Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1965, Blaðsíða 92
1965
— 90 —
2. Berklaveiki (tuberculosis).
Töflur VIII, IX og XI.
Eftir berklabókum (sjúkl. í árslok):
1956 1957 1958 1959 1960 1961 1962 1963 1964 1965
Tbc. pulm. 669 614 501 402 330 282 257 227 213 171
Tbc. al. loc. 88 109 104 93 88 69 81 70 51 44
Alls 757 723 605 495 418 351 338 297 264 215
Dánir 13 7 6 8 5 2 5 3 2 3
Skýrslur um berklapróf bárust ekki úr eftirtöldum læknishéruðum:
Álafoss, Ólafsvíkur, Flateyjar, Súðavíkur, Djúpavíkur, Hólmavíkur,
Nes og Hveragerðis. 1 yfirliti því, sem hér fer á eftir, er greint frá
berklaprófum á 33877 manns á aldrinum 7-20 ára. Skiptist sá hópur
eftir aldri og útkomu sem hér segir:
7—12 ára 22168, þar af jákvæðir 338 eða 1,5%
13—-20 — 11709, — - — 425 — 3,6%
Skýrsla berklayfirlæknis.
Á árinu voru framkvæmdar berklarannsóknir, aðallega röntgenrann-
sóknir, í 14 læknishéruðum. Alls vou rannsakaðir 17946 manns, á 6
heilsuverndarstöðvum 17504. úr 8 læknishéruðum (berklarannsóknir
í Hafnarfirði og Kópavogi eru framkvæmdar af Heilsuverndarstöð-
inni í Reykjavík), en með ferðaröntgentækjum 442 úr 6 læknishéruð-
um. Fjöldi í'annsókna er hins vegar langtum meiri, þar sem margir
koma oftar en einu sinni, einkum á stöðvarnar. Námu þær alls 21001.
Ofangreindar rannsóknir með ferðaröntgentækjum fóru eingöngu fram
í sambandi við skólaskoðanir. Á þessu ári fóru hins vegar engar rann-
sóknir fram vegna sérstakra berklasmitana (faraldra) í héruðum lands-
ins. Við skólarannsóknirnar fannst enginn með virka berklaveiki.
3. ígulmygla (actinomycosis).
1956 1957 1958 1959 1960 1961 1962 1963 1964 1965
Sjúkl. 3 1 yy iy 1 2 2 1 yy ,yy
Dánir yy yy yy yy yy yy yy yy yy yy
4. Holdsveiki (lepra).
1956 1957 1958 1959 1960 1961 1962 1963 1964 1965
A spítala 5 6 5 5 4 4 3 3 3 3
í héruðum 2 2 yy yy » yy yy yy yy -
Samtals 7 8 5 5 4 4 3 3 3 3