Stefnir - 01.10.1951, Síða 49
UMBROTIN í HOLLYWOOD
47
myndunum og einnig var nú auð-
ið að taka útimyndir með hljóm.
Þetta leiddi til þess, að brátt
náðist hraði og hreyfingar þöglu-
myndanna í talmyndunum, og að
hægt var að taka talmyndir með
verulegum hraða. Með því voru í
rauninni sigraðir bvrjunarörðug-
leikar talmyndagerðarinnar. Til
að tapa ekki mörkuðum erlendis
var einnig hafin í Hollywood
frainleiðsla talmynda á öðrum
tungum, svo sem frönsku, þýzku
og spönsku, með erlendum leik-
stjórum og leikurum. En aldrei
varð neinn hagnaður af þessu, og
því þaraf leiðandi brátt hætt.
Það átti eftir að sýna sig, að
amerískar myndir héldu að veru-
legu leyti sínum erlendu mörkuð-
um, enda þótt talmyndin leiddi til
aukinnar kvikmyndaframleiðslu
ýmissa landa, þar sem fólk vildi
skiljanlega gjarnan fá myndir
leiknar á sínu eigin móðurmáli.
OG NlJ eru liðin tuttugu og fimm
ár síðan fyrsta hljómmyndin var
framleidd, og það neitar því
sennilega enginn, að fyrst hljóm-
urinn og síðan talið hafa aukið
listagildi kvikmyndarinnar meira
en við var búist.
Að hljóm- og talmyndirnar hafa
einnig haft sitt menningagildi,
leikur heldur enginn vafi á.
Kvikmyndin hefur gert hljóm-
list, danslist og leiklist, túlkaða
af fremstu listamönnum heimsins
á þeim sviðum, kunna öllum
jarðarbúum, þar sem kvikmynda-
vélar eru til.
Á þennan hátt hafa kvikmynd-
irnar stuðlað að því, að veita líf-
inu meiri tilhreytni og gildi fyrir
milljónir manna.
ÉG ELSKA karlmenn, ekki af því að þeir eru karlmenn, heldur
af því, að þeir eru ekki konur. — Kristín Svíadrottning.
★
KARLMAÐURINN verður oft leiður á ástinni, en konan verður
aldrei leið á öðru en elskhuganum. — Etienne Rey.
★
MER GEÐJAST að karlmönnum, sem eiga framtið og konum, sem