Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1930, Blaðsíða 25
23
virtist sem svalir bakstrar, undnir úr stofuheitu vatni, hefðu góð á-
hrif á eistnabólguna. Um afdrif eistnanna er mér ekki fullkunnugt nú.
Þau urðu mörg lítil, er bólga hjaðnaði, en stækkuðu aftur. En end-
anleg skoðun er óframkvæmd. Mjög einkennilega hegðaði veikin sér
á einu heimili fámennu, í systkinum þar þremur, einkum pilti einum,
25 ára. Hann kom til mín í maí, með —• að því er mér virtist — typiska
hettusótt væga, bólginn uin gl. parotis beggja vegna. Fór heim og lá í 4
daga. Óvíst um sótthita, hvort nokkur var. Veiktist enn á ný um 23.
ágúst, sagði sig aldrei hafa verið vel frískan síðan á vori og hafa bólgn-
að tvisvar á fyrrgreindum stað í sumar, eftir mikla áreynslu. Er þar
skemmst af að segja, að frá því seint í ágúst og fram í miðjan október
lá hann að mestu í rúminu. Hafði oftast lágan hita og var bólginn,
en rann af á milli og varð þá hitalaus. Reyndi hann þá jafnan á sig og
fór eitt sinn á fætur og út, þá búinn að vera hitaiaus nær viku, en
bólgnaði á ný og fékk hita. Lét ég hann að síðustu liggja fullan hálf-
an mánuð hitalausan og dugði það. Sá ég hann nokkrum sinnum.
Orchitis eða aðrar merkjanlegar complicationes fann ég aldrei. Systur
hans tvær lösnuðust í maí —• önnur þeirra aftur í ágúst, en taldi sig
hafa verið fríska í milli. Henni batnaði fljótt hið síðara sinn, nema
hvað hún fékk upp úr veikinni seinna conjunctivitis, sem þó virtist
batna í september. Um mánaðamótin sept.—okt. fór hún sjóleiðis til
Reykjavíkur og tók sig þá upp augnbólgan. Er mér sagt, að henni
hafi verið lengi að batna undir læknishendi í Rvík. Bróðir þeirra fékk
hettusótt fyrst í ágúst, og upp úr henni oonjunctivitis, sem ekki vildi
batna til fulls, þó skánaði í milli. Leitaði hann til mín nú um ára-
mót og er tæplega góður enn. Höfuðdrættir: Veikin var mjög lítið
næm, tók fátt af börnum og kvenfólki, enda urðu þau sízt á vegi henn-
ar. Þung á karlmönnum í blóma kynþroska. Kynleg um margt, miðað
við meðaltal af því, sem um hana er ritað.
Þistilfí. Hettusóttin, sem minnst var á síðastliðið ár, stöðvaðist í
Bakkafirðinum. Var mín ekkert vitjað til sjúklinga þar og er ókunn-
ugt um tölu þeirra. Ný smitun barst hingað til Þórshafnar í apríl.
Piltur, sem þaðan kom, hafði óverulega bólgu á kjálka, og var álitið
stafa af tannskemmd og ekki skeytt að vitja læknis. Þegar ég loks sá
sjúklinginn, var það af tilviljun, og hann þá búinn að smita út frá
sér fjölda manns. Var hettusóttin svo viðloðandi í héraðinu allt árið.
Fáir fengu komplikationir og vitjuðu þeir helzt læknis; annars
skeyttu menn kvillanum lítið.
Vopnafí. Hettusótt barst hingað með manni frá Reykjavík og komst
hér á 2 heimili, en dó svo út. Var mjög væg.
Seyðisfí. Hettusóttin var mjög væg, og efalaust margir, sem veiktust,
ekki vitjað læknis.
Berufíj. Hettusótt barst fyrst í héraðið í febrúar með sjúkling, er
kom til Djúpav. með Esju, en breiddist þá ekki út. Aftur kom veikin
um miðjan maí, og mun það hafa verið annaðhvort með Brúarfossi
eða vélbát frá Seyðisfirði. Hún var væg, og breiddist seint og lítið út,
stakk sér niður á stöku stað. Einn sjúklingur af hinum skráðu fékk
orchitis.
Vestmannaeijja. í janúar, febrúar, inarz og apríl var hér hettusótt,