Morgunblaðið - 14.11.2020, Síða 48
48 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2020
FÓTBOLTI
Gunnar Egill Daníelsson
Kristófer Kristjánsson
Jón Þór Hauksson, landsliðsþjálfari
kvenna í knattspyrnu, hefur valið
hópinn sem mætir Slóvakíu og Ung-
verjalandi í undankeppni EM 2021 og
var niðurstaðan tilkynnt í gær.
Tvær breytingar hafa verið gerðar
á hópnum sem mætti Svíþjóð í lok
október. Dagný Brynjarsdóttir og
Rakel Hönnudóttir koma inn en þær
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og
Hólmfríður Magnúsdóttir eru ekki í
hópnum. Ísland mætir Slóvakíu 26.
nóvember og svo Ungverjalandi 1.
desember en báðir leikirnir verða
spilaðir á útivelli.
Jón Þór tjáði Morgunblaðinu í gær
að Karólína væri á leið í aðgerð. „Kar-
ólína Lea hefur komið frábærlega inn
í okkar lið en hún er meidd, er á leið-
inni í aðgerð á hné og getur því ekki
verið með okkur í þessum tveimur
leikjum. Það er auðvitað slæmt fyrir
okkur og sömuleiðis getur Hólm-
fríður ekki verið með eftir að hafa
komið sterk inn í síðustu verkefni. Að
sama skapi er frábært að fá Rakel og
Dagnýju aftur inn í okkar hóp. Þetta
eru tveir reynslumiklir leikmenn sem
munu nýtast okkur frábærlega í
þessum leikjum,“ sagði Jón Þór.
Möguleikarnir eru góðir
Sandra Sigurðardóttir, markvörð-
ur Vals og íslenska kvennalandsliðs-
ins í knattspyrnu, telur íslenska liðið
eiga góða möguleika á að komast á
EM. „Mér líst bara vel á að vera að
fara að spila þessa leiki. Við erum í
góðum séns. Við þurfum náttúrlega
að vinna okkar leiki.“
Sandra segir gott fyrir liðið að
tveir leikreyndir leikmenn komi inn á
ný. „Í svona leikjum skiptir það auð-
vitað máli. Hins vegar hefur til dæmis
Karólína, sem dettur út, staðið sig
ótrúlega vel. Hún kom inn af miklum
krafti og lék feikilega vel í þeim leikj-
um sem hún spilaði. Hún er með mikil
gæði. Það er slæmt að missa hana en
maður verður náttúrlega að hugsa að
það kemur maður í manns stað.
Þarna eru heldur betur nöfn, reynsla
og gæði að koma inn í hópinn á nýjan
leik.“
Sandra hefur spilað alla sex leikina
í undankeppninni og staðið sig vel;
aðeins fengið á sig fjögur mörk. Hún
segir landsliðið afar vel sett þegar
kemur að markvörðum og fagnar
samkeppninni. „Alveg sama hver
samkeppnin er þá er hún bara af hinu
góða, ekki spurning. Ég er þarna til
að æfa sem best og spila sem best og
ætla mér að halda þessu sæti. Sam-
keppnin er af hinu góða fyrir mig og
aðra leikmenn,“ segir hún og vonast
að sjálfsögðu til þess að fá tækifæri til
þess að halda stöðu sinni á EM þar-
næsta sumar.
Landsliðið nýtur góðs
af Evrópuleikjum Vals
Valur vann á dögunum góðan 3:0
sigur gegn HJK Helsinki í fyrstu um-
ferð Meistaradeildar Evrópu. Mið-
vikudaginn 18. nóvember mætir liðið
Glasgow City í annarri umferð. „Við
erum í forréttindastöðu að fá að spila
og æfa á þessum tímum. Við erum
byrjaðar í undirbúningi og erum að
fara að skoða þær á morgun á æfingu,
að fara yfir vídeó og kynna okkur þær
nánar. Við vitum að þær eru sterkar
en við erum það líka þannig að þetta
er mjög spennandi, að fá alvöru leik.
