Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1965, Blaðsíða 156
1965
— 154 —
Málsatvik eru þessi:
Aðfaranótt laugardagsins 31. október 1964 um kl. 3, kom ákærður í
máli þessu, E. G-son............... Hafnarfirði, á heimili hjónanna G.
S-dóttur og J. J-sonar.............. Reykjavík. Þau hjón höfðu verið
skilin að borði og sæng um tíma, en höfðu daginn áður ákveðið að
reyna með sér sættir og taka upp sambúð. Meðan á skilnaðinum stóð,
hafði konan kynnzt ákærðum og tekið hann inn á heimili sitt nokkra
daga. Föstudaginn 30. október kom til orðahnippinga milli ákærðs og
eiginmannsins, er hinn síðar nefndi kom til konu sinnar að leita um
sættir. Þá um kvöldið fóru hjónin í bíó, en þegar heim kom, fréttu þau,
að ákærður væri farinn, en mundi koma daginn eftir að sækja bifreið,
sem hann hafði skilið eftir. Fóru þá hjónin að sofa, en um kl. 3 um
nóttina vaknaði konan við, að barið var á dyr og glugga. Fór hún að
athuga þetta, og var þar kominn ákærður og vildi komast inn. Konan
fór þá fram og læsti svefnherbergisdyrunum og hugðist tala um fyrir
ákærðum, en hann ruddist inn í húsið og tók í svefnherbergishurðina,
sem var læst. Æstist hann þá upp og braut upp hurðina og réðst að
húsbóndanum, þar sem hann lá sofandi og tók fyrir kverkar honum,
herti að og hafði í frammi heitingar, unz leigjandi í húsinu. Ó. G-son,
kom á vettvang og skakkaði leikinn. Var þá húsbóndinn að sögw Ó.
máttlaus og blár í framan.
J. J-son var fluttur á Kleppsspítala stuttu eftir árásina vegna geð-
truflana. í málinu liggur fyrir álitsgerð Páls Sigurðssonar trygginga-
yfirlæknis, dags. 28. ágúst 1967, svo hljóðandi:
,,Með bréfi 14. ágúst s.l. senduð þér gögn í málinu: Ákæruvaldið
gegn E. G-syni og óskuðuð þar eftir, að ég léti sakadóminum í té ýtar-
lega álitsgerð varðandi heilbrigði J. J-sonar,........., svo og hvort
telja bæri vistun hans á Kleppsspítala í nóv. 1964 hafa verið afleiðing
þeirrar árásar, er hann varð fyrir 31. október sama ár, hvernig heil-
brigðisástandi hans væri háttað nú og hvort um varanlegt heilsutjón
vegna fyrrgreindrar árásar væri að ræða.
1 þeim gögnum, sem til er vitnað, eru afrit þriggja læknisvottorða,
hið fyrsta er frá 3. nóvember 1964 og staðfestir þar..........læknir,
að J. J-son hafi verið lagður inn á Kleppsspítalann þann 2. nóvem-
ber 1964.
Annað læknisvottorð er frá Þórði Möller yfirlækni, dags. 12. desem-
ber 1964, og er það vottorð svo hljóðandi [bréf til Gunnars Sæmunds-
sonar, þá fulltrúa bæjarfógetans í Hafnarfirði] :
„Vegna fyrirspurnar yðar, herra fulltrúi, í bréfi, dagsettu 8. desem-
ber 1964, um vistun J. J-sonar, ............. Reykjavík, hér á spítal-
anum, um heilsufarsástand hans og batahorfur skal þessa getið: Um
það bil 17 klukkustundum eftir að J. varð fyrir líkamsárás, varð hann
sýnilega óskýr og ruglaður, en lélegt minni eftir á bendir til þess, að
meðvitund hans kunni að hafa verið óskýr nokkru lengur. Verður að