Skólavarðan


Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 56

Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 56
56 SKóLAvARðAN NÓVEMBER 2016 Ingileif Ástvaldsdóttir segir fátt betra en að skíða niður brekku í geggjuðu færi og góðu veðri. Ingileif er í tveimur saumaklúbbum, leshring og klúbbi kennslukvenna. HvER: Skólastjóri Þelamerkurskóla í Hörgárdal og varaformaður Skólastjórafé- lags Íslands. Hvað er efst á baugi hjá Skólastjórafé- laginu þessa dagana? Við áformum við vinnufund með formönnum svæðafélaga og nefndarfólki okkar í haust. Þann sama dag er ætlunin að vera með málþing þar sem fjallað verður um íslenskar rann- sóknir á störfum skólastjórnenda og kennslufræðilega forystu í daglegu starfi þeirra. Í september tökum við, ásamt FSL á móti kollegum okkar frá hinum Norður- löndunum á árlegum fundi NLS Ledarfor- um. Umfjöllunarefni þess fundar verður kennslufræðileg forysta og skóli 21. aldarinnar. Svo erum við farin að huga að árlegri námstefnu félagsins og aðalfundi sem haldin verða í Reykjavík í október. Hvernig leggst vor og sumar í þig? Vor og sumar leggjast alltaf vel í mig. Ég kann vel við birtuna, ylinn og garðastússið sem fylgja þessum árstíma. Ætlarðu að ganga á fjall í sumar? Já, þetta sumar verður engin undantekning á því. Nú þegar hef ég merkt tvær göngu- ferðir inn á dagatalið mitt. Önnur er um Hornstrandir og hin um Laugaveginn. Í hvaða klúbbum ertu? Ég er í tveimur saumaklúbbum sem hittast reglulega. Annar segist vera bútasaumsklúbbur og kennir sig við Húsabakka. Hinn er venju- legur saumaklúbbur kvenna sem tóku mig að sér þegar ég flutti til Dalvíkur á sínum tíma. Svo er ég formlega í leshring um menntamál og í klúbbi kennslukvenna. Hvaða bók er á náttborðinu? Þær eru margar, eiginlega tveir staflar og sá þriðji í Ipadinum og símanum. Ég hef nýlega lokið við Ör eftir Auði Övu Ólafsdóttur. Svartalogn eftir Kristínu Marju Baldurs- dóttur er efst í bunkanum núna og Það sem ég tala um þegar ég tala um hlaup eftir Murakami. Í Ipadinum er ég að hlusta á The Nightingale eftir Kristin Hannah. Í símanum var ég að ljúka við að hlusta á og lesa á víxl bókina Hacking Education. 10 quick fixes for every school eftir Mark Barnes og Jennifer Gonzalez. Hún er hagnýt og það er hægt að koma mörgu af því sem þar er kynnt strax í verk og án mikillar fyrirhafnar. Uppáhaldsfagið þitt í grunnskóla? Móð- urmál. Skemmtilegast fannst mér samt þegar kennarinn las fyrir okkur á meðan við æfðum formskrift. Hundur eða köttur? Kisa. Ein sérlunduð býr hjá okkur núna sem við köllum Ingveldi fagurkinn. Hún eltir mig í skól- ann á morgnana og krummarnir sem við ölum á matarafgöngum fylgja okkur. Hvað gerirðu á laugardagsmorgnum? Fer hægt og snemma á fætur, borða morgun- matinn rólega, blaða í gegnum Twitter, les eða gríp í handavinnu þar til ég fer út að hlaupa lengstu hlaupaæfingu vikunnar. Hvaða tónlist er best að dansa við? Diskó, auðvitað! Ef þú mættir taka íslensku þjóðina í kennslustund hvað myndirðu kenna? Ég myndi halda bekkjarfund um réttindi og skyldur okkar við hvert annað og hvað hvert okkar getur lagt af mörkum til að bæta umræðuhefðina. Hvað er best í heimi? Það toppar fátt að skíða niður brekku í geggjuðu færi og góðu veðri. Facebook eða Twitter? Twitter. Mæli með sunnudagsmorgni með menntaspjalli og góðu mjólkurkaffi. FÉLAGINN INGILEIF ÁSTVALDSDÓTTIR (52 ÁRA AÐ MIG MINNIR) KANN vEL vIð BIRTUNA OG GARðASTÚSS SUMARSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.