Skólavarðan


Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 41

Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 41
VOR 2017 41 nýjar brautir sem ná að virkja óvirkar stöðvar sem þar eru til staðar.“ Fjarlægjum borð og stóla Það er Kristín sem er höfundur Leikur að læra. Hún er íþrótta- og grunnskólakennari að mennt og fór árið 2006 að leitast við að nýta leik við kennslu á stærðfræði. Árangurinn var það góður að hún þróaði aðferðafræðina áfram til að nýta við kennslu í öðrum greinum. Niðurstaðan er aðferðafræði sem er ólík þeirri sem kemur upp í huga flestra þegar talað er um skóla. Ekki er gert ráð fyrir að kennari standi upp við töflu og kenni nemendum sem sitja við borð með bók fyrir framan sig og fylgjast með. „Við erum ekki bara að taka bókina frá kennaranum í Leikur að læra, við erum líka að taka borðið og stólinn en komum með önnur verkfæri í staðinn. Kennarar sem eru að stíga sín fyrstu spor í Leikur að læra tileinka sér ákveðna lykilleiki. Kennarinn setur mismunandi bóklega námsþætti inn í leikinn eins og passar hverju sinni út frá þeim markmiðum sem unnið er með. Það má líkja þessu við að kennarinn læri eitt lag en það fari svo eftir getu og aldri nemenda hvaða texti er sunginn við. Kennarinn þarf í byrjun ekki að kunna marga leiki en þegar hann hefur öðlast færni í einum lykilleik getur hann haldið áfram að læra fleiri leiki eða þróað nýja með sínum nemendum með þarfir þeirra að leiðarljósi.“ Ýtt undir sköpun og sjálfstæði Miklar breytingar hafa orðið á skömmum tíma á samfélaginu í heild og skólarnir hafa ekki farið varhluta af því. Kristín og Nonni trúa að Leikur að læra aðferðafræðin búi nemendur betur undir þau verkefni sem bíða þeirra þegar skóla sleppir. „Leikurinn gefur svo margt, svo sem samskipti, tungu- málið, vináttu og samvinnu auk þess sem hann bætir bekkjarbrag og í raun skóla- braginn í heild. Tengingin milli nemenda verður allt öðruvísi og það er svo gleðilegt að verða vitni að því þegar kennarar átta sig á að Leikur að læra gefur allt þetta en er ekki bara stór verkefnabók. Það er afar dýrmætt. Með því að nýta þau tæki sem við erum að smíða er hægt að vekja áhuga nemenda á námi með öðrum áherslum en áður og nýta önnur skynfæri en tölvutæknin krefst. Við teljum að þarna sé að finna verkfæri fyrir kennara til að undirbúa nemendur fyrir óþekkta framtíð. Börn nútímans munu mörg hver vinna störf sem ekki enn hafa verið fundin upp og því þarf menntakerfið að bregðast við því með því að ýta undir sköp- un, samskiptahæfni og sjálfstæði nemenda. Alla þessa eiginleika er hægt að þjálfa með hugmyndum Leikur að læra, auk þess sem eðlilegri þörf nemenda til að hreyfa sig er gefið gott rými.“ Rekin áfram af ástríðu Leiðin sem þau Kristín og Nonni fóru til að þróa kennsluaðferðina áfram og koma henni á framfæri við sem flesta var að stofna fyrirtæki og selja skólum aðgang að því efni sem þau vinna og þeirri þekkingu sem þau hafa viðað að sér. „Ástæðan fyrir því að við förum þessa leið er trú okkar á verkefninu og ástríða fyrir því að koma því á framfæri sem víðast. Við vildum því helga okkur verkefninu sem væri útilokað ef við værum í fullu starfi við kennslu. En við þurfum auðvitað líka að eiga fyrir salti í grautinn og því fórum við þessa leið. Viðbrögðin við þeirri vinnu sem við höfum lagt á okkur eru afar góð. Þetta er mikil og skemmtileg vinna og eitt af því sem við höfum gert til að láta reksturinn ganga upp er að bjóða upp á endurmenntunarferðir fyrir kennara. Þannig náum við að halda þessu gangandi. En það verður að viðurkennast að í svona starfi þá kemur alltaf upp sá tímapunktur, þegar maður er búinn að vinna ótal mörg kvöld og helgar, að maður veltir fyrir sér hvort það sé ekki best að hætta þessu. En eins og við sögðum áðan þá er það þessi ástríða fyrir verkefninu og jákvæð viðbrögð kennara og nemenda sem hvetja okkur áfram.“ Engin borð eða stólar eru í kennslustofunni þegar börnum er kennst skv. aðferðafræðinni „Leikur að læra“. Ljósmynd: Árni Brynjólfsson – leikur að læra. „Við erum ekki bara að taka bókina frá kennaranum í Leikur að læra, við erum líka að taka borðið og stólinn.“ Jón Karlsson og Kristín Einarsdóttir hafa undan- farin misseri þróað aðferðafræðina „Leikur að læra“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.