Skólavarðan


Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 14

Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 14
14 VOR 2017 Ásdís sat heima í Dymbilvikunni og fór yfir verkefni þegar blaðamaður Skólavörðunnar heimsótti hana til að að ræða kennarastarfið og málefni vinnuumhverfisnefndar. „Kvennó er góður vinnustaður og það er yndislegt að starfa þar. Það er og hefur alltaf verið mikil framþróun, verið að prófa sig áfram með nýja hluti og kennarar hafa frelsi til að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd. Kvennó var langt á undan öðrum í styttingu náms til stúdentsprófs. Ingibjörg S. Guðmundsdóttir, sem var skólameistari, vildi láta reyna á þriggja ára nám til stúdentsprófs og það var sett á árið 2009 og fyrsti árgangurinn útskrifaðist árið 2012. Við vorum heppin í upphafinu því við fengum nýtt húsnæði og gátum stækkað skólann. Við lentum því ekki í því, sem margir óttuðust, að með því að skerða námið um fjórðung þá myndi kennurum fækka um fjórðung.“ Ásdís kennir nú frumkvöðlafræði og fjármálalæsi og frá og með næsta hausti bætist þjóðhagfræði við en þetta eru ný fög í skólanum. Hugmyndin var Ásdísar en hún hefur auk þess að leggja stund á jarðfræði og stærðfræði i háskóla, lokið meistaragráðu í viðskiptafræði. „Tímasetningar í mínu lífi hafa oft verið undarlegar og ég lauk viðskiptafræðináminu í október 2008. Þá var það bara „Guð blessi Ísland“ og allir vita hvernig það fór. Þannig að ég hélt mínu striki í Kvennó og hef ekki séð eftir því.“ Báðar þessar greinar njóta vinsælda og Ásdís segir það hafa komið sér skemmtilega á óvart hversu margir nemendur skráðu sig í kúrsana. „Það er alveg frábært að kenna þessi fög enda nemendurnir alveg frábærir og meðvitaðir um þessi fræði.“ Námsáhuginn er enn til staðar og Ásdís er aftur farin að stunda háskólanám. Hún vinnur nú að annarri meistaragráðunni, að þessu sinni í ritlist. „Ég get hæglega mælt með þessu námi, þetta hefur verið óskaplega skemmtilegt, ekki síst að hitta allt þetta unga fólk sem er svo flinkt og frábært.“ Ásdís hefur þegar skilað fyrri hluta meistararitgerðarinnar, ljóðabók, og nú vinnur hún að gerð sögulegrar skáldsögu og stefnir á útskrift næsta haust. Skáldskapur- inn hefur fylgt henni alla tíð og hún skrifaði sitt fyrsta smásagnasafn aðeins átta ára gömul. „Það voru hærri þröskuldar í gamla daga og viðkvæðið var að maður ætti að læra eitthvað sem hægt væri að lifa af. Þess vegna lagði ég kannski ekki skrifin fyrir mig heldur fór í háskóla til að stúdera jarðfræði.“ Álagið þarf að viðurkenna Við víkjum nú talinu að starfi vinnu- umhverfisnefndar en Ásdís er formaður nefndarinnar. Hún segir mörg málefni til umræðu í nefndinni og verkefnin af ýmsu tagi. Streita og álag sem kennarastéttin býr við er eitt af stóru málum nefndarinnar. Kennarar hafa lengi kvartað undan miklu vinnuálagi sem veldur streitu og kulnun. „Ég vil ekki setja mig í einhverjar fórn- arlambsstellingar en kennarar eru margir undir gríðarlegu álagi. Það þarf viðurkenn- ingu á því að kennarastarfið sé álagsstarf. Það eru allir sammála því að leikari eða útvarpsmaður sem flytur sinn daglega þátt á dag séu í fullu starfi, en sem kennari þá stendurðu tímunum saman innan um áheyrendurna og flytur þinn „útvarpsþátt“. Kennarinn þarf að vera vel undirbúinn og ég myndi vilja sjá að þessar starfsaðstæður væru viðurkenndar og umbunað samkvæmt því,“ segir Ásdís. Hópastærðirnar eru annað baráttumál að sögn Ásdísar. „Hópastærðir eru stórt og mikilvægt mál og ég segi stundum að við getum einfaldlega snúið dæminu við og spurt hvaða foreldri finnist í lagi að bjóða barninu sínu upp á að vera alltaf í svo og svo margra manna hópi. Mínir bekkir eru allt upp í 29 nemendur. Fullorðið fólk veit hvaða álag fylgir því að vinna í stóru opnu rými en okkur finnst í lagi að bjóða börnunum okkar upp á slíkt. Minnstu börnin eru mörg hver í leikskólanum í níu klukkustundir á dag sem er lengra en hefðbundinn vinnudagur hjá fullorðnu fólki. Svo tekur grunnskólinn við og þá er algengt að krakkarnir séu í stórum hópum allan daginn, þar sem þau leysa og vinna verkefni jafnvel í hávaða og truflandi aðstæðum,“ segir Ásdís. Ásdís segir brýnt að huga að vinnuum- hverfi nemendanna ekki síður en kennar- anna, en grunnskólakrakkar dvelja lungann úr deginum í skólanum. „Við verðum að horfa á þetta sem vinnustað unglinganna líka og stundum er bara ekki nokkur vinnufriður. Svo eru komin ný vandamál, ef svo má að orði komast, börn og unglingar eru mikið á netinu, á Facebook, og búa við meiri streitu en áður.“ Annar streituvaldur eru tölvu- og net- kerfi skólanna. Ásdís vakti athygli á þessu í grein sem birtist í Skólavörðunni árið 2015. Þar skrifaði hún meðal annars: „Stafrænt vinnuumhverfi er veruleiki mjög margra í dag og ef tölvukerfi virka ekki getur það haft verulega áhrif á afköst, sem aftur hefur áhrif á starfsfólk og starfsánægju.“ KENNARAR ÞURFA AÐ VERA ÁHUGASAMARI UM AÐSTÆÐUR Á VINNUSTAÐ Ásdís Ingólfsdóttir framhalds- skólakennari þekkir vel til vinnuumhverfismála kennara. Hún hefur verið formaður vinnuumhverfisnefndar KÍ síðustu tvö ár og átt sæti í nefndinni í nærfellt átta ár. Ásdís hefur um árabil kennt efnafræði og hagfræði í Kvennaskólanum í Reykjavík og nú er hún að bæta við sig kennslu í fjármálalæsi og frumkvöðlafræði. Kennarastarfið er sem slíkt frábært, fjölbreytt og yndislegt en starfs­ aðstæður og laun þurfa að vera í sam­ ræmi við menntun og ábyrgð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.