Skólavarðan


Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 54

Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 54
54 VOR 2017 Á nýafstöðnu málþingi kynjafræðinem- enda og kennara í Borgarholtsskóla voru nemendur í pallborðsumræðum einhuga um að kynjafræði ætti að vera skyldufag í framhaldsskóla – og jafnvel grunnskóla. Ætli það sé ekki einsdæmi að nemendur geri sér far um að ,,agítera“ fyrir því að tiltekið fag verði gert að skyldu? Það eru sannarlega hundruð nemenda í kynjafræði sem hafa hvatt til þess bæði í ræðu og riti, auk annarra sem hafa lagt málefninu lið svo sem háskólakennara, Kvenréttindafélagsins, ýmissa femínistafélaga og fleiri. Hluti af rökstuðningnum fyrir því að kynjafræði ætti að vera skyldufag snýst um að það muni ekki nást jafnrétti í samfélaginu án þess að menntakerfið í heild sinni verði virkur aðili í því starfi. Skólakerfið er hluti af vandanum, því þar er staðalmyndum og ranghugmyndum oft viðhaldið með ómeðvitaðri hlutdrægni, en þó líka hluti af lausninni. Því er nauðsyn- legt að vekja hvern og einn kennara til vitundar um jafnréttismál – á ígrundaðan og vandaðan hátt þar sem kynjakerfið, mismunun, kvenfyrirlitning, fórnar- kostnaður karlmennskunnar, kynskiptur vinnumarkaður, hefðbundin kynhlutverk og annað sem varðar jafnréttismál – er sett í samhengi. Allir kennarar þurfa að öðlast skilning á því hvernig ójafnréttið birtist í samfélaginu og í samskipt- um – og verða þannig næmir á hvernig mismunun er viðhaldið og fá þjálfun og þekkingu til þess að bregðast við og fræða. Jafnréttisfræðsla í skóla- kerfinu þarf að vera bein og óbein. Nemendur þurfa að fá beina fræðslu, þar sem farið er í birtingarmyndir ójafnréttis og þær settar í samhengi. Auk þess þarf hver og einn kennari að vera meðvitaður um að hann sé ekki að viðhalda staðalmyndum og ranghugmyndum í samskiptum sínum, námsgögnum eða aðgerðaleysi. Jafnrétti þarf að vera kerfisbundið og altækt í skólum. Skólar þurfa að hafa jafnrétti að leiðarljósi í öllum sínum ákvörðunum og starfi; félagslífi nemenda, stjórnun skólastofn- ana, viðmóti, andrúmslofti og skólamenningu. Kennarar eiga að vera leiðandi afl í jafnréttisstarfi í skólum og til þess að svo verði þurfa allir kennarar að fá heildstæða jafnréttisfræðslu. Jafnréttisnefnd Kennarasambands Íslands hefur skorað á stjórnendur í öllum menntastofnunum á öllum skólastigum að sinna jafnréttisfræðslu. Því hefur verið vel tekið og margt gott starf fer fram víða í skólunum. En forsenda fyrir því að jafnrétti verði rauður þráður í skólastarfi á Íslandi er að kennarar hafi forsendur til að taka virkan þátt í því starfi. Kynja- og jafnréttis- fræðum alla kennara á öllum skólastigum og setjum þannig kraft í að samfélagið okkar verði byggt á jafnrétti – til heilla fyrir alla. Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, framhaldsskóla- kennari og fulltrúi í jafnréttisefnd KÍ. KENNUM KENNURUM KYNJA- OG JAFNRÉTTIS- FRÆðI!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.