Morgunblaðið - 14.11.2020, Qupperneq 40
40 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2020
Við leitum að einstaklingi með háskólapróf á sviði fjármála, viðskiptafræði, verkfræði
eða aðra menntun sem nýtist í starfi. Viðkomandi þarf einnig að hafa reynslu af fjár-
og áhættustýringu og verkefnastjórnun. Þekking á fjárfestasamskiptum (IR) er kostur.
Lögð er rík áhersla á frumkvæði og sjálfstæði í starfi auk framúrskarandi samskiptahæfni.
Intellecta hefur umsjón með ráðningu. Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran
(thelma@intellecta.is) og Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225.
Fullum trúnaði er heitið og umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Umsóknarfrestur er til og með 23. nóvember 2020 og óskast umsókn útfyllt á www.intellecta.is.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi.
Fjölbreytt og krefjandi starf við
fjár- og áhættustýringu bíður eftir
áhugasamri og drífandi manneskju.
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
Helstu verkefni
• Þátttaka í stefnumótun og verkefnastjórnun
á sviði fjárstýringar, fjármögnunar, áhættumats
og áhættustýringar.
• Ábyrgð á daglegri fjárstýringu og eftirliti með
framgangi hennar.
• Stýring fjármálalegrar áhættu og umsjón með
áhættumati fyrir fyrirtækið í heild.
• Samræming vinnulags við gerð áhættumats
og þátttaka í mati á áhættuþáttum.
• Virk þátttaka í verkefnum er lúta að fjármögnun
félagsins og framgangi lánasamninga og greiðslna.
• Tengsl við fjárfesta félagsins og aðra lánveitendur
(IR) ásamt þróun og viðhaldi samskiptaáætlana.
VILT ÞÚ LEIÐA
FJÁRSTÝRINGU?
Rafkaup óskar eftir að ráða starfsmann til
bókhalds, innflutnings og tollamála.
Um er að ræða vinnu við almennt bókhald,
afstemmingar og uppgjör. Ásamt vinnu við pantanir,
innflutning, samskipti við erlenda birgja, tollskýrslu-
gerð, launavinnsla, umsjón talninga og fleira.
Hæfniskröfur:
• Reynsla af sambærilegu starfi
• Góð tölvukunnátta
• Sjálfstæð vinnubrögð
• Góð þjónustulund
• Reglusemi og góð ástundun
• Gott skipulag
• Góð íslensku og ensku kunnátta skilyrði
Um 100% starf er að ræða.
Einungis reyklausir einstaklingar eldri en 25 ára
koma til greina og þarf viðkomandi að hafa hreint
sakavottorð. Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á
atvinna@rafkaup.is fyrir 20. nóvember 2020
Bókhald og
innflutningur
Okkur á hjúkrunarheimilinu Seltjörn
á Seltjarnarnesi vantar hjúkrunardeildar-
stjóra til að stýra og reka 20 manna heimiliseiningu.
Starfið er laust frá og með 1. febrúar 2021, en æskilegt
að viðkomandi geti hafið störf eitthvað fyrr.
Sótt er um starfið á sunnuhlid.is.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
Nýtt ár • Nýjar áskoranir
Ef óskað er nánari upplýsinga
hafið samband við Svanlaugu
Guðnadóttur, framkvæmdastjóra
hjúkrunar í síma 864-4184 eða
svana@sunnuhlid.is.
Atvinnuauglýsingar 569 1100