Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1930, Page 38

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1930, Page 38
36 Patreksjj. Á árinu voru skrásettir 4 nýir sjúklingar. Þar af 1 sjúk- lingur með lungnaberkla. Bíldudals. Berklaveiki hefir lítið borið á og enginn nýr sjúklingur skráður á árínu. Þingeyrar. A árinu hafa bætzt við 5 nýir sjúklingar. Af þeim eru 2 albata á árinu. Frá fyrra ári voru 3 sjúklingar. Eru þeir allir albata. Ftateyrar. Skrásettum berklasjúklingum hefir á árinu fækkað úr 24 niður í 18, vegna þess að ég sleppti nú af skrá öllum, sem undan- farin tvö ár hafa getað stundað atvinnu sína sem fullfrískir menn að kalla má. Hóls. Berklaveiki er talsverð í héraði mínu, og verð ég, því miður, að játa, að þrátt fyrir berklavarnarlögin, sem ég hefi reynt að fram- fylgja eftir föngum, þá fer veikin ekkert rénandi. Isafj. Framtalið á mánaðarskránum er mjög ófullkomið. Á skrán- um Fi—Fii hygg ég aftur á móti að framtalið sé eins nákvæmt og til er hægt að ætlast, að öðru leyti en því, sem ég hefi oft minnst á, að handahóf ræður miklu um það, hverjir eru taldir albata og þar með teknir út af skránni. Síðustu árin hefi ég þó fylgt um það nokkuð svipaðri reglu og lítur heldur út fyrir, að berklaveikin hafi nú að minnsta kosti um sinn náð hér hámarki og sé að byrja að réna. Ég er i engum vafa um það, að barátta sú, sem berklavarnarlögin gera mönnum kleift að heyja gegn berklaveikinni, gerir afar mikið gagn. Þó að ekki sé einhlítt, er það vafalaust aðalatriðið að stía hættulega smitandi berklasjúlinguin frá þeim, sem heilbrigðir eru, einkum börn- um og unglingum. Því að berklaveikin er þó fyrst og fremst smitandi sjúkdómur, Enginn húsakynni eru svo góð, ekkert matarhæfi svo heil- næmt og enginn þrifnaður svo mikill — hvað svo sem Papvorth líður, og hefi ég verið þar — að það fyrirliyggi veikina, ef alvarleg smitunar- uppspretta er á heimilinu. Og að hinu leytinu eru engin húsakynni svo argvítug, sultur né sóðaskapur, að það út af fyrir sig geri nokkurn berklaveikan, ef smitun nær ekki til. Um þetta get ég nefnt tuga dæma úr mínu héraði og nágrenni. Berklavarnarlögin voru því rétt upp tekin, og með þeim er vafalaust byrjað á byrjuninni og aðalatriðinu. Og þó að seint þyki ganga og berklavarnarlögin séu ekki einhlít, er ekki ráðið að afnema þau eða gera þau gagnslaus, heldur á að bæta því við, sem til vantar. Því að fyrst á að fyrirbyggja smitunina eins og unnt er, en síðan á fólk að hafa góð húsakynni og lifa heilsusamlegu lífi. Og víst má reyna bólu- setningu, þegar örugt er, að hún sé hættulaus eða nærri því það, og geri eitthvert gagn. Skrif og fyrirlestrar sumra málsmetandi lækna um þessi mál, þar sem þeir prédika fánýti berklavarnarlaganna og skrifa og tala engu líkara en því, að þeir telji berklaveikina ekki smit- andi sjúkdóm, — eru blátt áfram hneykslanlega afvegaleiðandi fyrir al- menning. Eina bótin er, að fólk er almennt svo upplýst, að það tekur ekki mark á þessu. Hér krefjast allir þess fyrst og fremst, að smit- andi berklasjúklingur sé fluttur burtu af þeirra heimili, a. m. k. þar sem börn og unglingar eru. Hið sama geri ég, og mér er nær að halda, að...............................mundi fara eins að, ef hann ætti fullt hús af börnum. Hann mundi fyrr reka berklaveika vinnukonu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.