Skólavarðan


Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 38

Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 38
38 VOR 2017 Ingimar Karl Helgason skrifar Kennarar og fjölmargir sem tengjast kennslu með einum eða öðrum hætti styðjast við tölvur og fjöldann allan af forritum. Þetta gengur ekki alltaf áfallalaust. Stundum virka hlutirnir ekki, sem getur valdið vandræðum og töfum ekki síður en aukinni streitu. Ásdís Ingólfsdóttir skrifaði hér í Skólavörðuna fyrir fáum misserum um „Helvítis skítakerfin“ og miðlaði þar reynslu Svía og benti á að þessum þáttum yrði að gefa gaum. Næg væri streitan í starfinu fyrir, þótt álag vegna tölvukerfa bætti ekki á. En hvernig er staðan í þessum efnum hér á landi? Skólavarðan getur ekki gefið tæmandi yfirlit í þessari grein, en hafði samband við fólk víða að til að forvitnast um stöðu mála. Almennt virðist fólk telja að notkun tölva og hinna ýmsu forrita dragi úr álagi og hjálpi heldur til en hitt, þegar á heildina er litið. Hins vegar geta verið undantekningar á því, til að mynda þegar fólk er að hefja notkun á nýju forriti eða kerfi. Þau tölvukerfi, búnaður og forrit sem eru notuð í kennslu og tengdum störfum þykja almennt góð. Þetta eru hefðbundin stýrikerfi OS og Windows á nettengdum tölvum, og stundum spjaldtölvum. Almenn forrit á borð við tölvupóst eru nýtt, auk þess sem skýjalausnir á borð við GSuite og Google drive eru notuð. Einnig nýtir fólk kennslukerfi Innu, Námfús og síðu á borð við Mentor, svo dæmi séu tekin. Staðan er örlítið mismunandi eftir stöðum. Þannig er t.a.m. komið spjaldtölvu- umhverfi í Kópavogi og í Garðabæ er unnið eftir fimm ára áætlunum sem m.a. gera ráð fyrir því að tölvubúnaður sé aldrei eldri en 5 ára. Í Árskóla á Sauðárkróki hafa verið stigin markviss skref til að bæta allt tölvuumhverfi kennara með góðum árangri. Kennsla á kerfin „Það er að mestu í höndum kennaranna að læra á tölvukerfin, en það hefst með notkun á þeim. Skilningur er til staðar á því að það getur tekið tíma,“ segir Þórir Andri Karlsson, grunnskólakennari í Reykjavík, aðspurður um þjálfun og kennslu á sjálf kerfin sem notuð eru í kennslunni og í tengslum við hana. Hann telur að almennt dragi notkun tölvubúnaðar úr álagi þegar á heildina er litið. Guðbjörg Birna Jónsdóttir, deildarstjóri á leikskóla í Reykjavík, bendir á að starfsfólk sé misvel í stakk búið til að læra á tölvubún- að. „Við reynum líka að miðla upplýsingum á milli starfsmanna um hvernig á að gera hlutina, en það er mismikill áhugi hjá starfsfólki á að læra á tölvurnar. Við nýtum þá starfsfólkið með minnstan áhuga á öðrum sviðum.“ Arndís Kjartansdóttir sem starfar við tölvuumsjón hjá Garðabæ telur að kröfur og álag á kennara hafi aukist samfara nýrri tölvutækni, en það muni e.t.v. jafna sig hjá yngri kynslóðum sem alast upp við tæknina. „En fyrir kennara sem eru að tileinka sér notkun tölvutækni þá held ég að álagið sé töluvert meira en það var. Kannski myndi ég ekki kalla þetta óþarfa álag, það eru t.d. mun meiri kröfur um dagleg rafræn samskipti við foreldra sem ég myndi segja að væru ekki óþarfi, heldur nauðsynlegur hlutur til að bæta samskipti og auka upplýsinga- flæðið milli heimila og skóla. Nýjungar í kennsluháttum, eins og tilkoma spjaldtölva í kennslu, krefjast mikils undirbúnings og þekkingar af hálfu kennara og kannski ekki allir jafnvel í stakk búnir til að tileinka sér þessa tækni.“ Kerfin verði hins vegar aldrei betri en manneskjan sem notar þau. „Það sem ég held að skorti helst sé tími fyrir kennara til að tileinka sér kerfin, læra á þau og verða öruggir með notkun þeirra. Við höfum líka hugsanlega verið í einhverjum vandræðum með hugbúnað fyrir kennslu á íslensku,“ bætir hún við. Krakka- og unglingavefir Menntamála- stofnunar eru mikið notaðir í grunnskól- anum, en þeir eru gamlir „og fylgir nýjustu tækni ekki nægilega vel – og þar skortir hugsanlega líka fjármagn til að gera betur og styðja betur við kennara – útvega þeim kennsluefni og forrit sem henta.“ óhjákvæmilegt álag „Álag á kennara er talsvert í upphafi eins og alltaf þegar nýr búnaður eða kerfi er tekinn í notkun. Með tímanum hafa spjaldtölvur þó sýnt að þær geta verið vinnusparandi,“ segir Björn Gunnlaugsson sem heldur utan um innleiðingu spjaldtölva í grunnskólum Kópavogs. Hann bendir á að þétt þráðlaust net sé nú að finna í öllum grunnskólum bæjarins sem skipti miklu máli í að tryggja að allir hafi örugga tengingu hverju sinni. „Öllum kennurum býðst töluvert úrval námskeiða um möguleika spjaldtölvunnar í námi og kennslu. Einnig eru starfandi kennsluráðgjafar við skólana sem geta veitt aðstoð þegar á þarf að halda.“ Ingvi Hrannar Ómarsson á Sauðárkróki bendir á að í Árskóla sé lögð áhersla á að velja kerfi sem auðveldi starfið. „Áður fyrr vorum við með kerfi sem virkuðu illa og juku á álag. Þá voru kennarar og starfsmenn lengi að skrá sig inn, ekkert þráðlaust net var til staðar, allir unnu í borðtölvum í sínum skólastofum/skrifstofum og nem- endur höfðu fá/engin tæki.“ Hann segir að kerfin séu byggð upp á valdeflingu starfs- fólks og því að efla tækniþekkingu. Auk þess séu tæki, kerfi og rými hönnuð fyrir samvinnu. Þá fái starfsfólk umtalsverðan stuðning. Það sé starfandi tölvuumsjónar- maður við skólann „og kennsluráðgjafi í upplýsingatækni sem leiðbeinir, auk „HvENÆR ER EITTHvAð NÆGILEGA GOTT?“ „Það er örugglega að valda auknu álagi á kennara og það kemur upp misræmi í kennsluaðferðum – sumir tileinka sér nýja tækni en aðrir ekki.“ Arndís Kjartansdóttir, Garðabæ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.