Skólavarðan


Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 24

Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 24
24 VOR 2017 Hvernig líður nýútskrifuðum kennurum í starfi? Eru móttökur í skólunum eins og vera ber og njóta nýir kennarar stuðnings og leiðsagnar? Hvað má betur fara í kennaranáminu? Jónína Björk Stefánsdóttir leitaði svara við þessum spurningum í meistaraverkefni sínu við Kennaradeild Háskólans á Akureyri, en hún útskrifast þaðan í vor. Jónína tók vel í að ræða helstu niðurstöður sínar við Skólavörðuna en þó með þeim fyrirvara að þegar viðtalið var tekið var ritgerðarskrifum ekki að fullu lokið. Jónína er fyrst innt eftir því hvernig hugmyndin að rannsókninni hafi komið til. „Ég fékk hugmyndina þegar ég var í vettvangsnám- inu. Ég hafði ætlað mér að skrifa lokaritgerð um annað efni en var ekki komin almennilega af stað. Svo skaut þessari hugmynd niður í kollinn á mér og sennilega var ástæðan sú að mér varð ljóst hvað það er mikið stökk að fara úr hlutverki kennaranemans, sem býr við utanum- hald í háskólanum, og yfir í að verða fullgildur kennari fyrir framan hóp barna í skólastofu,“ segir Jónína. Hún segir samstarfsfólk í Dalvíkurskóla, þar sem hún stundaði vettvangsnámið, hafa bent sér á að málefni „nýrra kennara“ yrðu einmitt til umræðu á samræðu- þingi Akureyrardeildar Delta Kappa Gamma, Beta og Mý. Þetta var síðasta haust. Jónína greip þetta á lofti og mætti á samræðu- þingið. „Þvílík tilfinning að koma þarna og hlýða á fyrirlestrana. Ég var komin með hugmyndina áður, en það var eins og þetta verkefni væri að hoppa í fangið á mér. Í kjölfarið hafði ég samband við umsjónarmann meistaranema við HA og María Steingrímsdóttir, dósent við Háskólann á Akureyri, varð minn leiðbeinandi og fljótlega kom í ljós að hún hafði gert svipaða rannsókn árið 2005. María sagði tímabært að kanna þessa hluti á nýjan leik því á þessu tímabili hefði námið verið lengt úr þremur árum í fimm,“ segir Jónína. Hlýtt viðmót samkennara Jónína tók viðtöl við fimm kennara sem eiga það sameiginlegt að vera nýir í starfi. Hún er fús að segja frá meginniðurstöðum en ítrekar að ritgerðin verði ekki fullbúin fyrr en í byrjun maí. „Eitt af því sem ég komst að er að það eru engar sérstakar móttökur þegar nýútskrifaðir kennarar byrja í kennslu. Mínir viðmæl- endur voru á einu máli um að samkennarar og starfsfólk skólanna hefðu tekið vel á móti þeim og viðmótið hefði verið hlýtt og gott. Hins vegar hefði ekki verið áætlun um leiðsögn þegar fyrstu skrefin væru tekin í skóla- stofunni og viðmælendurnir sögðust hefðu viljað meiri afskipti skólastjórnenda til að byrja með.“ Jónína segir innleiðingarkerfi fyrir nýja kennara hafa borið á góma og koma mætti í veg fyrir að ungir kennarar eyddu dýrmætum tíma í að leita uppi upplýs- ingar og fleira. Ekki dugi þó að skipa reynda kennara sem leiðsagnarkennara ef þeim er ekki gefinn viðunandi tími til að sinna því verki. Vinnuálag og tímaskortur eru þekkt fyrirbæri meðal kennara og segir Jónína það hafa áhrif á móttökur nýrra kennara. „Kennararnir sem ég ræddi við töluðu um hversu mikið sjokk það væri að koma inn í skólann og frá fyrstu mínútu mætti segja að starfið væri kapp- hlaup við tímann. Auk kennslunnar þurfa kennarar að sækja fjölda funda, eiga samskipti við foreldra og leysa úr vandamálum nemenda. Þeir geta því lent í tímahraki við að skipuleggja kennsluna og leggja áherslu NÝIR KENNAR- AR ÞURFA HANDLEIðSLU FYRSTA ÁRIð Jónína Björk Stefánsdóttir segir námsárin í Kennaradeild Háskólans á Akureyri hafa verið afar ánægjuleg. Hún hlakkar til að byrja að vinna í kennslu en það ætlar hún að gera næsta haust.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.