Skólavarðan - 2017, Qupperneq 56
56 SKóLAvARðAN NÓVEMBER 2016
Ingileif Ástvaldsdóttir segir fátt betra en að
skíða niður brekku í geggjuðu færi og góðu
veðri. Ingileif er í tveimur saumaklúbbum,
leshring og klúbbi kennslukvenna.
HvER: Skólastjóri Þelamerkurskóla í
Hörgárdal og varaformaður Skólastjórafé-
lags Íslands.
Hvað er efst á baugi hjá Skólastjórafé-
laginu þessa dagana? Við áformum við
vinnufund með formönnum svæðafélaga
og nefndarfólki okkar í haust. Þann sama
dag er ætlunin að vera með málþing þar
sem fjallað verður um íslenskar rann-
sóknir á störfum skólastjórnenda og
kennslufræðilega forystu í daglegu starfi
þeirra. Í september tökum við, ásamt FSL
á móti kollegum okkar frá hinum Norður-
löndunum á árlegum fundi NLS Ledarfor-
um. Umfjöllunarefni þess fundar verður
kennslufræðileg forysta og skóli 21.
aldarinnar. Svo erum við farin að huga að
árlegri námstefnu félagsins og aðalfundi
sem haldin verða í Reykjavík í október.
Hvernig leggst vor og sumar í þig? Vor og
sumar leggjast alltaf vel í mig. Ég kann
vel við birtuna, ylinn og garðastússið sem
fylgja þessum árstíma.
Ætlarðu að ganga á fjall í sumar? Já,
þetta sumar verður engin undantekning á
því. Nú þegar hef ég merkt tvær göngu-
ferðir inn á dagatalið mitt. Önnur er um
Hornstrandir og hin um Laugaveginn.
Í hvaða klúbbum ertu? Ég er í tveimur
saumaklúbbum sem hittast reglulega.
Annar segist vera bútasaumsklúbbur og
kennir sig við Húsabakka. Hinn er venju-
legur saumaklúbbur kvenna sem tóku mig
að sér þegar ég flutti til Dalvíkur á sínum
tíma. Svo er ég formlega í leshring um
menntamál og í klúbbi kennslukvenna.
Hvaða bók er á náttborðinu? Þær eru
margar, eiginlega tveir staflar og sá þriðji
í Ipadinum og símanum. Ég hef nýlega
lokið við Ör eftir Auði Övu Ólafsdóttur.
Svartalogn eftir Kristínu Marju Baldurs-
dóttur er efst í bunkanum núna og Það
sem ég tala um þegar ég tala um hlaup
eftir Murakami. Í Ipadinum er ég að
hlusta á The Nightingale eftir Kristin
Hannah. Í símanum var ég að ljúka við
að hlusta á og lesa á víxl bókina Hacking
Education. 10 quick fixes for every school
eftir Mark Barnes og Jennifer Gonzalez.
Hún er hagnýt og það er hægt að koma
mörgu af því sem þar er kynnt strax í verk
og án mikillar fyrirhafnar.
Uppáhaldsfagið þitt í grunnskóla? Móð-
urmál. Skemmtilegast fannst mér samt
þegar kennarinn las fyrir okkur á meðan
við æfðum formskrift.
Hundur eða köttur? Kisa. Ein sérlunduð
býr hjá okkur núna sem við köllum
Ingveldi fagurkinn. Hún eltir mig í skól-
ann á morgnana og krummarnir sem við
ölum á matarafgöngum fylgja okkur.
Hvað gerirðu á laugardagsmorgnum? Fer
hægt og snemma á fætur, borða morgun-
matinn rólega, blaða í gegnum Twitter,
les eða gríp í handavinnu þar til ég fer út
að hlaupa lengstu hlaupaæfingu vikunnar.
Hvaða tónlist er best að dansa við? Diskó,
auðvitað!
Ef þú mættir taka íslensku þjóðina í
kennslustund hvað myndirðu kenna? Ég
myndi halda bekkjarfund um réttindi og
skyldur okkar við hvert annað og hvað
hvert okkar getur lagt af mörkum til að
bæta umræðuhefðina.
Hvað er best í heimi? Það toppar fátt að
skíða niður brekku í geggjuðu færi og
góðu veðri.
Facebook eða Twitter? Twitter. Mæli með
sunnudagsmorgni með menntaspjalli og
góðu mjólkurkaffi.
FÉLAGINN INGILEIF ÁSTVALDSDÓTTIR (52 ÁRA AÐ MIG MINNIR)
KANN vEL vIð BIRTUNA OG
GARðASTÚSS SUMARSINS