Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1930, Side 120
118
færi til að búa slíkar toxinblöndur til, vantar bæði dýr o. fl. til þess Út-
koman líka ábyggilegri, þegar toxinið er fengið frá þeirri stofnun, sem
einmitt á þessu sviði stendur einna allra fremst í álfunni.
Fyrstu 45(i prófanirnar, sem gerðar voru í des. 1931 las ég allar
af þrisvar, nl. eftir 2, 4 og 6 daga. Úr því hætti ég að lesa af eftir 2
daga, þar sem sú skoðun breytti aldrei neinu, las upp frá því aðeins
af eftir 4 og 6 daga, og reyndist það fyllilega nægilegt. Sumir lesa að-
eins einu sinni af, og' þá eftir 4—6 daga.
Dælingarnar voru allar gerðar í skinnið á frainanverðum (volart)
framhandlegg. Yio ccm. af toxinblöndunni dælt í vinstra handlegg og
jafnmiklu af upphituðu blöndunni á tilsvarandi stað á hægra hand-
legg'. Dælingin er ekki alveg sársaukalaus, svo að krakkarnir voru dá-
lítið hræddir við þessar aðgerðir og kveinkuðu sér, og einstöku
þorðu alls ekki.
Úr því að sólarhringur er liðinn frá dælingunni, fer að votta fyrir
roða á vinstri handlegginum á þeim börnum, sem næm eru, og svo fer
roðinn vaxandi og nær hámarki sínu á 4. degi. Hjá börnum, sem eru
sterkt +, fylgir roðanum þroti svo að greinilegur þrimill myndast.
Roðabletturinn er jafnaðarlega kringlóttur, 1—3 cm í þvermál, en get-
ur orðið stærri, í einstöku tilfellum sáum við hann allt að 5 cm. í
þvermál.
Prófunin var lesin af sem neikvæð, þegar roði kom á hvorugan
handlegginn, eða ef vottur af roða kom á vinstri handlegginn, en
var horfinn aftur eftir 4 daga. Jákvæð Schick-prófun heldur sér svo
lengi, að hún er jafnaðarlega mjög greinileg' eftir viku, fer að verða
brúnleit eftir 4—5 daga, og siðan fer bletturinn að hieistra, og er
hreistrunin einmitt sérkennileg fyrir Schickprófið.
Jákvæð var prófunin talin þar sem hljój) upp roði eða roði og þroti
toxinmegin en ekki á samanburðarhandleggnum og þar sem þessi
breyting hélst svo að hún sást hæði eftir 4 og (i daga.
í örfáum tilfellum sást hrein eggjahvítureaktion, þar sem roðinn og
þrotinn var jafnmikill háðu megin. Þessi fáu tilfelli eru ekki talin með,
þar sem ekki er hægt að telja slíka útkomu jákvæða né heldur nei-
kvæða.
Eftirfarandi tafla sýnir árangurinn af rannsóknunum:
Alduv ]ákvætt Schickpróf (næm fyrir barnaveiki) Neikvætt Schickpróf (ónæm fyrir barnaveiki)
Stúlkur , Piltar 0/0 Alls o/o Stúlkur 0/0 Piltar 0/0 Alls o/o
8 ára. . 39 92,86 1 78 82,98 117 86,03 3 7,14 16 17,02 19 13,97
9 — . . 68 90,67 55 79,71 123 85,42 7 9,33 14 20,29 21 14,58
10 — . . 62 86,11 71 82,56 133 84,18 10 13,89 15 17,44 25 15,82
11 - 58 84,06 62 81,58 120 82,76 11 15,94 14 18,42 25 17,24
12 — .. 57 79,17 , 38 66,67 95 73,64 15 20,83 19 33,33 34 26,36
13 — . . 41 70,69 | 24 60,oo 65 62,50 17 29,31 16 40,00 33 37,50
14 — . . 3 »11 1 8 4 )) 3 » » » » »
Alls 328 83,26 3 29 77,78 657 81,92 66 16,74 94 22,22 157 18,08