Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1930, Side 39
37
á dyr en hann færi að brjótast í því að bólusetja börnin sín. Og hver
ætti þá að annast vinnukonuna, ef engin berklavarnarlög væru til?
Hólmavíkur. 6 berklasjúklingar eru skrásettir á árinu; þar af höfðu
2 verið berklaveikir áður.
Sauðárkróks. Reynt hefir verið þetta ár, eins og undanfarið, að
koma brjóstveiku fólki á heilsuhæli. Þess er jafnan gætt, að einangra
sem mest þá, sem hafa berkla í lungum og opin berklasár. Hér er nú
og hefir verið tiltölulega margt af gömlu fólki með berklaveiki, og
hefir sumt af þvi, sem dáið hefir, dáið úr elli og ýmsum ellikvillum,
ekki síður en úr sjálfri berklaveikinni. Að öðru leyti leyfi ég mér að
vísa til skýrslu minnar síðastliðið ár um berklaveiki hér í Skagafirði.
Get ég þó bætt því við, að ég býst við að hún sé í rénun. Þess skal
getið í þessu sambandi, að mér finnst blóðleysi í börnum, ásamt bein-
kröm, fara vaxandi. Hygg ég að vaxandi kröfur um setur í skólum og
lélegra fæði sé aðalorsökin. Tel ég þetta hvorttveggja orsakir til vax-
andi kvilla í börnum yfirleitt, en blóðleysi er oft undanfari og braut-
ryðjandi berklaveikinnar í börnum og unglingum.
Hofsós. 9 nýir berklasjúklingar, þar af 4 með afturköst.
Svarfdæla. Fleiri voru skrásettir þetta ár með berklaveiki en nokkru
sinni áður. Þó eru vafalaust berklasjúklingar mjög vantaldir úr Ól-
afsfirði.
Akureyrar. í árslok voru skráðir alls 286 berklasjúklingar í hérað-
inu (eða 39 sjúklingum fleiri en við fyrri áramótin). 32 dóu úr berkla-
veiki á árinu, en þar af voru 9 utanhéraðsmenn.
Telja má víst, að berklaveikin sé enn mjög útbreidd og fari að lík-
indum vaxandi enn um hríð í Akureyrarhéraði. Veikin er enn sem fyrr
meiri en almennt gerist í flestum öðrum héruðum landsins. Af hinum
skráðu 286 berklasjúklingum voru 127 karlar og 159 konur. Lungna-
berkla höfðu 196. Berkla í öðrum líffærum 90. Eftir aldri skiptust
sjúklingarnir þannig:
Á aldrinum 0—20 ára 93
_ 20—40 — 164
— 40 og þar yfir 29
Samtals 286
Samkvæmt því, sem oss læknum var kunnugt við síðustu áramót,
var heilsuástand hinna skráðu berklasjúklinga þannig:
Allvel frískir og vinnufærir ..... 101
Veikir, en samt nokkuð vinnufærir .. 150
Rúmlægir og dauðvona ............. 35
Samtals 286
Eftir heimilisfangi skiptust sjúklingarnir þannig:
í Akureyrarkaupstað ................. 133
- Hrafnagilshreppi ................... 66
- Glæsibæjarhreppi ................... 30
- Saurbæjarhreppi ................... 23
- Arnarneshreppi ..................... 13