Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1930, Page 70

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1930, Page 70
68 því kúahald þar í vöxt með hverju ári, svo að gera má ráð fyrir að innan skamms verði til fulls bætt úr mjólkureklunni. Nýr fiskur er aðalfæða í kauptúnunum allt árið. Flateijjar. Viðurværi fólks í héraðinu má teljast allgott. Nýmeti fæst í eyjunum mikinn hluta árs. Ræktunin er hér skammt á veg komin. í Flatey eru tæpar 20 kýr. Ef eyjan væri öll ræktuð, gætu búið þar að minnsta kosti helmingi fleiri. Öxarfj. Fatnaður manna tekur litlum breytingum þessi ár. Tel ekki þó pils falli eða stígi um tommu eða svo. Nærföt úr ull, flest prjónuð, brækur kvenna þó tíðast úr búðum. Ytri föt karla hlý, og sokkar og vetlingar heimagerðir. Vetrarhúfur ekki góðar. Fötum kvenna tekur ekki að lýsa. Sokkar þeirra og barna þunnir. Skóplögg úti að mestu gúmmískór. Skrifað hefi ég hér um fótabúnað skólabarna í blað, er gengur. En tízkan er sterkari en ég og kvenfólkið í hennar vasa. Vopnafj. Skófatnaður er aðallega gúmmískór og falla þó mörgum þeir illa. Áreiðanlega eru þeir óhollir öllum, sem fótrakir eru. Leður óseljanlegt, og enginn vill nota það framar. 6. Áfengisnautn. Kaffi og tóbak. Læknar láta þessa getið: Skipaskaga. Áfengisnautn hverfandi lítil. Helzt drukkið Spánarvin. Kaffidrykkja mikil, te og kakaó minna notað. Tóbaksnautn mikil. Neftóbaks mest neytt og vindlingar reyktir, sérstaklega af ungu fólki. Munntóbaksnautn hefir aftur minnkað að miklum mun. ^ Borgarfj. Kaffidrykkja er mikil í héraðinu og tóbaksnautn, einkum neftóbaks. Víndrykkja mjög lítil. Borgarnes. Áfengissala er hér engin opinber, en sagt er að töluvert sé haft um hönd af bruggi, — svo kölluðum „íslendingi“, og býst ég við að það sé óhollur drykkur. Spánarvín er drukkið töluvert við og við, en þykir dýrt og slæmt. Æskilegt væri að gott öl fengist, ofurlít- ið áfengt. Það mundi koma í veg fyrir að menn drykkju annað verra. 1'óbaksnautn er töluverð —- sigarettureykingar. Ólafsvíknr. Áfengisnautn er lítil, en kaffi og tóbaksnautn mikil. Flateyjar. Áfengis er ekki neytt hér, svo teljandi sé. ísafj. Áfengisnautn var hér mjög mikil fyrri hluta ársins og horfði til vandræða. Fyrir samtök verkamanna, sem studd voru af bæjarstjórn, og nærri undantekningarlaust af öllum bæjarbúum, án tillits til pólitískra flokka, tókst að koma því til leiðar, að dregið var mjög úr áfengissölu rikisins hér, og sá þess strax mikinn stað. Þistilfj. Áfengisnautn ekki teljandi, þó stöku sinnum komi send- ingar frá Áfengisverzlun ríkisins. Berufj. Áfengisnautn mun nokkuð almenn, en gætir lítið opinberlega. Tóbalcsnautn unglinga mun vera þó nokkur. Mest reykja menn vindl- inga, og sá siður mun vera orðinn alltíður að draga reykinn ofan í lungun.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.