á sig kjaraskerðingu
og launin eru sjálfkrafa lækkuð hjá
öllum almenningi með þessari að-
ferð. Þessi aðferð kemur einnig af
stað verðbólgu í íslenska hagkerfinu
þar sem kostnaður almennings
hækkar í samræmi við lækkun ís-
lensku krónunnar og kjörin rýrna á
sama tíma.
Þetta er slæm stefna efnahags-
lega og kemur alltaf til með að
lengja í íslensku kreppunni, valda
fjöldagjaldþrotum hjá þeim sem eru
með verðtryggð lán og skapa fram-
tíðarefnahagsvanda á Íslandi næstu
áratugina og það er farið að safnast
hressilega í þann haug eftir hags-
tjórnarmistök síðustu ríkisstjórnar
Sjálfstæðisflokksins með Framsókn-
arflokknum og síðan með Fram-
sóknarflokknum og
Vinstri grænum.
Það er alveg ljóst
fyrir hvern þann sem
nennir að skoða málin
að það er ekki fært fyr-
ir íslenskt samfélag að
reka íslenska krónu án
þess að setja almenn-
ing á hausinn að lág-
marki einu sinni á rúm-
lega tíu ára fresti eins
og hefur verið reynslan
núna árið 2008 og síðan
2020. Þetta verður að
hætta og kemur þar inn að hags-
munir almennings vega þyngra
heldur en hagsmunir nokkurra smá-
fyrirtækja á Íslandi sem geta verið
stór á Íslandi vegna þess að Ísland
er pínulítið í Evrópu og ennþá minna
þegar kemur að heiminum.
Það á ekki að fórna hagsmunum
almennings á borði örfárra smáfyr-
irtækja á Íslandi. Það á einfaldlega
ekki að vera í boði.
Léleg efnahags-
stjórnun kemur
af stað verðbólgu
Eftir Jón Frímann
Jónsson
» Það er léleg efna-
hagsstjórnun á Ís-
landi og það er að koma
af stað verðbólgu og
kjaraskerðingum hjá al-
menningi.
Jón Frímann Jónsson
Höfundur er rithöfundur.
jonfr500@gmail.com
Ingibjörg Jónsdóttir fæddist í
Reykjavík 14. nóvember 1933,
dóttir Jóns Sveinssonar útgerð-
armanns og Magneu Jóhönnu
Magnúsdóttur. Hún lauk stúd-
entsprófi frá MR vorið 1953.Um
haustið, sama ár, giftist hún
samstúdent sínum, Ingva Matt-
híasi Árnasyni, og þau áttu sex
börn. Ingibjörg vann við þýð-
ingar og blaðamennsku auk
þess að sinna börnum og búi.
Ingibjörg byrjaði að skrifa
ástarsögur og síðan mynd-
skreyttar barnabækur. Saga
hennar, Músabörn í geimflugi,
var sett á svið í Þjóðleikhúsinu
undir nafninu Ferðin til Limbó.
Þetta var í fyrsta skipti sem
Þjóðleikhúsið setti upp leikrit
eftir íslenska konu, og eins var
bókin ein af fyrstu vísindaskáld-
sögunum hérlendis. Ingibjörg
var einnig mikilvirkur þýðandi
og þýddi ástar- og spennusögur,
m.a. fyrstu þrjátíu bækurnar
um Ísfólkið eftir Margit Sand-
emo, sem voru mjög vinsælar á
þeim tíma. Einnig þýddi hún
bókina Farmer Giles of Ham
eftir J.R.R. Tolkien sem kom út
árið 1979 undir nafninu Gvend-
ur bóndi á Svínafelli.
Ingibjörg lést 25. desember
1986.
Merkir Íslendingar
Ingibjörg
Jónsdóttir
Kirkjubraut 2, 300 Akranesi | Sími 570 4824
hakon@valfell.is | valfell.is
STILLHOLT 21 - AKRANESI
Glæsileg 190,4 fm þakíbúð á 10. hæð með
stórkostlegu útsýni af tvennum svölum til suðurs
og vesturs, svalirnar eru hellulagðar og eru 33,4
fm og 24,2 fm.
Lofthæð íbúðar um 295 cm. Íbúðin er á
10. hæð í lyftuhúsnæði. Íbúðinni fylgir stæði í
bílakjallara.
Innan íbúðar eru tvö svefnherbergi, auk 15 fm
sjónvarpsstofu (möguleiki að stúka af sem þriðja
svefnherbergið) auk þess er möguleiki á að bæta
fjórða svefnherberginu í alrýmið. Hjónaherberginu
fylgir sér baðherbergi með sturtu og fataherbergi.
Þvottahús innan íbúðar.
Aðalbaðherbergi með sturtu. Alrými samanstendur
af eldhúsi, stofu og borðstofu um 70 fm. Gert er
ráð fyrir að hægt sé að setja upp heitan pott á
vestursvölum. Í kjallara er sérgeymsla og stæði í
bílskýli.
Glæsileg íbúð í algjörum sérflokki með útsýni eins
og það gerist einna best á Akranesi.
Seljandi er tilbúinn að skoða skipti á minni eign.
Til afhendingar strax.
Verð 87,5 millj.
Fasteignir