Við vitum ekki alveg fyllilega hverj-
um við erum að fara að mæta en það
er spennandi.“
Undirbúningurinn hefur gengið
vel. Sandra segir það ekki síst vera
vegna þess að eftir sigurinn gegn
HJK hafi Valur fengið undanþágu frá
sóttvarnayfirvöldum til að æfa nokk-
uð eðlilega. „Við fengum grænt ljós
strax eftir þann leik og hófum æfing-
ar á mánudaginn. Við fylgjum
ákveðnum reglum um sóttvarnir hvað
varðar mætingu og klefanotkun en
fáum að spila eðlilegan fótbolta á æf-
ingum. Við erum því búnar að æfa
alla vikuna, sem er náttúrlega geggj-
að, ekki síst miðað við undirbúning-
inn sem við fengum fyrir seinasta
leik. Þá er þetta talsvert betra.
Þá var hópur sem var að æfa heima
en mátti ekki vera á fótboltaæfingum,
þær voru bara í prógrammi frá
styrktarþjálfurum. Þær voru með
bolta og þurftu að sinna sínum æfing-
um sjálfar. En við vorum sjö sem vor-
um í landsliðsverkefni þannig að við
fengum bæði leik og æfingar á háu
stigi. Það voru samt sem áður allir
leikmenn klárir,“ útskýrir Sandra.
Að þessu sinni eru aftur sjö leik-
menn Vals í landsliðshópnum. Sandra
telur landsliðið njóta góðs af því að
liðsmenn Vals hafi fengið að æfa og
spila undanfarið. „Ekki spurning, það
hjálpar klárlega. Bæði fáum við að
æfa og svo fáum við leiki til að halda
okkur í spilformi.“
Að lokum bendir Sandra á að aðrir
leikmenn sem spila á Íslandi hafi
sömuleiðis fengið undanþágu. „Það
var ákveðinn landsliðshópur sem
fékk líka undanþágu til að æfa eðli-
lega, það fá allir að halda sér á tán-
um.“
Landsliðshópinn og viðtal við
Jón Þór er að finna á mbl.is/sport/
fotbolti.
Reynslan mun nýtast vel
Dagný og Rakel í landsliðshópnum sem mætir Slóvakíu og Ungverjalandi
Þátttaka Vals í Meistaradeild Evrópu kemur landsliðinu til góða
Morgunblaðið/Eggert
Reynd Sandra Sigurðardóttir kastar boltanum frá marki Íslands í leiknum gegn Svíum á Laugardalsvellinum.
Valencia heimsótti þýska stórliðið
Bayern München í Euroleague,
sterkustu Evrópukeppni félagsliða
í körfuknattleik, í gærkvöldi. Bay-
ern hafði betur, 90:79.
Martin Hermannsson skoraði 4
stig fyrir Valencia. Gaf hann 2 stoð-
sendingar á samherja sína og tók 3
fráköst.
Valencia er í 6. sæti og hefur
unnið fjóra leiki af sjö í keppninni
en Bayern er í 2. sæti og hefur unn-
ið sex af átta. Barcelona situr í
toppsætinu og hefur liðið unnið sjö
leiki af fyrstu átta. kris@mbl.is
Valencia í 6. sæti
í Euroleague
Morgunblaðið/Hari
Euroleague Martin Hermannsson
skoraði 4 stig á móti Bayern.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Ís-
landsmeistari í golfi úr Keili, er úr
leik eftir 36 holur á móti í Sádi-
Arabíu en mótið er hluti af Evrópu-
mótaröðinni. Guðrún Brá náði sér
ekki á strik og lék á 80 og 77 högg-
um. Guðrún er gjarnan stöðug í leik
sínum og ólíkt henni að missa hring
upp í 80 högg.
Var hún á samtals tólf höggum
yfir pari vallarins. Aðstæður virð-
ast hafa verið erfiðar því það stefn-
ir í að það dugi að vera á sex högg-
um yfir pari til að komast í gegnum
niðurskurðinn. sport@mbl.is
Guðrún úr leik í
Sádi-Arabíu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Úr leik Guðrún Brá Björgvinsdóttir
náði sér ekki á strik í vikunni.
Undankeppni HM karla
Argentína – Paragvæ............................... 1:1
Kólumbía – Úrúgvæ................................. 0:3
Spánn
B-deild:
Zaragoza – Real Oviedo.......................... 1:2
Diego Jóhannesson var á varamanna-
bekk Oviedo.
Frakkland
Lyon – Soyaux.......................................... 5:1
Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leik-
inn fyrir Lyon.
Holland
B-deild:
Helmond Sport – Excelsior .................... 2:1
Elías Már Ómarsson skoraði mark Ex-
celsior.
Danmörk
Ribe-Esbjerg – Skjern ........................ 36:23
Rúnar Kárason skoraði 11 mörk fyrir
Ribe-Esbjerg, Gunnar Steinn Jónsson 4 og
Daníel Þór Ingason 2.
