Börn og menning - 01.09.2007, Síða 15

Börn og menning - 01.09.2007, Síða 15
Fimm manna fjölskylda á slóðum Astridar Lindgren 13 hlustuðum á sögubrot á ensku eða sænsku. Við völdum að sjálfsögðu sænskuna því hana las Astrid sjálf. Og svo hófst ævintýraferðin. Á meðan vagninn silaðist áfram birtust smágerðar leikmyndir úr bókum Astridar og hlýleg röddin sagði okkur frá því sem fyrir augu bar. Leikmyndirnar voru næstum alveg kyrrar og ekkert hátæknilegt við þær en þær báru þess merki að nostrað hafði verið við hvert smáatriði og það var gaman. Stundum voru margar myndir úr sömu sögunni og þegar leið á ferðina fengum við stundum nýstárleg sjónarhorn á þær - vagninn tókst á loft og sveif yfir Kirsuberjadal þar sem trén voru í blóma og nálgaðist rólega bræðurna Ljónshjarta þar sem þeir sitja á brúnni - myndina sem við þekkjum svo vel af bókarkápunni. Það var tilkomumikið. Á endastöð var Sjónarhóll Línu Langsokks í öllu sínu veldi. Úti á hlaði stóð hesturinn og upp á hann máttu stórir sem smáir klifra og láta mynda sig. Húsið var eins og Lína hefði rétt skroppið frá og þar mátti smáfólkið leika sér að vild - klifra upp tröppur, renna sér niður rennibrautir og róta í dótinu hennar Línu. Á leiðinni út var farið ( gegnum aðra töfraveröld. Stóran sal var búið að innrétta með sögusviði Kalla á þakinu þar sem hægt var að príla um húsþök án þess að nokkur skammaði mann fyrir það. Er það ekki draumur hvers barns? Ekki veit ég hvort það voru Stokkhólmsþökin sem töfðu kónginn um árið en sagan segir að þegar garðurinn var vígður hafi Astrid og Karl Gustaf Svíakonungur farið fyrst inn og af öryggisástæðum mátti ekki hleypa hinum boðsgestunum inn fyrr en hans hátign var kominn út. Ferðin átti að taka 20 mínútur en það leið og beið og aldrei komu Astrid og Karl Gustaf. Eftir að hafa heimsótt safnið skil ég það vel. Ef ég væri kóngur hefði ég líka heimtað að fara marga hringi um heiminn hennar Astridar! í beykiskógum Smálanda Við fórum öll glöð úr Junibacken og hlökkuðum til að halda pílagrímsferðinni áfram f Smálöndunum. Þangað var býsna löng leið eftir tilbreytingasnauðri hraðbraut og eins gott að barnakortabókin af Svíþjóð sem við keyptum innihélt nokkra skemmtilega bílaleiki. Þar lærðum við til dæmis leik sem gengur út á það að hugsa sér tvö rímorð og gefa samferðafólkinu vísbendingu með tveimur samheitum. Heimilisfaðirinn sagði til dæmis dýr og kall í kjól og var nokkuð stoltur af yngstu dóttur sinni sem kveikti strax á því að það væru rímorðin hestur og prestur. Þremur tímum síðar renndum við inn í Vimmerby - eða Vimmabæ eins og Vilborg Dagbjartsdóttir nefndi hann í þýðingu sinni á EmilíKattholti. Það er ekki stór bær og nokkuð augljóst úr langri fjarlægð hvert aðalaðdráttaraflið er: Astrid Lindgrens Várld. Skemmtigarðurinn er gríðarstór og reistur samkvæmt samkomulagi við Astrid og fjölskyldu hennar. Að þessu sinni gerði Astrid þá kröfu að garðurinn væri ekki staður þar sem börn væru mötuð á innihaldslausri afþreyingu heldur væru þau virkjuð sjálf - bæði hugur og líkami. Og það hefur sannarlega heppnast. Veröld Astridar Lindgren er eitt risavaxið útileikhús þar sem gestir geta ýmist verið áhorfendur eða leikarar. Sögusvið flestra bóka Astridar Lindgren eru þar, sum í fullri stærð en önnur smækkuð í nokkuð réttu hlutfalli við meðalhæð gesta garðsins. Og með sögusviði á ég ekki bara við hús persónanna - þarna er bæði Kirsuberjadalur og Þyrnirósardalur með fjölmörgum byggingum, öll Skarkalagata með brekkunni þar sem Lotta húrraði niður á hjólinu hennar frú Berg, Kattholt með útihúsum, Matthíasarskógur með kastala og helvítisgjá og svona mætti lengi telja. Við vorum óskaplega glöð að hafa ákveðið að dvelja tvo daga í garðinum - það var algert lágmark! Fyrri daginn vorum við raunar óheppin með veður og vorum orðin býsna blaut og framlág þegar við skriðum heim í kofann okkar undir kvöldið. En seinni dagurinn var þurr og allir mun kátari. Þá jókst lífið í garðinum til allra muna og um allt voru leikarar að túlka atriði úr sögum Astridar. ( dagskránni okkar sáum við hvenær yrði leikið á hverjum stað og reyndum eins og við gátum að ná sem flestu. Þannig sáum við viðskipti Línu langsokks og bófanna í Sjónarhóli, Rasmus og Paradísar- Óskar syngja saman ( hlöðudyrunum, stóran hóp Kattholtsfólks leika atriðið þar sem Emil reynir að draga tönn úr Línu og örlagaríka ferð þeirra Sólbakkasystra, Maddittar og Betu, upp á eldiviðarskúrinn. Á milli stuttra leikþátta buðu leikararnir gestum garðsins að koma til sín, hvort sem var til að spjalla eða láta taka af sér mynd. Leikararnir dvöldu

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.