Skólavarðan


Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 19

Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 19
þeir finni til með börnunum þegar þau hverfa á braut. Þetta hafi ekki endilega mikil áhrif á önnur börn, en starfsfólkið viti hvers vegna þau fara þegar þeim er vísað úr landi. Í þeim efnum mætti styðja við starfsfólkið. Kennsluefni stóra málið Í Fjölbrautaskólanum við Ármúla eru nú um 100 nemendur frá 30 löndum með íslensku sem annað tungumál. Þar er kennd íslenska fyrir hópinn. Flestir hafa verið á landinu og lært málið í að minnsta kosti 2 ár, segir Úlfar Snær Arnarson, kennslustjóri nýbúa við skólann. Nemendur séu hvattir til að taka venjulega íslenskuáfanga. Úlfar Snær bætir því við að það vanti kennslubækur sem tengist greinum á efri þrepum. „Það er komið nokkuð gott samsafn af efni í kennslu á fyrstu þrepum íslensku sem kennarar geta nýtt sér. Efni á efri þrepum er einungis lausablöð og fjölrit, klippt, skorið, límt og stolið hvaðanæva að. Það vantar efni sem reynir á þau og gerir miklar kröfur til þeirra, kröfur sem eru sanngjarnar en byggja upp hjá þeim orðaforða sem nýtist í þeim fjölmörgu áföngum í skólanum þar sem ekki er tekið eins mikið tillit þess mál- umhverfis sem viðkomandi ólst upp við.“ Úlfar Snær segir að kennarar sem kenni íslensku sem annað mál eigi í miklum samskiptum sín á milli, t.d. á samfélags- miðlum. Þó vanti skipulagðari vettvang til skoðanaskipta. „Það er til dæmis langt síðan haldin var ráðstefna um kennslu nýbúa. Það er löngu kominn tími til að koma á annarri ráðstefnu eða námskeiði sem styður við kennara sem sinna þessari kennslu. Megum ekki sitja eftir Aðalheiður Steingrímsdóttir bendir á að börn njóti réttar til skólagöngu, sem meðal annars er varinn af Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Hún segir að Kennarasambandið geti gert mikilvæga hluti í þessum efnum. „KÍ þarf að fara vel yfir hvernig hægt er að styðja við fólk sem hingað kemur og starfa með skólunum. KÍ þarf að setja sér stefnu í þessum málum eins og kennarasamtök erlendis hafa gert. Við höfum skyldur í þessum efnum og megum ekki verða eftirbátar nágranna- þjóðanna.“ „Það er vel séð um þessa hópa og ytri þörfum sinnt en kannski þurfum við að einbeita okkur meira að velferð og sálgæslu þessa fólks.“ Kristín Helgadóttir, leikskólastjóri í Holti í Reykjanesbæ. Lengdu fríið og gistu á Bed&Breakfast Keflavik Airport nóttina fyrir eða eftir flug. Innifalið í gistingu er morgunverðarhlaðborð, geymsla á bíl og keyrsla til og frá flugvelli. Bókanir í síma 426-5000.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.