Elvar Örn Jónsson skoraði 2 mörk fyrir
Skjern.
Svíþjóð
Lugi – Önnered.................................... 20:23
Hafdís Renötudóttir er markvörður hjá
Lugi.
Evrópudeildin
Bayern München – Valencia .............. 90:79
Martin Hermannsson skoraði 4 stig, gaf
2 stoðsendingar og tók 3 fráköst.
Marcus Rashford, ein af stjörnum
enska landsliðsins í knattspyrnu,
hefur þurft að draga sig úr hópnum
vegna meiðsla en enska knatt-
spyrnusambandið greindi frá þessu í
gær. Hann mætir þá ekki Íslend-
ingum í Þjóðadeildinni á miðvikudag-
inn. Sóknarmaðurinn kom ekkert við
sögu í 3:0-sigri á Írlandi í vináttu-
landsleik og hefur nú verið sendur
heim. Á morgun mætir Ísland Dan-
mörku í Kaupmannahöfn í Þjóða-
deildinni áður en haldið verður til
Englands.
Elías Már Ómarsson skoraði mark
Excelsior í 2:1 tapi liðsins gegn Hel-
mond Sport í hollensku B-deildinni í
gær. Elías hefur nú skorað 14 mörk í
12 leikjum í deildinni og er lang-
markahæstur.
Líf var á vinnumarkaðnum í gær
en þá fengu þrír íslenskir knatt-
spyrnuþjálfarar starf. Þorvaldur Ör-
lygsson hefur verið ráðinn í þjálf-
arateymi Stjörnunnar. Hann verður
því Rúnari Páli Sigmundssyni, aðal-
þjálfara liðsins, til aðstoðar á næstu
leiktíð. Ólafur Jóhannesson þjálfaði
með Rúnari á síðasta tímabili en
sagði starfi sínu lausu á dögunum.
Þorvaldur hætti nýlega sem þjálfari
U19-ára landsliðs karla.
Orri Freyr Hjaltalín var ráðinn þjálf-
ari meistaraflokks Þórs í knatt-
spyrnu karla. Hann skrifaði í gær
undir þriggja ára samning og tekur
við af Páli Viðari Gíslasyni sem lét
af störfum á dögunum. Netmiðillinn
Akureyri.net greindi frá þessu í gær.
Þá var Guðlaugur Baldursson ráðinn
þjálfari karlaliðs Þróttar og samdi
við félagið til fjögurra ára en bæði
Þór og Þróttur eru í næstefstu deild.
Guðlaugur var síðast í þjálfarateymi
FH.
Eitt
ogannað
Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik mætir
því búlgarska á Krít í Grikklandi í undankeppni
EM í dag og hefst leikurinn klukkan 15:00.
Íslenska liðið er í svokallaðri „búbblu“ á hóteli á
Krít þar sem strangar sóttvarnareglur eru í gildi.
Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, er staddur í
Grikklandi og kveðst afar stoltur af liðsmönnum
og fylgdarliði íslenska liðsins þar sem allir hafi
fylgt öllum reglum til hins ýtrasta.
Því hafi ekki greinst eitt einasta smit í her-
búðum Íslands. „Það sýnir sig bara í því að við er-
um bara neikvæð og aftur nei-
kvæð, í jákvæðum skilningi!“
segir Hannes, en smit hafa
komið upp í herbúðum allra
þriggja andstæðinga Íslands
þrátt fyrir að þeir séu sömu-
leiðis í „búbblu“.
Hannes segir KKÍ hafa gert
allt sem í sínu valdi stæði til
þess að fá Alþjóðakörfuknatt-
leikssambandið til þess að
fresta leikjunum vegna þeirra smita sem komu
upp hjá andstæðingum Íslands en að á það sé ekki
hlustað.
Úr því að svo er stendur ekki á viðbrögðum ís-
lensku landsliðskvennanna. „Stelpurnar eru það
stoltar af því að fá að spila fyrir land og þjóð að
þær ætla bara að fá að mæta á keppnisgólfið og
taka þátt,“ segir Hannes.
Hann segir stemninguna í hópnum enda frá-
bæra þrátt fyrir þessar erfiðu aðstæður og mikla
tilhlökkun fyrir leiknum í dag. gunnaregill@mbl.is
Jákvætt að reynast neikvæð í Grikklandi
Hannes
Jónsson