Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 54
54 VOR 2017
Á nýafstöðnu málþingi kynjafræðinem-
enda og kennara í Borgarholtsskóla voru
nemendur í pallborðsumræðum einhuga
um að kynjafræði ætti að vera skyldufag í
framhaldsskóla – og jafnvel grunnskóla.
Ætli það sé ekki einsdæmi að nemendur
geri sér far um að ,,agítera“ fyrir því að
tiltekið fag verði gert að skyldu? Það eru
sannarlega hundruð nemenda í kynjafræði
sem hafa hvatt til þess bæði í ræðu og riti,
auk annarra sem hafa lagt málefninu lið svo
sem háskólakennara, Kvenréttindafélagsins,
ýmissa femínistafélaga og fleiri. Hluti af
rökstuðningnum fyrir því að kynjafræði ætti
að vera skyldufag snýst um að það muni
ekki nást jafnrétti í samfélaginu án þess að
menntakerfið í heild sinni verði virkur aðili
í því starfi.
Skólakerfið er hluti af vandanum, því
þar er staðalmyndum og ranghugmyndum
oft viðhaldið með ómeðvitaðri hlutdrægni,
en þó líka hluti af lausninni. Því er nauðsyn-
legt að vekja hvern og einn kennara til
vitundar um jafnréttismál – á ígrundaðan
og vandaðan hátt þar sem kynjakerfið,
mismunun, kvenfyrirlitning, fórnar-
kostnaður karlmennskunnar, kynskiptur
vinnumarkaður, hefðbundin kynhlutverk
og annað sem varðar jafnréttismál – er sett
í samhengi. Allir kennarar þurfa að öðlast
skilning á því hvernig ójafnréttið
birtist í samfélaginu og í samskipt-
um – og verða þannig næmir á
hvernig mismunun er viðhaldið
og fá þjálfun og þekkingu til þess
að bregðast við og fræða.
Jafnréttisfræðsla í skóla-
kerfinu þarf að vera bein og
óbein. Nemendur þurfa að fá
beina fræðslu, þar sem farið er
í birtingarmyndir ójafnréttis
og þær settar í samhengi. Auk
þess þarf hver og einn kennari að vera
meðvitaður um að hann sé ekki að viðhalda
staðalmyndum og ranghugmyndum í
samskiptum sínum, námsgögnum
eða aðgerðaleysi. Jafnrétti þarf
að vera kerfisbundið og altækt í
skólum.
Skólar þurfa að hafa jafnrétti
að leiðarljósi í öllum sínum
ákvörðunum og starfi; félagslífi
nemenda, stjórnun skólastofn-
ana, viðmóti, andrúmslofti og
skólamenningu. Kennarar eiga að
vera leiðandi afl í jafnréttisstarfi í skólum og
til þess að svo verði þurfa allir kennarar að
fá heildstæða jafnréttisfræðslu.
Jafnréttisnefnd Kennarasambands
Íslands hefur skorað á stjórnendur í öllum
menntastofnunum á öllum skólastigum
að sinna jafnréttisfræðslu. Því hefur verið
vel tekið og margt gott starf fer fram víða í
skólunum. En forsenda fyrir því að jafnrétti
verði rauður þráður í skólastarfi á Íslandi
er að kennarar hafi forsendur til að taka
virkan þátt í því starfi. Kynja- og jafnréttis-
fræðum alla kennara á öllum skólastigum
og setjum þannig kraft í að samfélagið
okkar verði byggt á jafnrétti – til heilla fyrir
alla.
Hanna Björg
Vilhjálmsdóttir,
framhaldsskóla-
kennari og fulltrúi í
jafnréttisefnd KÍ.
KENNUM KENNURUM
KYNJA- OG JAFNRÉTTIS-
FRÆðI!