Morgunblaðið - 14.11.2020, Side 47
sambands Borgarfjarðar um tíma og
var fulltrúi á aðalfundum Kaupfélags
Borgfirðinga í nokkur ár. Ég starfaði
með Kvennalistanum öll árin sem
hann var starfræktur og sat m.a. á Al-
þingi í tvær vikur eitt árið sem vara-
maður Danfríðar Skarphéðinsdóttur.“
Snjólaug hlaut heiðursviðurkenn-
ingu Menningarsjóðs Borgarbyggðar
árið 2007 fyrir framlag hennar til
menningarmála í Borgarbyggð.
Fjölskylda
Eiginmaður Snjólaugar er Guð-
brandur Brynjúlfsson, f. 30.4. 1948,
bóndi. Foreldrar hans eru Brynjúlfur
Eiríksson, f. 21.12. 1910, d. 12.1. 1976,
bóndi og bílstjóri, og Halldóra Guð-
brandsdóttir, f. 15.5. 1911, húsfreyja á
Brúarlandi á Mýrum. Systkini Snjó-
laugar eru Hólmfríður, f. 25.8. 1944, fv.
kennari og skólastjóri, búsett á Ak-
ureyri og Bárður Guðmundsson, f.
27.10. 1950, skipulags- og bygginga-
fulltrúi á Selfossi. Börn Snjólaugar og
Guðbrands eru Brynjúlfur Steinar, f.
27.2. 1973, bóndi á Brúarlandi, kvænt-
ur Theresu Vilstrup Olesen garðyrkju-
fræðingi og húsmóður, f. 28.11. 1974,
og Guðmundur Ingi, f. 28.3. 1977, líf-
fræðingur og umhverfisfræðingur og
umhverfis- og auðlindaráðherra og býr
í Reykjavík. Snjólaug á barnabarnið
Dóru Karólínu Brynjúlfsdóttur, f. 23.5.
2007.
Foreldrar Snjólaugar eru hjónin
Guðmundur Bárðarson vélstjóri, f. 9.2.
1918, d. 27.6. 1977, og Margrét Ingi-
björg Bjarnadóttir, f. 8.8. 1915, d.
3.3.1963. Þau bjuggu á Ísafirði.
Snjólaug
Guðmundsdóttir
Guðmundur Jóhannesson
bóndi á Kirkjubóli,
Nauteyrarhreppi, Ísafirði
Kirstín Bárðardóttir
húsfreyja, Kirkjubóli,
Nauteyrarhreppi, Ísafirði
Bárður Guðmundsson
bókbindari á Ísafirði
Emelía Hólmfríður
Guðmundsdóttir
húsfreyja, Ísafirði
Guðmundur Bárðarson
vélstjóri og ökukennari
á Ísafirði
Guðmundur Guðmundsson
bóndi í Bæ, Víkursveit,
Strandasýslu.
Björg Þorkelsdóttir
húsfreyja í Bæ, Víkursveit,
Strandasýslu
Óttar
Guðjónsson
fram
kvæmda-
stjóri
Lánasjóðs
sveitar-
félaga
Bárður
Guðmundsson
skipulags- og
byggingarfulltrúi
á Selfossi
Hólmfríður
Guðmunds
dóttir
kennari og
skólastjóri á
Akureyri
Kristján Benedikt
Bjarnason
bóndi Leifsstöðum, Eyjafirði
Borghildur Ingibjörg
Sigurðardóttir
húsfreyja Leifsstöðum
Bjarni Benediktsson
bóndi og kennari á
Leifsstöðum, Eyjafirði
Snjólaug Eyjólfsdóttir
húsfreyja, Leifsstöðum,
Eyjafirði, síðar á Akureyri
Eyjólfur Brandsson
bóndi Stóru-Reykjum, S-Þing.
Guðrún Árnadóttir
húsfr. Stóru-Reykjum, S-Þing.
Úr frændgarði Snjólaugar Guðmundsdóttur
Margrét Ingibjörg
Bjarnadóttir
vefnaðarkennari á
Ísafirði
DÆGRADVÖL 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2020
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is
Úrval náttúrulegra bætiefna og fóðurs fyrir hunda og ketti.
Nánar á dyrabaer.is
HOLLUSTA OG HEILBRIGÐI FRÁ
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„DÓTTIR MÍN SEGIR AÐ ÞÚ VONIST TIL
AÐ STARFA VIÐ SIGLINGAR.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vilja gera hvað
sem er fyrir hana.
ÆTLARÐU AÐ LIGGJA
HÉR Í ALLAN DAG?
ÞÚ GETUR KALLAÐ
ÞAÐ AÐ LIGGJA…
ÉG KÝS AÐ KALLA ÞETTA AÐ
STANDA LÁRÉTT
LÁTTU MIG FÁ
SOKKANA FYRIR
ÞVOTTINN!
VÁ ,HVAÐ
MÁNUÐIRNIR
FLJÚGA HJÁ!
„HUGSARÐU EINHVERN TÍMANN UM AÐ
SKAÐA SJÁLFAN ÞIG EÐA AÐRA?”
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Daufur hann í dálkinn er.
Dugar vel til styrktar þér.
Felling er á segli sá.
Síðan mishæð landi á.
Guðrún B. leysir gátuna þann-
ig:
Grillaði Ýr gráðost hrygg.
Hún gat stutt hrygg við bekk.
Frá hrygg á segli sagði, trygg,
en svo upp hrygginn gekk.
Eysteinn Pétursson svarar:
Hryggur daufur í dálkinn er.
Dável hryggurinn nýtist mér.
Hrygg má ætíð á segli sjá.
Svo er hann mishæð landi á.
Helgi Þorláksson á þessa lausn:
Hryggir ekki teljast teitir,
tilstyrk mikinn hryggur veitir,
felling í segli hryggur heitir,
um hryggi fara menn í leitir.
Helgi R. Einarsson svarar:
Veiran hryggir víst hann.
Hryggur styrkir hvern mann.
Hrygg má á seglinu sjá,
sem og landinu á.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Hryggur þessi halur er.
Hryggurinn þig uppi ber.
Hrygg á segli síðan finn.
Svo er hryggur fjallsásinn.
Þá er limra:
Veru bað Vermundur sveri,
en Vera þá upp á sig sneri
og hryggbraut þann
heiðursmann,
og hryggurinn illa greri.
Og síðan ný gáta eftir Guð-
mund:
Rokið úti rýkur hátt,
rignir nú um hverja gátt.
Inni sérhver una má,
eflaust margir gátu þrá:
Í stiga honum stend ég á.
Stykki á rokk nú finna má.
Bera dót í búð ég sá.
Baðstofuloftið nefni þá.
Helgi R. Einarsson lét þessa
limru fylgja sinni lausn:
Það gerðist er gamli Jótinn
gaf henni undir fótinn.
Það gerði’ ann svo fast
að grindin hún brast
og gáfu sig liðamótin.
Halldór Blöndal
halldorblondal@siment.is
Vísnahorn
Hryggur hlær
en glaður grætur