Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1930, Síða 19

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1930, Síða 19
17 Borgarfj. 3 tilfelli, öll í nóvember, þar af tvö á sama bæ (systkini). Þriðja tilfellið var recidiv. Engir aukasjúkdómar. 7. Taugaveiki (febris typhoidea). Töflur II, III og IV, 7. Sjúklingafjöldi 1921—1930: 1921 1922 1923 1924 1925 192« 1927 1928 1929 1930 Sjúkl. 180 68 152 96 83 175 27 49 28 23 Dánir 15 3 12 6 7 13 3 2 2 1 Að taugaveiki eru óvenju lítil brögð á árinu, og er hvergi um farald- ur að ræða nema helzt í Ólafsfirði, þar sein fimm lögðust á sama heimili. Læknar láta þessa getið: Flateyrar. Af taugaveiki er talið í skýrslum mínum eitt tilfelli í jan- úarmánuði og annað í júnímánuði, en bæði voru þau vafasöm, enda í hvorugu tilfellinu gerð Widalsrannsókn. í janúar var það sjómaður úr Reykjavík, er veikur var, og var hann einangraður i mínum húsum. í júní var það sjö ára gamall drengur á Vöðlum hér inni í firði. Á þeim bæ hafði haustið áður eitt barn veikzt af taugaveiki og smitaðist það af taugaveikissýkilberanum Jónu Halldórsdóttur, er þar dvaldi þá um tíma. Hóls. Taugaveiki gerði lítið vart við sig, aðeins 1 létt tilfelli í ágúst; er þetta minna en nokkru sinni fyrr, og þakka ég það mjólkursölu- banninu hjá Bergi Kristjánssyni, scm staðið hefir áfram. ísafj. Héraðið er enn gersamlega taugaveikislaust, 2 tilfelli eru skrá- sett. Annað stúlka úr Bolungarvik, flutt hingað á sjúkrahús, og hitt piltur af togaranum Hávarði ísfirðingi, en þangað var hann nýkominn af línuveiðaranum Fi’óða úr Reykjavík, og sannaðist, að þar hafði hann tekið veikina, með því að margir af skipshöfninni lögðust um sama leyti. Mun aldrei hafa verið hægt að upplýsa hvaðan veikin hafði bor- izt í skipið, en hér á ísafirði gat það ekki hafa verið. Hafði þessi pilt- ur óvenjulega heiftuga taugaveiki, og dó hann eftir stutta legu. Svarfdæla. Ég var sóttur til Ólafsfjarðar 4. júlí til feðga, er lágu þar; hafði pilturinn, er var á 15. ári, legið á 3. viku, og faðir hans, tæplega fimmtugur, rúma viku, en verið lasinn vikutíma áður af höfuðverk og sleni, var veikin óvenjulega typisk taugaveiki í báðum. Voru þeir báð- ir fluttir til Akureyrarspítala og heimilið sótthreinsað, en bráðlega veiktust þar fleiri, 3 alls í viðbót, en út af heimilinu barst veikin ekki. Ekki tókst að rekja feril veikinnar að heimili þessu, Akuregrar. 2 sjúklingar með taugaveiki, og varð smitun rakin til Ólafsfjarðar. Þaðan komu seinna á sjúkrahúsið 4 sjúklingar, allir af sama heimili. Grímsnes. í síðasta mánuði ársins eru 2 sjúklingar skrásettir með þenna sjúkdóm. Sóttkvíað í allt að 3 vikur eftir að sótthiti var horfinn, síðan sótthreinsað. Engir hafa veikzt á því heimili síðan. Bær þessi, sem veikin kom á, er mjög nærri bænum Minniborg i Grímsnesi og samgöngur miklar þar í milli. Á Minniborg er sveitaverzlun töluverð 2
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136

x

Heilbrigðisskýrslur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.