Morgunblaðið - 14.11.2020, Page 46

Morgunblaðið - 14.11.2020, Page 46
sagnfræði og skíðum en vefnaði þegar hún var ung. „En ég hef þá trú að í lífinu komi svona stundir þar sem manni er stýrt á ákveðna braut og ég held að mér hafi verið stýrt þarna og eins þegar ég fer á Varmaland. Þetta púslaðist þannig saman án þess að ég hafi endilega valið það, en þó svo að mitt áhugasvið hafi verið annað á þessum tíma, þá kom áhuginn smám saman með ástundun og auknum þroska.“ Hún segir Guð- rúnu Vigfúsdóttur hafa verið áhrifa- konu í sínu lífi því hún hafi aftur leitað til hennar eftir námið og þá hafi Guð- rún verið nýkomin af kennaraþingi á Varmalandi, þar sem vantaði kennara, og þar með small púslið saman. Á Varmalandsárunum kynntist Snjólaug eiginmanni sínum, Guð- brandi Brynjúlfssyni, sem þá var nem- andi í búvísindadeild Bændaskólans á Hvanneyri. „Við hefjum búskap á Brú- arlandi 1973 og ég flyt þangað alkomin árið 1975. Ég tók ekki þátt í skepnu- hirðingu á búinu enda lítt hrifin af sem vefnaðarkennari og vann þar í níu ár auk þess að kenna um hríð mynd- og handmennt við útibú grunnskólans á Varmalandi. Hún segir að í rauninni hafi hún haft miklu meiri áhuga á S njólaug fæddist á Ísafirði 14. nóvember 1945 og ólst þar upp til 18 ára aldurs. „Ég passaði börn þegar ég var ellefu ára og þegar ég varð svo unglingur fékk ég vinnu í fiski.“ Hún segir það hafa verið gaman að fá að taka þátt í atvinnulífinu og að stundum hafi krakkar fengið að pilla rækju í 1-2 tíma í akkorði og fengu þá borgað eftir vigt. „Það var yndislegt að alast upp á Ísafirði. Maður var frjáls eins og fuglinn og lék sér í fjörunni og í fjallinu og á Hlíðaveginum voru mörg börn svo það skorti aldrei félaga.“ Snjólaug var mikil skíðakona og stundaði skíðaíþróttina af kappi á barns- og unglingsárunum eins og sannur Hlíðavegspúki. Hún fór í lands- próf vorið 1961 frá Gagnfræðaskóla Ísafjarðar og fór í 1. bekk mennta- skólans, sem þá var starfræktur við skólann. „Mamma var vefnaðarkennari. Hún var fædd og uppalin í Eyjafirði en lærði vefnað í Danmörku og þegar hún kom til Ísafjarðar að kenna við hús- mæðraskólann kynntist hún pabba. Árið 1959 byrjar hún með vefstofu og við systurnar unnum á sumrin á vef- stofunni, en svo fær hún krabbamein og deyr 1963.“ Snjólaug ræðir það ekki frekar en segir að stuttu síðar hafi hún fengið hugljómun. „Þegar mamma er dáin, man ég eftir því að ég var að vefa niður úr stól og þá slær þeirri hug- mynd í kollinn á mér að ég ætti bara að halda vefstofunni áfram, ráða sauma- konur og hönnuði og byggja hús með speglum og halda tískusýningar. Í miklum spenningi yfir háleitri hug- myndinni fór hún til Guðrúnar Vigfús- dóttur, vefnaðarkennara í Húsmæðra- skólanum, og spyr hana hvort hún haldi að hún geti komist inn í nýja vefnaðardeild Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands, sem hafði verið aug- lýst fyrr um haustið. „Daginn eftir missti ég móðinn og fór til Guðrúnar og vildi hætta við allt saman. En þá var hún búin að hafa samband suður og ég mátti koma í skólann um áramótin.“ Um vorið 1965 lauk Snjólaug vefn- aðarkennaraprófi frá Handíða- og myndlistaskóla Íslands. Hún réðst til starfa við Hússtjórnarskólann á Varmalandi í Mýrasýslu haustið 1966 skepnum, en það hefur nú elst af mér. Hræðslan við dýrin kom mér í listina,“ segir hún og hlær. Flest sumur voru hjónin með unglinga, sem ásamt son- um þeirra tóku þátt í bústörfum. „Þá var maðurinn minn oddviti sveit- arinnar frá 1978 til 1990 og var skrif- stofa hreppsins á heimilinu og fundir hreppsnefndar haldnir þar. Það var því nóg að gera við húsmóðurstörf og barnauppeldi þessi ár, en þegar meiri tími vannst frá heimilisstörfum fór ég að vinna við handíðir og hönnun og byggði vinnu mína á þeirri menntun sem ég hafði.“ Smám saman fór Snjólaug að sinna listinni af meiri alvöru. „Ég byggði litla vinnustofu og gallerí á Brúarlandi og það má segja að handíðir og hönnun sé mitt aðalstarf núna, þótt ég hafi minnkað við mig vinnu með hækkandi aldri.“ Samhliða listsköpuninni var hún virk í félagsmálum. „Þegar ég hafði verið nokkur ár á Brúarlandi gekk ég í kvenfélag hreppsins, var í stjórn Kvenfélaga- Snjólaug Guðmundsdóttir vefnaðarkennari og húsmóðir – 75 ára Listakonan Snjólaug í vinnustofu sinni á Brúarlandi í Borgarfirðinum, en þar rekur hún einnig lítið gallerí. Stýrt á ákveðna braut í lífinu Skíðakonan Snjólaug stundaði skíðaíþróttina af kappi á Ísafirði. 46 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2020 –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR um auglýsingapláss: Berglind Bergmann Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is BÍLA-SÉRBLAÐ BÍLA fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 17. nóvember 2020BLAÐ Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú þarft fyrr eða síðar að horfast í augu við staðreyndir. Hvernig væri að setja eigin markmið? Í umsjón annarra fara þau úr böndunum. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú þarft á nánum samböndum að halda og ættir því að leita leiða til að bæta sambönd þín. Gengur þér allt í haginn, eða þarftu að endurskoða einhverjar hug- mynda þinna? 21. maí - 20. júní  Tvíburar Talaðu svo skýrt að enginn þurfi að velkjast í vafa um ásetning þinn. Haltu þínu striki og láttu neikvæðar raddir ekki hafa áhrif á þig. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það skiptir engu hversu vel þú tel- ur þig þekkja einhvern, viðkomandi getur samt komið þér á óvart. Sýndu göfuglyndi, þú munt ekki iðrast þess síðar. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Af hverju ættir þú að flýta þér þegar þú veist ekki hvert þú ert að fara? Hægðu á þér, slappaðu af eða stöðvaðu hreinlega. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er allt í lagi að hlusta á annarra ráð en ástæðulaust að hlaupa eftir þeim ef þín eigin dómgreind segir þér annað. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þetta er ekkert verri tími en hver ann- ar til þess að brydda upp á nýjungum. Haltu ró þinni hvað sem á dynur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Gættu þess að leggja vel við hlustir í öllum samskiptum þínum við aðra í dag. Taktu þér því góðan tíma til þess að hafa öll smáatriðin á hreinu áður en þú hefst handa. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þótt fólk hafi það á orði hversu fjölhæfur þú sért, skaltu varast að láta þau ummæli hafa of mikil áhrif á þig. Farðu ekki út fyrir þau mörk sem þú settir þér. 22. des. - 19. janúar Steingeit Hlustaðu! Fólk er að skipta um skoðun og breyta um stefnu. Reyndu að snúa erfiðri reynslu upp í jákvætt tækifæri til þroska og lærdóms. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur yndi af skáldsögum og lætur þig dreyma um að skrifa eina sjálfur. Tjáðu þig um framtíðaráform þín. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er engin ástæða fyrir þig til þess að bera ábyrgð á öllum sem í kring- um þig eru. Og öllu gamni fylgir einhver al- vara. Til hamingju með daginn Reykjavík Móeiður Svala Guðlaugs- dóttir fæddist 28. febrúar 2020 kl. 6.03. Hún vó 3.950 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Guðlaugur Þór Þorsteinsson og Tinna Brá Sig- urðardóttir. Nýr borgari 30 ára Salka Sól fæddist í Los Angeles en ólst upp í Reykjavík og Hafnarfirði. Salka Sól er lögfræðingur hjá Landslögum lög- fræðistofu, en er núna í fæðingarorlofi. Hún hefur mestan áhuga á samskiptum við skemmtilegt fólk. Maki: Daníel Þór Magnússon, f. 1991, sjóðstjóri hjá Gamma. Börn: Aría Björk, f. 2016, og Hólmar Hrafn, f. 2020. Foreldrar: Elín Þóra Friðfinnsdóttir, f. 1956, d. 2018, og Styrmir Sigurðsson, f. 1967, kvikmyndagerðarmaður og fóst- urmóðir Halldóra Guðrún Ísleifsdóttir, f. 1970, grafískur hönnuður. Þau búa í Bergen í Noregi. Salka Sól Styrmisdóttir 40 ára Júlíus Ingi ólst upp í Hafnarfirði og Ólafsvík og býr núna í Hafnarfirði. Júl- íus Ingi er hús- gagnasmiður og er núna að vinna hjá fyrirtækinu Þúsund fjalir. Helstu áhugamál Júlíusar Inga eru hjólreiðar og almenn útivist og svo hef- ur hann gaman af því að horfa á kvik- myndir. Maki: Katrín Knudsen, f. 1980, meist- aranemi í félagsráðgjöf í Háskóla Ís- lands. Börn: Viktor Árni, f. 2004, og Kristófer Logi, f. 2007. Foreldrar: Þóra Viktoría Árnadóttir, f. 1945, og Júlíus Ingason, f. 1944, d. 2012. Hún býr í Hafnarfirði. Júlíus Ingi Júlíusson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.